Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Qupperneq 6
Vikublað 3.–5. nóvember 20156 Fréttir
Hótar viðmælanda í
kjölfar umfjöllunar
n Grímur Vilhelmsson hefur ítrekað hótað Jóhanni n Tvísaga um útlimamissinn
Í
kjölfar umfjöllunar DV um fer
il Gríms Vilhelmssonar hef
ur hann sent ítrekaðar hótan
ir á einstakling sem steig fram
og lýsti því hvernig Grímur hefði
svikið sig um laun. Fjölmargar aðr
ar ábendingar hafa einnig borist
blaðinu vegna skrautlegrar fortíðar
Gríms. Þar á meðal hefur DV kom
ist yfir tvö blaðaviðtöl þar sem hann
deilir með lesendum tveimur gjör
ólíkum frásögnum af slysi sem kost
aði hann útlimi sína.
Hringdi í yfirmann Jóhanns
„Hann er búinn að senda mér marg
víslegar hótanir. Alvarlegast var
að hann hringdi í yfirmann minn í
vinnunni og reyndi að grafa undan
mér þar. Auk þess segist hann hafa
ýmislegt krassandi undir höndum
um mig sem hann ætlar að senda
á fjölmiðla og ríkisskattstjóra. Það
er náttúrlega fullkomin lygi enda er
ég með allt mitt á hreinu,“ segir Jó
hann Waage, sem steig fram í helg
arblaði DV og sagði frá vanefnd
um Gríms Vilhelmssonar varðandi
launagreiðslur í tengslum við rekstur
veitingastaða á Suðurnesjum.
Verulegt misræmi
í blaðaviðtölum
Í umfjöllun DV var stiklað á stóru
varðandi feril Gríms sem er skraut
legur í meira lagi. Meðal annars var
Grímur spurður út í tildrög þess
að hann missti hönd og fætur en
ákveðið misræmi var í fréttaflutn
ingi varðandi hvenær slysið átti sér
stað og hvað hefði gerst. Til dæmis
greindi DV frá því 23. mars 1999 að
Grímur væri orðinn 100% öryrki eft
ir slys í skipasmíðastöð. Það stang
ast á við dramatíska frásögn Gríms
í sænska dagblaðinu Tidningen Ån
germanland þar sem hann sagði að
slysið hefði átt sér stað árið 2003 og
gerst um borð í bát í hans eigu sem
var við veiðar í Norðursjó. Átti hann
að hafa flækst í stálvír með fyrr
greindum afleiðingum. Í samtali við
DV í síðasta helgarblaði staðfesti
Grímur þessa frásögn: „Slysið átti sér
stað árið 2003. Það eru til læknaskýr
slur um það,“ sagði Grímur.
„Ég sagði honum
að fara til fjandans“
DV fékk ábendingu um viðtal við
Grím sem birtist í tímaritinu Mannlíf
árið 2003 (12. tölublað, 20. árgangur)
sem norski blaðamaðurinn Per Jev
ne tók en hann deildi sjúkrastofu
með Grími á St. Olavssjúkrahúsinu í
Þrándheimi. Í viðtalinu segir Grímur
frá því hvernig lestarhleri hefði fall
ið á hendur hans þegar hann var að
logsjóða hlerann. Átti slysið að hafa
átt sér stað um borð í olíubirgða
skipinu Bergen. Hann hefði fall
ið fimm metra niður og séð hvítar
tægjur uppi við lestaropið. Hendur
hans hefðu báðar legið á dekkinu. Í
viðtalinu segir Grímur að slysið hafi
átt sér stað þann 15. júní 1998, sem
er fimm árum fyrr en hann fullyrti í
samtali við blaðamann.
Í samtali við DV segir Per Jav
ne að skömmu eftir að viðtalið birt
ist í Noregi hefði honum borist
ábendingar um að allt sem þar hefði
komið fram væri lygi. „Nokkrum vik
um síðar hafði Grímur sjálfur sam
band við mig og krafðist þess að fá
greitt fyrir viðtalið. Ég sagði honum
að fara til fjandans,“ segir Per og bæt
ir því við að á 34 ára ferli sínum sem
blaðamaður hafi hann aldrei upplif
að annað eins. „Maður gerir ráð fyr
ir því að viðmælendur séu að
segja manni sannleikann.
Sérstaklega varðandi
viðburði eins og alvar
leg slys sem hafa veru
leg áhrif á lífsgæði
viðkomandi. Það var
óhugnanlegt hvern
ig hann gat logið
upp í opið geðið á
mér,“ segir Per.
Dýralæknir
á Dalvík
Á köflum virðast lygar
Gríms illa ígrund
aðar. DV hefur heyrt
úr tveimur áttum að
Grímur hafi ráðið sig
til starfa sem
dýra
læknir á Dalvík fyrir rúmum 25
árum síðan. Hann ku engin réttindi
né próf hafa sem slíkur og því varð
ferill hans þar skammvinnur. Þá er
staðfest að Grímur réði sig, á árun
um 1994–1995, sem leiðsögumaður
á tvær mismunandi ferðaskrifstof
ur hérlendis fyrir japanska ferða
menn – á þeim forsendum að hann
talaði japönsku. „Hann sagði mér að
hann hefði dvalið eitt ár í Osaka og
sótt kvöldskóla meðfram háskóla
námi úti í Bandaríkjunum,“ sagði
fyrrverandi starfsmaður ferðaskrif
stofu, sem vildi ekki láta nafns síns
getið. Grímur talar hins vegar ekki
stakt orð í japönsku, eftir því sem
DV kemst næst, og státar því ekki af
löngum starfsferli í ferðaþjón
ustunni. Hann olli hins
vegar ferðaskrifstof
unum verulegum
vandræðum með
athæfi sínu.
Þrátt fyrir ít
rekaðar tilraun
ir náðist ekki í
Grím Vilhelms
son við vinnslu
þessarar frétt
ar. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Jóhann Waage Grímur hefur
sent Jóhanni margvíslegar hótanir
eftir umfjöllun DV. MynD Sigtryggur Ari„ Maður gerir ráð fyrir því
að viðmælendur
séu að segja manni
sannleikann
grímur
Vilhelmsson
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Við bjóðum uppá allar
gerðir merkivéla og
prentara sem henta inná
hvert heimili og fyrirtæki
Komdu við og kíktu
á þetta frábæra úrval
sem við höfum upp
á að bjóða