Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 38
38 Menning Helgarblað 23.–26. október 2015 Þurfum að rækta útópíurnar n Félagsfræðiprófessorinn Erik Olin Wright segir andstæðinga kapítalismans þurfa að beita R aunveruleg útópía er hugtak sem ég nota til að hugsa um ákveðna aðferð við að um- breyta samfélaginu. Raun- veruleiki og útópía eru orð sem passa yfirleitt ekki vel saman. Útópía eru draumsýn um hinn full- komna heim og raunsæismenn sem vilja hafa raunveruleg áhrif segjast yfirleitt ekki trúa á slíka staðleysu,“ segir Erik Olin Wright, prófessor í félagsfræði við Madison-háskóla í Wisconsin í Bandaríkjunum. Wright vakti fyrst athygli á áttunda áratugnum fyrir rannsóknir sínar á stéttaskiptingu og stéttaátök- um en á hefur á undanförnum ára- tugum einbeitt sér að rannsókn- um á „raunverulegum útópíum.“ Wright hélt fyrirlestur í Háskóla Ís- lands á fimmtudag og talar einnig á landsfundi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á laugardag. Útópíur sem byggingarefni framtíðarinnar „Þetta hugtak á að sameina annars vegar þann metnað sem útópían stendur fyrir – að sjá fyrir sér annars konar og frjálsara samfélag á hug- vitsamlegan hátt – og svo hins vegar áhuga á því hvernig samfélagsleg ný- sköpun á sér stað í dag, það er athug- un á virkni nýstárlegra stofnana, hverjar óvæntar hliðarafleiðingar þeirra geta verið, hvernig sumar eru ósjálfbærar og geta ekki viðhaldið sér, á meðan eðli annarra er að viðhalda sér og vaxa.“ Raunverulega útópía samkvæmt skilgreiningu Wright er rými, hópur, fyrirtæki eða samfélag sem er byggt upp á annars konar valdatengslum en þeim kapítalísku sem hann segir ríkjandi í efnahagskerfi samtímans. En hvaða skilyrði þarf verkefni að uppfylla til að teljast útópía? „Í fyrsta lagi þarf það að varpa upp mynd af annars konar samfé- lagsgerð sem er meira í takt við gildi okkar – þau þrjú gildi sem ég tel að þurfi að liggja til grundvallar sam- félagsgerðinni eru jöfnuður, lýðræði og samfélag. Í öðru lagi þarf að vera mögulegt að koma henni á fót í heim- inum eins og hann er í dag. Næst get- um við svo reynt að hugsa upp leið- ir til að breyta stefnu stjórnvalda og sveitarstjórna svo hún geri þessum verkefnum kleift að dafna og verða að stærri hluta efnahagsumhverfis- ins. Ef raunverulegu útópíurnar stækka og dreifa almennilega úr sér geta þær orðið að byggingarefni í samfélagsgerð framtíðarinnar.“ Dæmin sem Wright tekur um raunverulegar útópíur sem eru nú þegar hluti af samfélagi okkar eru til að mynda samvinnufyrirtæki sem stjórnað er á lýðræðislegan hátt af starfsfólki, samráðsvettvangur borg- ara um fjárhagsmál sveitarfélaga, al- menningsbókasöfn og Wikipedia- alfræðiorðabókin. Í þessum verkefnum eru lýðræðislegir stjórn- arhættir iðkaðir og algjör jöfnuð- ur ríkir milli allra þátttakenda. Þetta eru verkefni sem hafa önnur og fleiri markmið en einungis að skapa efna- hagslegan gróða fyrir eigendur. Samfélagið er eins og lífkerfi Wright færir rök fyrir því að gagn- rýnendur kapítalismans á 21. öldinni þurfi að beita öðrum aðferðum í dag en þóttu vænlegar til árangurs á 19. og 20. öldinni. Hvorki sé vænlegt að einblína á vopnaða byltingu sem gjörbreytir samfélaginu á einu bretti né sósíaldemókratískar umbæt- ur á lagarammanum. Wright telur hins vegar að hin ókapítalísku rými – raunverulegu útópíurnar – geti smám saman vaxið og náð yfir æ stærri hluta samfélagsins og þannig sorfið kapítalismann innan frá, á svipaðan hátt og kapítalisminn birt- ist sjálfur smám saman í afkimum lénsskipulagsins á seinni hluta mið- alda. Til að útskýra hvernig þetta get- ur gerst líkir Wright samfélaginu við lífkerfi: „Það eru til að minnsta kosti tvær myndir af því hvað samfélags- kerfi er. Ein leið til að hugsa um sam- félagið er að hugsa um það sem líf- veru, eins og til dæmis manneskju. Manneskjan er með marga ólíka hluta sem allir passa saman og þjóna sínum tilgangi við að láta heildina ganga almennilega. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Handan kapítal- ismans Erik Olin Wright segir of mikla samþjöppun valds í hendur fárra einstak- linga óhjákvæmilega eiga sér stað í kapítal- ísku efnahagskerfi. Mynd SiGtryGGur Ari „Ég lít á efna- hagskerfið eins og lífkerfi, núna eru kapítal- ísk valdatengsl ríkjandi og þau ákvarða að mestu leyti hvernig fólk getur orðið sér út um lífsviður- væri. „Útópía eru draum- sýn um hinn fullkomna heim og raunsæis menn sem vilja hafa raunveruleg áhrif segjast yfirleitt ekki trúa á slíkar staðleysur. R akarinn frá Sevilla er há- rómantískt gamanverk um greifann Almaviva og hina fögru Rosinu sem hann er ástfanginn af. Rosinu er haldið í stofufangelsi heima hjá fóstra hennar, doktor Bartolo, sem sjálfur ætlar að kvænast henni. Að- eins hinn ráðagóði rakari Figaro getur komið hinum ungu hjóna- leysum til aðstoðar og upphefst þá ófyrirséð atburðarás með ótrúleg- ustu flækjum. Bjarni var stjarna kvöldsins Gissur Páll Gissurarson fer með hlutverk Almaviva og gerir það listilega vel. Hann hefur sennilega verið að jafna sig af kvefi á frum- sýningunni þar sem hann var nokk- uð rámur á toppnótunum, en að öðru leyti var hann óaðfinnanlegur og töluvert kómískari Almaviva en gengur og gerist. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söng Rosinu vel en mér fannst eins og hún klemmdi fyrir loftflæðið svo kólóratúrinn barst ekki nógu vel á aftasta bekk. Oddur Arnþór Jónsson var stór- fenglegur Figaro, ekki jafn kraft- mikill og maður hefur átt að venj- ast, en svo óviðjafnanlega elskur að sjálfum sér í öllu látæði og lýrískt sunginn að unun var á að horfa. Bjarni Thor Kristinsson var ekkert annað en stórkostlegur í hlutverki Bartolos; hann lék sér svoleiðis að hlutverkinu að það var greinilegt að hann skemmti sér ekki síður en áhorfendur. Sá sem þetta ritar vissi ekki hvert hann ætlaði þegar Bjarni raðaði í sig espressóbollum og söng A un dottor della mia sorte með tæknilegri snilld. Stórsigur. Bjarni Thor var stjarna kvöldsins. Viðar Gunnarsson fór með hlut- verk hins ógeðfellda Don Basilio sem allt sviðið fer í flæmingi und- an vegna fnyks. Viðar var í fanta- formi og skilaði sínu hlutverki afar vel. Valgerður Guðnadóttir var sömuleiðis frábær í hlutverki Bertu og skilaði sinni einu aríu eftirminni- lega. Ágúst Ólafsson var svo góður í hlutverki Fiorellos að mér lá við að áfellast Rossini í huganum fyrir að hafa ekki skrifað hann inn nema í fyrstu senu. Ásgeir Eiríksson var ágætur í hlutverki herforingjans. Enn fyndið 199 árum seinna Það sem gerir gamanleiki er tíma- setning og samspil, og það skorti svo sannarlega ekki hér. Frá upp- hafi sýningar er ljóst að mikill metn- aður hefur verið lagður í að skila húmornum til áhorfenda og sannast þar að ópera frá öndverðri 19. öld getur enn verið sprenghlægileg 199 árum eftir frumsýningu. Tímasetn- ingar voru óaðfinnanlegar og senur þar sem Oddur heldur Gissuri Páli spriklandi uppi á hnakkadrambinu svo að segja, og aðrar eins, allt á meðan sungið er, sýna hversu vönd- uð leikstjórn Ágústu Skúladóttur er. Samspil söngvaranna er fullkomið og þá vil ég sérstaklega nefna Huld Óskarsdóttur og Sigurlaugu Knud- sen sem voru frábærar í hlutverki þjónustustúlknanna sem settu sannarlega sinn svip á verkið í heild. Þær voru yfir og allt um kring og bráðfyndnar án þess nokkru sinni að mæla orð af vör. Tónlistarflutningur hljómsveitar Íslensku óperunnar undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar var óaðfinnanlegur og kórinn skil- aði sínu vel. Leikmynd Steffens Aarfing hentaði verkinu með sín- um björtu litum og meðfærileika og ljósahönnun Jóhanns Bjarna Pálma- sonar fór henni vel. Búningar Maríu Th. Ólafsdóttur voru skemmtilegir og tímalausir, en þó með yfirbragð eldri tíma. Einkum þótti mér bún- ingur rakarans flottur og hæfa hans metrósexúal persónuleika. Í heildina séð er Rakarinn frá Sevilla í uppsetningu Íslensku óper- unnar hin dásamlegasta skemmtun, Hvað er gleði nema þetta? Um Rakarann frá Sevilla eftir rossini Arngrímur Vídalín ritstjorn@dv.is Leikhús Rakarinn í Sevilla Söngvarar: Oddur Arnþór Jónsson, Gissur Páll Gissurarson, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Bjarni Thor Kristinsson og Jóhann Smári Sævarsson, Kristinn Sigmundsson og Viðar Gunnarsson, Ágúst Ólafsson og Valgerður Guðnadóttir. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir, Búningar: María Ólafsdóttir, Leikmyndahöfundur: Steffen Aarfing, Ljósahönnuður: Jóhann Pálmi Bjarnason, Hljómsveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson. „ Í heildina séð er Rakarinn frá Sevilla í uppsetningu Ís- lensku óperunnar hin dásamlegasta skemmt- un, stórfyndin og fallega framsett, vel sungin og frábærlega leikin. 1 HundadagarEinar Már Guðmundsson 2 HrellirinnLars Kepler 3 Skuggasaga-Arf-takinn Ragnheiður Eyjólfsdóttir 4 Þarmar með sjarmaGiulia Enders 5 GildranLilja Sigurðardóttir 6 Íslensk litadýrðElsa Nielsen 7 Stúlkan í trénuJussi Adler-Olsen 8 Grimmi tannlækn-irinn David Walliams 9 Sjóveikur í MünchenHallgrímur Helgason 10 LausninEva Magnúsdóttir Metsölulisti Eymundsson 14.–20. október 2015 Allar bækur Barnabækur 1 Skuggasaga- Arftakinn Ragnheiður Eyjólfsdóttir 2 Grimmi tannlækn-irinn David Walliams 3 VetrarfríHildur Knútsdóttir 4 Leyndardómur erfingjans Guðni Líndal Benediktsson 5 Drauga-DísaGunnar Theodór Eggertsson 6 DúkkaGerður Kristný 7 Strákurinn í kjólnum David Walliams 8 Náðu forskoti Verk-efnabók 4-5 ára Jo Cambers 9 Goðheimar 6 – Gull-eplin Peter Madsen 10 Mói hrekkjusvín - landsmót hrekkju- svína Kristín Helga Gunnarsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.