Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Page 4
Vikublað 3.–5. nóvember 20154 Fréttir
Rúnar ráðinn
Rúnar Pálmason var valinn úr
stórum hópi umsækjenda til að
taka við starfi upplýsingafull-
trúa Landsbankans. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá bankanum.
Rúnar mun að sögn starfa innan
markaðs- og samskipta deildar
bankans og hafa umsjón með
samskiptum við fjölmiðla fyrir
hönd bankans. Hann „er með
BA-gráðu í sagnfræði og stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands
og MA-gráðu í Evrópufræðum
frá Háskólanum í Maastricht í
Hollandi. Rúnar var blaðamað-
ur og vaktstjóri á fréttadeild
Morgunblaðsins á árunum 2000–
2013. Hann hóf störf sem vefrit-
stjóri hjá Landsbankanum í mars
2013.“
Vagnstjórar
selja ekki miða
Farmiðar verða ekki til sölu hjá
vagnstjórum Strætó eftir áramót.
Ástæðan er ört dvínandi eftir-
spurn í vögnunum og aukin
áhersla á rafræn fargjöld, að því
er kemur fram í tilkynningu frá
Strætó bs. „Farmiðar verða áfram
seldir hjá tæplega 30 söluaðilum
Strætó víðs vegar á höfuðborgar-
svæðinu, gegnum heimasíðu
Strætó og í Strætó-appinu.“
Ragnar og Jón Helgi
heimtuðu rannsókn
Ragnar Árnason og Jón Helgi Egilsson áttu frumkvæði að úttekt á gjaldeyriseftirliti SÍ
R
agnar Árnason og Jón Helgi
Egilsson, hagfræðingar og
bankaráðsmenn Seðla-
banka Íslands, höfðu frum-
kvæði að rannsókninni á
framkvæmd gjaldeyrisreglna bank-
ans sem ráðið samþykkti í síðustu
viku. Samkvæmt heimildum DV
lögðu þeir fram tillögu þess efnis
í september síðastliðnum, ásamt
Ingva Hrafni Óskarssyni, varamanni
í bankaráðinu, í kjölfar ákvörðunar
embættis sérstaks saksóknara um
að falla frá málsókn vegna meintra
gjaldeyrisbrota Samherja. Ráðið
taldi hins vegar óskynsamlegt að
leggja tillöguna fram á þeim tíma þar
sem hún gæti raskað vinnu gjald-
eyriseftirlits bankans við mat á stöð-
ugleikaframlögum slitabúa föllnu
bankanna og undanþágubeiðnum
þeirra frá fjármagnshöftum.
Vildi úttekt
Samkvæmt ályktun bankaráðsins,
sem það samþykkti síðasta fimmtu-
dag og Seðlabankinn birti í gær, telur
það að tilefni sé til óháðrar úttektar á
stjórnsýslu bankans við framkvæmd
gjaldeyriseftirlits, undanþágubeiðna
og gjaldeyrisrannsókna. Morgun-
blaðið hafði þá greint frá málinu
og fullyrt að bankinn hafi beðið
starfsmenn Lagastofnunar Há-
skóla Íslands um að taka rannsókn-
ina að sér. Í ályktuninni segir að til-
efni hennar sé bréf sem Tryggvi
Gunnarsson, umboðsmaður Alþing-
is, sendi ráðinu, fjármálaráðherra,
seðlabankastjóra og stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd Alþingis í október-
byrjun. Bankaráðið hafi vegna efn-
is bréfsins óskað eftir umsögn
yfir stjórnar Seðlabankans um það
og vilji einnig skoða hvort ástæða sé
til að skýra verksvið og lagaheimildir
hans á sviðum gjaldeyriseftirlits- og
rannsókna.
Ekki náðist í Jón Helga við vinnslu
fréttarinnar en hann er varaformaður
bankaráðsins. Ragnar sagðist í sam-
tali við DV ekki vilja tjá sig um hvað
fari fram á fundum bankaráðsins. „Ég
hef verið talsmaður þess að það verði
gerð úttekt á framkvæmd gjaldeyris-
eftirlits Seðlabankans að marggefnu
tilefni,“ segir Ragnar.
Framkvæmdastjóri gjaldeyris-
eftirlits Seðlabankans er Ingibjörg
Guðbjartsdóttir en hún hefur jafn-
framt skipað framkvæmdahóp
stjórnvalda um losun hafta frá því í
ársbyrjun. Öll sammála
Þórunn Guðmundsdóttir, formaður
bankaráðs Seðlabankans, segir
ályktunina hafa verið samþykkta
með öllum atkvæðum bankaráðs-
manna nema einu.
„Í því tilviki var um ágreining um
orðalag að ræða en það var enginn
andsnúinn þessu,“ segir Þórunn og
tekur fram að hún hafi vikið af fund-
um ráðsins í september þegar fjall-
að var um mál Samherja. Hún sá
hins vegar ekki ástæðu til að víkja af
fundi í síðustu viku þegar greitt var
atkvæði um að gera óháða rann-
sókn á framkvæmd gjaldeyrisreglna
bankans.
Fundur bankaráðsins síðasta
fimmtudag var fyrsti formlegi fund-
ur þess síðan umboðsmaður Al-
þingis sendi bréfið föstudaginn
2. október. Í bréfinu gerir Tryggvi
athugasemdir við ýmislegt í fram-
kvæmd gjaldeyriseftirlits og gjald-
eyrisrannsókna Seðlabankans
og bendir á að bankanum hafi
skort lagaheimild fyrir stofnun
Eignasafns Seðlabanka Íslands
(ESÍ). Hann hafi við upphaf athug-
unar sinnar árið 2010 staðnæmst
við þá leið sem farin var í lögum
þegar höftin voru tekin upp haustið
2008.
„Þar var Seðlabanka Íslands
fengin heimild til að gefa út, að
fengnu samþykki ráðherra, reglur
um gjaldeyrismál. Hinar eiginlegu
efnisreglur um gjaldeyrishöftin
voru í reglunum og brot gegn þeim
gátu varðað refsingum. Umboðs-
maður taldi vafa leika á því að þetta
fyrirkomulag uppfyllti þær kröfur
sem leiða af reglum um lögbundn-
ar refsiheimildir og skýrleika refsi-
heimilda," segir í bréfinu.
Tilefni athugunar umboðs-
manns voru meðal annars
ábendingar og kvartanir sem emb-
ættinu barst um að ekki hefði verið
fylgt réttum málsmeðferðar reglum
varðandi rannsóknir á brotum á
gjaldeyrislögum. Kvörtun fjárfest-
isins Heiðars Guðjónssonar var þar
á meðal en hann leitaði til umboðs-
manns vegna ákvörðunar ESÍ um
að falla frá sölu á tryggingafélaginu
Sjóvá til Ursusar, fjárfestingarfé-
lags hans, og annarra fjárfesta, árið
2010. Í september var greint frá því
að embætti sérstaks saksóknara
hefði fellt niður rannsókn á meintu
gjaldeyrisbrotamáli Seðlabanka Ís-
lands. Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, átaldi Má Guð-
mundsson seðlabankastjóra fyrir
meðferðina á málinu í viðtali við
DV skömmu eftir að niðurstaða sér-
staks saksóknara lá fyrir. n
Ragnar og Jón Helgi Samkvæmt heimildum DV óskuðu Ragnar Árnason og Jón Helgi Egils-
son fyrst eftir að gerð yrði óháð úttekt á framkvæmd gjaldeyrisreglna bankans í september.
Varamaður Ingvi Hrafn Óskarsson sat
fundi bankaráðs Seðlabankans í septem-
ber í fjarveru Þórunnar Guðmundsdóttir,
formanns ráðsins.
„Ég hef verið tals-
maður þess að
það verði gerð úttekt á
framkvæmd gjaldeyris-
eftirlits Seðlabankans
Seðlabankinn Bankaráð Seðlabankans
á að hafa eftirlit með því að hann starfi í
samræmi við lög sem um bankann gilda.
Haraldur Guðmundsson
Hörður Ægisson
haraldur@dv.is / hordur@dv.is
UPPÞVOTTAVÉLAR
RYKSUGUR
ELDAVÉLAR
KÆLISKÁPAR
HÁÞRÝSTIDÆLUR
KOMDU OG SKOÐAÐU
ASKONILFISK
HELLUBORÐ
OFNAR
HÁFAR
FRYSTISKÁPAR
AUKAHLUTIR
VIFTUR
VERSLUNIN FLYTUR
20-60% afsláttur
LAGERSALA