Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Page 21
Vikublað 3.–5. nóvember 2015 Kynningarblað - Viðburðir & skemmtanir 5
F
ólk á öllum aldri skemmtir sér
konunglega í Laser Tag, Sala-
vegi 2, Kópavogi. Laser Tag er
hágæða útgáfa af skemmti-
legum afþreyingarleik þar
sem þátttakendur klæðast Laser
Tag-vestum og fela sig, elta og hitta
andstæðinginn með laserbyssu.
Leikurinn er fyrir fólk á öllum aldri,
unga sem aldna. Laser Tag er 100%
skemmtun!
Byssurnar eru skaðlausar laser-/
geislabyssur með innrauðum
geislum. Laser Tag er því fullkomin
skemmtun, laus við marbletti! Hafa
ber í huga að í salnum eru blikkandi
ljós og leikmyndareykur.
Frábær skemmtun fyrir
fyrirtækjahópa í hádeginu
Helena Rúnarsdóttir hjá Laser Tag
segir að nú sé vinsælt hjá vinnustöð-
um að koma í Laser Tag í hádeginu
og efla hópinn með góðri afþreyingu.
Hádegismaturinn getur þá fylgt með
enda er hægt að fá pakkann með pít-
su og gosi. Helena segir annars að
Laser Tag sé skemmtun fyrir fólk á öll-
um aldri, frá átta ára og upp úr.
„Við miðum við átta ára aldur
vegna þess að yngri börn valda ekki
vestunum og byssunum, þetta er of
þungt fyrir þau. Hins vegar er þetta
aldurstakmark bara til leiðbeiningar,
ef það kemur hingað fjölskylda og
einn í hópnum er sex ára þá er það
auðvitað ekkert mál.“
Helena segir að fullorðið fólk á
öllum aldri hafi ekki síður gaman af
Laser Tag en börn:
„Hingað kom amma um daginn
sem var að halda upp á sjötugsaf-
mælið sitt og hún var bæði með
börnin og barnabörnin með í för.“
Afmælishópar eru mjög algengir
viðskiptavinir hjá Laser Tag en einnig
koma fjölskyldur og fyrirtækjahópar,
auk þess sem þetta er vinsæl skemmt-
un í steggjunum og gæsunum.
Er þetta dýr eða ódýr skemmtun?
„Ég myndi segja að við værum
sanngjörn í verði. Við höfum reynd-
ar ekki hækkað verðið hjá okkur í
fimm til sex ár og bjóðum samt upp
á bestu og öflugustu tækin,“ segir
Helena. Hún minnir á að opnunar-
tíminn sé bara til viðmiðunar og
reynt sé að koma til móts við óskir
allra um tímasetningar.
En hvað eru hóparnir stórir?
„Við höfðum tekið alveg upp í 50
manna hópa en svo stórum hópum
þurfum við að skipta niður í lið því
við komum 15 manns inn í salinn í
einu, sem er mjög þægileg stærð.“
Mjög mikið er bókað hjá Laser
Tag um þessar mundir og segir
Helena að gott sé að panta með sjö
til tíu daga fyrirvara. Hins vegar get-
ur fólk alltaf hringt og reynt er að
koma til móts við óskir þess hvenær
sem er.
Nánari upplýsingar má fá á
heimasíðu Laser Tag, lasertag.
is. Tímapantanir fara á netfangið
lasertag@lasertag.is eða í síma 564-
6644. n
„Hingað kom
amma um daginn
sem var að halda upp á
sjötugsafmælið sitt og
hún var bæði með börnin
og barnabörnin með í för.
Laser Tag: Frábær
skemmtun fyrir
fjölbreytta hópa