Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Qupperneq 44
Helgarblað 23.–26. október 201544 Fólk
S
lúðurmiðlar vestanhafs
halda ekki vatni yfir hraust-
legu útliti Kourtney Kar-
dashian og halda því fram að
raunveruleikastjarnan hafi
sjaldan eða aldrei litið jafn vel út.
Skilin í formi
Eins og þeir vita sem fylgjast með
stjörnunum í Hollywood þá er þessi
þriggja barna móðir nýhætt með
barnsföður sínum, djammaran-
um, Scott Disick, eftir áralangt sam-
band. Kourtney er dugleg að birta
myndir af sér á samfélagsmiðlunum
og sér í lagi þegar hún er í ræktinni.
Á Instagram-reikingi sínum birti
Kourntey nýlega glæsilega mynd af
sér þar sem hún sagðist fara í rækt-
ina til að losna við stress en eins og
kunnugir vita er sjaldan lognmolla í
kringum Kardashian-systur.
Mágurinn á sjúkrahúsi
Kourtney og Scott eiga
saman börnin Mason,
Penelope og Reign
Aston sem fæddist fyrir
tæpu ári. Samband
þeirra hefur oft staðið á
brauðfótum en upp úr
því slitnaði endanlega fyrir þrem-
ur mánuðum. Mikið álag hefur verið
á fjölskyldunni eftir að fyrrverandi
körfuboltastjarn-
an Lamar Odom,
fyrrverandi eigin-
maður Khloé,
systur Kourtney,
lá fyrir dauðan-
um eftir að hafa
misst meðvitund á
vændishúsi. Lam-
ar dvelur enn á
sjúkrahúsi en sam-
kvæmt fréttum fer
ástand hans hægt
batnandi.
Scott í meðferð
Fleiri en
Lamar dvelja á
sjúkrastofnunum
því degi eftir að
íþróttastjarnan
var lögð inn skráði
Scott sig í með-
ferð en hann hefur lengi barist við
áfengis- og fíkniefnavanda. Scott
hefur djammað stíft eftir sambands-
slitin sem hann tók mjög nærri sér
eins og áhorfendur Keeping up with
the Kardashians sáu í
tárvotum sjónvarps-
þætti þar sem Disick
ræddi um skilnaðinn.
Fær ekki að
hitta börnin
Kunnugir segja Scott
hafa náð botninum
og sé loksins tilbúinn
til að leita sér hjálpar.
Kourtney hafi bann-
að honum að umgang-
ast börnin nema und-
ir eftirliti og fréttirnar
af Lamar, vini hans,
hafi sett hlutina í sam-
hengi. „Hann hringir
reglulega í Kourtney til
að fá fréttir af Lamar
og var svo glaður þegar
hann frétti að hann væri að jafna
sig. Hann vildi geta heimsótt hann
á sjúkrahúsið en verður að huga að
eigin heilsu fyrst,“ lét ónafngreindur
vinur Scotts hafa eftir sér við blaða-
mann tímaritsins Hollywood Life. n
Losnar
við stressið
í ræktinni
Kourtney Kardashian hefur aldrei litið betur út
Hætt kominn Íþróttastjarnan og fyrrverandi maki Khloé Kardashian var hætt kominn
eftir að hafa misst meðvitund á vændishúsi.
Systur Það er sjaldan
lognmolla í kringum
Kardashian-systur.
Gella Kourtney hefur verið dug-
leg í ræktinni eftir skilnaðinn.
Burt með stressið Raunveruleika-
stjarnan segist sigrast á álaginu með
því að vera dugleg að hreyfa sig.
Þegar allt lék í lyndi Að sögn vina Scotts hefur
hann náð botninum og tilbúinn til að fá hjálp.
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is