Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Blaðsíða 21
Vikublað 3.–5. nóvember 2015 Kynningarblað - Viðburðir & skemmtanir 5 F ólk á öllum aldri skemmtir sér konunglega í Laser Tag, Sala- vegi 2, Kópavogi. Laser Tag er hágæða útgáfa af skemmti- legum afþreyingarleik þar sem þátttakendur klæðast Laser Tag-vestum og fela sig, elta og hitta andstæðinginn með laserbyssu. Leikurinn er fyrir fólk á öllum aldri, unga sem aldna. Laser Tag er 100% skemmtun! Byssurnar eru skaðlausar laser-/ geislabyssur með innrauðum geislum. Laser Tag er því fullkomin skemmtun, laus við marbletti! Hafa ber í huga að í salnum eru blikkandi ljós og leikmyndareykur. Frábær skemmtun fyrir fyrirtækjahópa í hádeginu Helena Rúnarsdóttir hjá Laser Tag segir að nú sé vinsælt hjá vinnustöð- um að koma í Laser Tag í hádeginu og efla hópinn með góðri afþreyingu. Hádegismaturinn getur þá fylgt með enda er hægt að fá pakkann með pít- su og gosi. Helena segir annars að Laser Tag sé skemmtun fyrir fólk á öll- um aldri, frá átta ára og upp úr. „Við miðum við átta ára aldur vegna þess að yngri börn valda ekki vestunum og byssunum, þetta er of þungt fyrir þau. Hins vegar er þetta aldurstakmark bara til leiðbeiningar, ef það kemur hingað fjölskylda og einn í hópnum er sex ára þá er það auðvitað ekkert mál.“ Helena segir að fullorðið fólk á öllum aldri hafi ekki síður gaman af Laser Tag en börn: „Hingað kom amma um daginn sem var að halda upp á sjötugsaf- mælið sitt og hún var bæði með börnin og barnabörnin með í för.“ Afmælishópar eru mjög algengir viðskiptavinir hjá Laser Tag en einnig koma fjölskyldur og fyrirtækjahópar, auk þess sem þetta er vinsæl skemmt- un í steggjunum og gæsunum. Er þetta dýr eða ódýr skemmtun? „Ég myndi segja að við værum sanngjörn í verði. Við höfum reynd- ar ekki hækkað verðið hjá okkur í fimm til sex ár og bjóðum samt upp á bestu og öflugustu tækin,“ segir Helena. Hún minnir á að opnunar- tíminn sé bara til viðmiðunar og reynt sé að koma til móts við óskir allra um tímasetningar. En hvað eru hóparnir stórir? „Við höfðum tekið alveg upp í 50 manna hópa en svo stórum hópum þurfum við að skipta niður í lið því við komum 15 manns inn í salinn í einu, sem er mjög þægileg stærð.“ Mjög mikið er bókað hjá Laser Tag um þessar mundir og segir Helena að gott sé að panta með sjö til tíu daga fyrirvara. Hins vegar get- ur fólk alltaf hringt og reynt er að koma til móts við óskir þess hvenær sem er. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Laser Tag, lasertag. is. Tímapantanir fara á netfangið lasertag@lasertag.is eða í síma 564- 6644. n „Hingað kom amma um daginn sem var að halda upp á sjötugsafmælið sitt og hún var bæði með börnin og barnabörnin með í för. Laser Tag: Frábær skemmtun fyrir fjölbreytta hópa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.