Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Blaðsíða 2
Vikublað 3.–5. nóvember 20152 Fréttir
Skip sökk
í Reykja-
víkurhöfn
Sanddæluskipið Perlan sökk í
Reykjavíkurhöfn í gær. Verið var
að sjóseta skipið sem hafði verið
í slipp þegar slysið varð. Fregn
ir herma að um mannleg mis
tök hafi verið að ræða. Öllum
var komið frá borði en svo virð
ist vera sem gleymst hafi að loka
botnlokum með þeim afleiðing
um að skipið sökk hratt. Perlan
er minnsta sanddæluskip sem
hefur verið gert út frá árinu 1979.
Skipið er notað til dýpkana, land
fyllingar og annarra skyldra verk
efna.
Símanotkun
olli bílslysi
Umferðaróhapp varð rétt eftir
klukkan ellefu á sunnudagskvöld.
Tilkynnt var um bílstjóra sem
hafði ekið á grindverk. Í skeyti frá
lögreglu segir að bílstjórinn hafi
verið að aka suður Sæbraut við
Holtaveg þegar hann ók upp á
vegkant á gatnamótunum.
Bifreiðin fór á grindverk og
umferðarljós sem skemmdust.
Bílstjórinn og farþegi í bílnum
slösuðust þó ekki en nokkurt tjón
varð á bílnum.
Bílstjórinn viðurkenndi að
hafa verið að senda smáskilaboð
þegar óhappið átti sér stað.
K
ristinn Björnsson, fyrrver
andi forstjóri Skeljungs, er
látinn eftir skammvinn veik
indi. Kristinn var 65 ára,
fæddur 17. apríl 1950.
Kristinn var umsvifamikill í ís
lensku atvinnulífi en hann útskrif
aðist frá MR árið 1970. Hann lauk
lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands
árið 1975. Árið 1982 varð Kristinn
forstjóri NóaSíríuss og Hreins hf. og
gegndi því starfi uns hann var ráðinn
forstjóri Skeljungs árið 1990. Hann
gegndi því starfi til ársins 2003 er
hann lét af störfum.
Frá árinu 2005 var hann einn
eigenda Líflands ehf. og starfandi
stjórnarformaður þess. Kristinn sat
í stjórnum fjölda fyrirtækja, eins og
Sjóvá, Eimskipum, Haraldi Böðvars
syni hf., Straumi fjárfestingabanka og
fleiri. Þá átti hann sæti í stjórn Árvak
urs, útgáfufélags Morgunblaðsins, á
árunum 2005 til 2008.
Kristinn lætur eftir sig eiginkonu,
Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi
dómsmálaráðherra og fyrrverandi
þingmann Sjálfstæðisflokksins. Þau
eignuðust þrjú börn: Pét ur Gylfa,
Björn Hall grím og Em il íu Sjöfn. n
Kristinn er látinn
Fyrrverandi forstjóri Skeljungs fallinn frá
Segist dáleiða fólk
svo það grennist
J
ón Víðis Jakobsson dávald
ur býður upp á svokallaða
sýndarmagabandsmeðferð
fyrir þá sem vilja losna við
aukakílóin án þess að fara í erf
iða og kostnaðarsama aðgerð. Með
ferð Jóns Víðis byggist á dáleiðsluað
ferð sem hann hefur prófað á sjálfum
sér og með góðum árangri, að eigin
sögn.
„Engin töfrabrögð í
gangi, þetta virkar“
„Ég fór til Las Vegas til að læra sviðs
dáleiðslu og þá var boðið upp á að
læra þessa aðferð. Mér fannst þetta
hljóma eins og einhver töfralausn
en það eru engin töfrabrögð í gangi,
þetta virkar,“ segir Jón og bætir við:
„Ég fór sjálfur í svona meðferð
fyrir um tveimur árum og á einu ári
léttist ég um 30 kíló. Ég borðaði sama
mat og áður en ég varð fyrr saddur og
því borðaði ég minna.“
Jón segir meðferðina vera ein
falda. Hann sé ekki að bjóða upp á
aðgerð og það eina sem tengir hans
meðferð við magabandsaðgerð sé að
eftir dáleiðsluna fái fólk sömu tilf
inningu og eftir slíka aðgerð.
„Magabandið er viðlíking því fólk
fer ekki í aðgerð en áhrifin eru þau
sömu. Eftir dáleiðsluna langar fólk
að borða minna og ef fólk borðar
minna þá léttist það. Ég prófaði að
ferðina fyrst á nokkrum vinum og
hún virkaði. Því ákvað ég að halda
áfram og bjóða fleirum upp á hana.“
Segir dáleiðslu hafa
mismunandi áhrif á fólk
Jón segir að dáleiðsla sé í raun það
ástand sem fólk upplifir rétt áður en
það sofnar eða vaknar. Hann segir að
með réttri aðferð sé hægt að hjálpa
fólki við nánast hvað sem er.
„Með dáleiðslu er hægt að hjálpa
fólki við að gera ýmislegt, eins og að
hætta að reykja eða ná betri árangri
í íþróttum. Það byggist allt á fólkinu
sjálfu. Sem dæmi kom ung íþrótta
kona til mín fyrir skemmstu. Henni
gekk alltaf mun betur á æfingum en
í keppni og vildi bæta úr því. Með
dáleiðslu var hægt að hjálpa henni
svo að árangur hennar í keppni varð
betri.“
Jón segir að nokkrir tugir hafi leit
að til hans og beðið um umrædda
sýndarmagabandsmeðferð. Hann
segir hana virka svo lengi sem fólk sé
tilbúið að fylgja fyrirmælunum.
„Vandamálið er að fólk á erfitt
með að stoppa sig af þegar það
borðar. Þar kemur dáleiðslan inn í.
Áhrifin eru mismunandi eftir fólki.
Sumir fá þá tilfinningu eins og það sé
raunverulegt magaband inni í þeim
og sumir ekki. Ég fékk sem dæmi
ekki þá tilfinningu en það skiptir
ekki máli. Það sem skiptir máli er að
fólk borðar minna eftir meðferðina,“
segir Jón og bætir við að hann fylgi
viðskiptavinum eftir, sé þess óskað.
„Sumir koma aftur og vilja auka
áhrifin, ekki ólíkt því þegar fólk lætur
strekkja á bandinu eftir aðgerðina.“
Jón segir að sýndarmagabands
meðferðin fari fram í fimm mis
munandi tímum og alls kosti með
ferðin 50 þúsund krónur, en stakur
dáleiðslutími hjá Jóni kostar að jafn
aði 12 þúsund krónur. Á Facebook
síðunni: „Dáleiðarinn Jón Víðis“
vitnar Jón í fjölda ónafngreindra að
ila sem hafa farið í meðferðina hjá
honum og láta mjög vel af henni.
„Ég fann strax eftir fyrsta tímann
að mig langaði ekki í meiri mat og
það var auðvelt að borða minna“ –
maður úr Reykjavík
„Ég finn að fötin eru strax farin að
verða laus utan á mér en mér finnst
ég ekki vera að gera neitt öðruvísi.“
– kona úr Reykjavík, segir á síðunni.
Hjúkrunarfræðingur efast
Á vef Magabands er hægt að finna
ýmsar upplýsingar um magabands
aðgerðina. Aðgerðin, sem fram
kvæmd er með kviðsjá, tekur um 30
mínútur, sjúklingurinn er svæfður og
útskrifaður samdægurs.
Auðunn Sigurðsson, skurðlækn
ir á Domus Medica, er sá eini sem
framkvæmir magabandsaðgerð
hér á landi. Ekki náðist í Auðun við
gerð fréttarinnar en DV náði í Sigríði
Einarsdóttur hjúkrunarfræðing sem
starfað hefur um árabil með Auðuni
Sigríður segist ekki þekkja
dáleiðsluna nógu vel til að geta full
yrt hvort hún skili sömu niðurstöðu
og aðgerðin eða ekki.
„Ég get ekki svarað já eða nei.
Persónulega hef ég þó ekki trú á að
dáleiðslan skili sama árangri, þá sér
staklega þegar litið er til langtíma
áhrifa.“
Í aðgerðinni er silíkonbandi, með
blöðru, komið fyrir inni í kviðarholi
og bandið sett utan um magann.
Þau hjá Magabandi segja að silíkon
bandið sé í raun ekki lausn, heldur
hjálpartæki. Þeir sem fara í aðgerð
þurfa að leggja hart að sér til að að
gerðin skili árangri. Þá er fylgst með
sjúklingum eftir aðgerðina, en þeir
mæta mánaðarlega til læknis eða
hjúkrunarfræðings fyrsta árið eftir
aðgerð.
Ekki eru mörg ár síðan aðgerðin
var fyrst framkvæmd hér á landi. Þó
hafa nokkur hundruð manns farið í
hana á síðastliðnum árum. Þeir sem
fara í aðgerðina bera allan kostnað af
henni sjálfir og kostar hún hundruð
þúsunda króna. n
n Hjúkrunarfræðingur efast n Jón Víðis lærði sviðsdáleiðslu í Las Vegas
Johann Skúli Björnsson
johannskuli@dv.is „Ég borðaði sama
mat og áður en ég
varð fyrr saddur og því
borðaði ég minna.
Jón Víðis Jakobsson Hér má sjá Jón í öðrum tíma meðferðarinnar.
Sveppasýkingar
- í húðfellingum -
Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is
Einföld og áhrifarík, húðvæn meðferð
Þægilegur grisjuborði, passar í nára, undir brjóst og magafellingar.
Engin krem eða duft.
Sorbact - Græn sáralækning
Klíniskar rannsóknir sýna
bata á sveppasýkingu*
hjá yr 85% þátttakenda
*candida albicans
Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast allir helstu sárasýklar og
sveppir við umbúðirnar. Sýklarnir verða óvirkir og hætta
að ölga sér, án sýkla- eða sveppadrepandi efna. Virkar
á VRE og MOSA sárasýkla. Skaðar ekki nýjar frumur.
Ótakmörkuð notkun. Engar aukaverkanir. Ekkert ofnæmi.