Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 18
Helgarblað 23.–26. október 201518 Umræða L augardaginn 8. september 1973 voru bræðurnir Guð­ mundur og Ólafur Bene­ diktssynir að æfa köfun í Kleifarvatni. Guðmundur synti meðfram hamri nokkrum úti fyrir svonefndum Geithöfða. Ólafur fór að svipast um eftir bróður sín­ um þar sem hann var í hvarfi og í þann mund rakst hann á torkenni­ legt tæki á botni vatnsins á um tíu metra dýpi. Við nánari athugun komu sífellt fleiri tæki í ljós og tóku þeir sum þeirra með sér upp úr vatninu. Rússneskar áletranir Tveimur dögum síðar héldu þeir aftur að vatninu með félaga sínum, Erlingi Bjarnasyni, til að ná tækjun­ um upp, alls um 30 talsins. Þar af var um tylft stórra senda, móttakara og segulbanda. Flest tækin höfðu rússneskar áletranir, en sums stað­ ar hafði verið reynt að afmá stafina. Alls vógu tækin nokkur hundruð kíló. Þeir bræður fóru með tækin heim til Guðmundar og hringdu því næst í Torfa Ólafsson, móðurbróður sinn, og báðu hann um aðstoð við að þýða áletranirnar, en Torfi var þá við nám í rússnesku. Hann ráðlagði þeim bræðrum að gera lögreglu viðvart. Það varð úr og lögreglan tók tækin í sína vörslu. Í samtali við blaðamann létu piltarnir þess getið að þeir hefðu kafað á sama stað tveimur mánuðum fyrr og orðið einskis varir. Fyrirferðarmikill sendiráðspóstur Gústav Arnar, verkfræðingur hjá Landssímanum, taldi að tækin hefðu aðeins legið í vatninu í nokkra daga, alls ekki lengur en fáeinar vik­ ur. Öll tæki af þessu tagi bar að skrá hjá símanum en sendiráð gátu flutt inn slík tæki án vitundar Landssím­ ans, en ekki var þó kunnugt um að nein rússnesk fjarskiptatæki hefðu verið flutt hingað til lands. Ýmsir höfðu þó undrast hversu fyrir­ ferðarmikill sendiráðspóstur Sovét­ manna hafði stundum verið og hér var ef til vill að finna hluta skýr­ ingarinnar. Lögregla lét framkvæma ítarlegri leit í Kleifarvatni næstu daga og fundust þá fleiri lítil fjarskiptatæki með rússneskum áletrunum, sem reynt hafði verið að skrapa af. Tæk­ in voru vafinn inn í plastglugga­ tjöld, ekki ósvipuð þeim og höfð eru fyrir baðherbergisgluggum. Geysiöflug tæki Móttökutækin voru álitin geysi­ öflug. Hið stærsta reyndist vera öfl­ ugt stuttbylgjutæki. Tæknimenn Landssímans töldu það vera 15–20 ára gamalt, en hin flest yngri. Mesta athygli vöktu örbylgju­ tæki fyrir tíðnisviðið 800 MHz–2 GHz, en það er notað til flutnings á talsímarásum, en Atlantshafs­ bandalagið notaði þetta tíðnisvið til flutnings talsímarása frá Banda­ ríkjunum til Evrópu og voru tvær stöðvar í þeirri keðju á Íslandi. Rannsókn leiddi í ljós að tækin voru nær öll af rússneskri gerð. Þó var þarna að finna þrjú tæki vestrænnar gerðar. Á þeim mátti finna verksmiðjunúmer og nánari athugun leiddi í ljós að þau höfðu verið seld til Sovétríkjanna. Sovéska sendiráðið í Reykjavík harðneitaði að eiga nokkurn hlut að þessu máli og neitaði að svara frekari spurn­ ingum íslensku blaðanna um mál­ ið. Ölvaður ökumaður Ferðir rússneskra sendiráðsbifreiða nærri Kleifarvatni höfðu lengi vakið athygli lögreglunnar í Hafnar firði og laugardaginn 15. september, viku eftir að tækin fundust, sagði frá því í fréttum að einhvern síðustu dag­ ana í ágúst hefði rússneskum sendi­ ráðsbíl hvolft við Kleifarvatn, en Fundu torkennileg tæki í Kleifarvatni n Rússnesk njósnatæki finnast á botni Kleifarvatns n Umfangsmiklar njósnir Sovétmanna hér á landi Björn Jón Bragason bjornjon@dv.is Fréttir úr fortíð Óvæntur fundur Hluti tækjanna sem fundust á botni Kleifarvatns. Miðborgin Í sovéska sendiráðinu voru til staðar tæki til að hlera samtöl sem fóru í loftið frá Landssímahúsinu við Austurvöll sem hér sést á myndinni, hægra megin ofarlega. Smart haustfatnaður fyrir smart konur Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464 Stærðir 38-54

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.