Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 8
8 Fréttir Fólkið á bak við félögin Þetta eru helstu eigendur félaga sem styrktu flokkana: Af þeim sem styrktu Sjálfstæðisflokkinn Arkur ehf. – Steinunn Jónsdóttir fjárfestir. Norvik hf. – Jón Helgi Guðmunds- son, kenndur við Byko. Sigla ehf. – Finnur Reyr Stefánsson og Tómas Kristjánsson. Veritas Capital ehf. – Hreggviður Jónsson, fomaður Viðskiptaráðs. Vesturgarður ehf. – Valfellsfjölskyldan. Af þeim sem styrktu Framsóknarflokkinn Strokkur Energy ehf. – Eyþór Arnalds. Ursus ehf. – Heiðar Guðjónsson fjárfestir. Af þeim sem styrktu Samfylkinguna Hofgarðar ehf. – Helgi Magnússon, fjárfestir og varaformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Helgarblað 23.–26. október 2015 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! BMW 520D XDRIVE F10 nýskr. 04/2014, ekinn 28 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Sportsæti, sportstýri, sóllúga, gardínur ofl. Verð 9.900.000 kr. Tilboðsverð 8.990.000 kr. Raðnr.254156Mjög vel útbúinn,stórglæsilegur bíll! Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is Þetta fengu flokkarnir frá fjármálageiranum n Sjálfstæðisflokkurinn fékk hærri framlög en allir hinir flokkarnir til samans S jálfstæðisflokkurinn fékk 3,3 milljónir króna í framlög frá fjármálafyrirtækjum og fjár­ festingafélögum í fyrra sam­ kvæmt ársreikningi flokksins eða meira en allir hinir flokkarnir á þingi til samans. Ellefu fjármálafyrir­ tæki og fjárfestingafélög styrktu Sjálf­ stæðisflokkinn í fyrra þar af voru fjögur sem lögðu honum til lögbundna há­ marksupphæð sem er 400 þúsund krónur. Athyglisverðir eigendur Til samanburðar þá fékk Samfylk­ ingin næst mest frá fjármálageiranum, eða rúmar 1,6 milljónir frá fimm fyrir­ tækjum. Athygli vekur 400 þúsund króna framlag frá félaginu Hofgarðar, fjárfestingafélagi Helga Magnússonar, varaformanns Lífeyrissjóðs verzlunar­ manna. Framsókn fékk rúmar 1,5 milljónir frá sjö fyrirtækjum, en þar vekur athygli 400 þúsund króna fram­ lag frá Ursus ehf., sem er í eigu athafna­ mannsins Heiðars Guðjónssonar. Einnig er áhugavert 200 þúsund króna framlag frá Strokki Energy, sem er í eigu Eyþórs Arnalds, fyrrverandi odd­ vita Sjálfstæðisflokksins í Árborg. Þá vekja athygli fjölskyldutengslin milli eigenda þriggja félaga sem styrktu Sjálfstæðisflokkinn um 300 þúsund krónur hvert. Félagið Arkur ehf. var í eigu athafnakonunnar Steinunnar Jónsdóttur þegar styrkirnir voru veittir. Steinunn er dóttir Jóns Helga Guð­ mundssonar, eiganda Norvik hf. en annar aðaleigenda Siglu ehf., Finn­ ur Reyr Stefánsson, er eiginmaður Steinunnar og tengdasonur Jóns Helga. Ókeypis peningar? En hvers vegna styrkja fyrirtæki stjórn­ málaflokka með fjárframlögum? Er eitthvað til sem heitir ókeypis peningur eða vilja fyrirtæki og einstaklingar með framlögum sínum sá fræjum og geta innheimt eitthvað í staðinn síðar, þegar þeim hentar? Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur og dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, segir að ýmsar tilgátur séu um þetta og ólíkar ástæður geti legið að baki. „Sum fyrirtæki taka hreinlega þá af­ stöðu að styrkja alla flokka sem biðja um framlög. Sum fyrirtæki telja að þau séu að styrkja lýðræðið með því að styrkja alla sem biðja um styrki. Önn­ ur fyrirtæki sjá hag sinn í að styrkja til­ tekna stjórnmálaflokka á meðan aðrir setja pening í starfsemi vegna þess að þeir vilja sjá tiltekin mál ná fram. Það er augljóst. En umræðan er oft þannig að styrkveitendur vilji fá eitthvað í staðinn og fyrir því eru mörg dæmi hér á landi,“ segir Stefanía og bendir á lög um fjár­ mál stjórnmálasamtaka og frambjóð­ enda og um upplýsingaskyldu þeirra frá árinu 2006. Þau lög hafi verið sett til að auka gagnsæi varðandi framlög og þak sett á hámarksframlög. Mörgum þótti enda styrkveitingar fyrirtækja og einstaklinga fyrir þann tíma komnar úr böndum, meðal annars í tengslum við fjáröflun fyrir prófkjör sérstaklega. „Hér á Íslandi hefur verið reynt að skrúfa þetta niður og það hefur dregið mjög úr því sem fyrirtæki og einstak­ lingar mega styrkja með háum fjár­ hæðum. Hámarkið orðið 400 þúsund krónur á ári. Þetta eru auðvitað ekki háar upphæðir – kannski á við verðið á einni auglýsingu og það er til þess að reyna að stemma stigu við að menn geti keypt sér áhrif.“ Vekur grunsemdir „Þetta vekur auðvitað alltaf grun semdir, en á móti kemur að sumir spyrja sig hvort það sé æskilegt að stjórnmála­ flokkar séu bara reknir fyrir ríkisfé. Það hefur verið gagnrýnt í fræðunum því það geri flokkana að einhvers konar útibúi í ríkinu og flokkarnir fari að hafa meiri sameiginlega hagsmuni í ein­ hvers konar samsæri gegn kjósendum. Sú kenning heitir Cartel Party og geng­ ur út á að stjórnmálaflokkar á Vestur­ löndum séu að maka krókinn á kostn­ að kjósenda,“ segir Stefanía. n Styrkir til Sjálfstæðisflokksins Fyrirtæki Upphæð Gamma 400.000 MP banki 400.000 Straumur 400.000 Vesturgarður 400.000 Arkur ehf. 300.000 Norvik hf. 300.000 Sigla 300.000 Borgun 250.000 Valitor 200.000 Kaupfélag Skagfirðinga 200.000 Veritas Capital 150.000 Alls 3.300.000 kr. Styrkir til Framsóknarflokksins Fyrirtæki Upphæð Ursus ehf. 400.000 Kaupfélag Skagfirðinga 400.000 Valitor 200.000 KEA svf. 200.000 Strokkur Energy 200.000 Íslensk verðbréf 75.000 HF Verðbréf 50.000 Alls 1.525.000 kr. Styrkir til Samfylkingarinnar Fyrirtæki Upphæð MP banki 400.000 Straumur 400.000 Gamma 400.000 Hofgarðar 400.000 Vörður tryggingar 60.000 Alls 1.660.000 kr. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Stefanía Óskarsdóttir Stjórnmála- fræðingur og dósent við Háskóla Íslands. „Þetta vekur auðvitað alltaf grunsemdir Stefanía Óskarsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.