Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Side 8
Vikublað 3.–5. nóvember 20158 Fréttir
Lagði kirkjuna í dúntökudeilu
Kári H. Jónsson var þjófkenndur og dúnpokar hrifsaðir af honum með valdi
L
ögmaður Biskupsstofu sagði í
blaðagrein í fyrra að málið hafi
aldrei verið útkljáð formlega.
Nú er komin formleg niður
staða, svo ég vona að Biskups
stofa taki þessum málalokum,“ seg
ir Kári H. Jónsson sem í síðustu viku
vann fullnaðarsigur fyrir Héraðs
dómi Vesturlands gegn Kirkjumála
sjóði Þjóðkirkjunnar. Þar var Þjóð
kirkjunni gert að greiða Kára 1,2
milljónir króna í málskostnað eftir
að héraðsdómur kvað upp sinn dóm
í dúntökudeilu, sem staðið hefur um
árabil, þar sem Kári var sýknaður af
kröfum kirkjunnar.
DV fjallaði um málið í fyrra eftir
að Kirkjumálasjóður stefndi Kára þar
sem Þjóðkirkjan taldi sig eiga heimt
ingu á dúntekjuhlunnindum af
æðarvarpi á grundvelli ítaks í hólma
á jörð Kára á Snæfellsnesi. Kirkjan
vildi fá viðurkennt að hún ætti rétt á
tekjum af um fjórum kílóum af dúni
þar á ári. Kári segir að málið hafi
valdið honum óþægindum, þar sem
hann hefur meðal annars verið þjóf
kenndur.
Áralöng deila
Forsaga málsins er að Kári, sem
eignaðist jörðina Haga árið 2007,
kærði sóknarprestinn á Staðastað
árið 2010 fyrir dúntöku í leyfisleysi
í Gamlahólma í Hagavatni sem til
heyrir jörð Kára. Í gegnum aldirnar
hefur Þjóðkirkjan eignast ítök í jörð
um um allt land, en ítök ganga út á
að kirkjan hafi nýtingarrétt af tiltekn
um auðlindum eða hlunnindum í
landi annarra.
Árið 1952 setti Alþingi hins vegar
lög um að kirkjan og aðrir þeir sem
teldu sig eiga ítök í jörðum sem eru
í eigu annarra yrðu að lýsa þeim
ítökum formlega. Þau áttu þó ekki
að taka gildi fyrr en sýslumaður
væri búinn að þinglýsa þeim. Á
þeim tíma lýsti biskup Íslands ítaki
í Gamlahólma í Hagavatni þó ekki
hafi verið kveðið sérstaklega á um
dúntöku í hólmanum. Hins vegar
kom fram í svari sýslumanns í Snæ
fells og Hnappadalssýslu til biskups
að frekari gögn um ítakið vantaði og
því var ekki hægt að þinglýsa ítakinu
á þeim tíma. Kári fékk síðar staðfest
hjá sýslumanni að kröfum kirkjunn
ar um nýtingarrétt í hólmanum hafi
aldrei verið þinglýst á sínum tíma.
Réttur kirkjunnar til að tína dún þar
hafi því fallið niður árið 1953.
Vildu ekki sleppa aukatekjum
Kirkjan vildi því láta reyna á þetta fyr
ir dómi þó að viðurkennt hafi verið
í stefnunni að ekki lægi ljóst fyrir
„hvernig fór með skráningu þeirra
ítaka sem lýst var og hugsanlega hef
ur sú skráning ekki verið framkvæmd
með þeim hætti sem lög buðu.“ Fram
kom í stefnunni að Kirkjumálasjóður
hafði þann vara á að ef ekki yrði fall
ist á að ítakið hafi verið skráð lög
um samkvæmt þá yrði byggt á því
að hefð hefði myndast fyrir ítakinu
enda prestar haldið dúntöku áfram
óslitið frá 1954. Með öðrum orðum
þá hafi sóknarprestar á Staðastað
getað tínt æðardún í hólmanum, selt
hann sjálfir og stungið ágóðanum í
eigin vasa.
Í samtali við DV í apríl í fyrra kom
fram að þannig hafi þetta gengið
ágreiningslaust um áratugaskeið eða
þar til Kári eignaðist jörðina Haga
árið 2007. Þá fór hann að vinna í því
að fá hlunnindi vegna æðarvarps
skráð á jörð sína. Svo fór að Þjóðskrá
Íslands féllst fyrir nokkrum árum á
beiðni hans um að skrá fjögur kíló
dúntekjuhlunninda á ári á jörðina
Haga. Þessum aukatekjum, sem Kári
sagði þá að gætu numið í mesta lagi
400 þúsund krónum á ári, átti Þjóð
kirkjan erfitt með að sleppa takinu á.
Gagnrýndi hörkuna
Kára, sem er 76 ára og búsettur í
Lúxemborg, þótti með ólíkindum
hversu hart kirkjan hefði gengið
fram til að vinna aftur ítak sem fall
ið væri úr gildi og hefði verið fært
yfir á jörð hans: „Og nota til þess öll
tiltæk brögð eins og bregða fyrir sig
hefðarlögum.“ Þrátt fyrir að Kári full
yrði að hann hafi rétt fram sáttar
hönd í málinu, varð niðurstaðan sú
að kirkjan ákvað að stefna honum og
krefjast þess að viðurkennt yrði með
dómi að öll hlunnindi af æðarvarpi
í Gamlahólma í Hagavatni tilheyrðu
kirkjujörðinni og prestsetrinu að
Staðastað, Snæfellsbæ, og að öðrum
en þeim sem eigandi Staðastaðar
heimilar að nýta þessi hlunnindi
sé óheimilt að nýta þau. Einnig var
farið fram á að Kári greiddi allan
málskostnað.
Ítakið fallið úr gildi fyrir 61 ári
Í niðurstöðu héraðsdóms, sem kvað
upp dóm í málinu þann 28. október
síðastliðinn, er það staðfest að hið
umdeilda ítak kirkjunnar til dún
tekju hafi, líkt og Kári vildi meina,
fallið úr gildi vegna áðurnefndrar
vanlýsingar á sjötta áratug síðustu
aldar – hafi það á annað borð þá ver
ið til staðar, eins og segir í dómnum.
Dómurinn tók því næst afstöðu til
varakröfu Kirkjumálasjóðs sem var
að ef ítak kirkjunnar hefði fallið nið
ur vegna handvammar biskups árið
1953, hefði engu að síður myndast
fyrir því hefð.
„Enda hafi sitjandi prestar á
Staðastað haldið áfram óslitið
að nýta hlunnindi af æðarvarpi í
Gamlahólma á sama hátt og fyrr.“
Engin hefð
Í niðurstöðu dómsins segir, þrátt fyrir
að gögn sem Kirkjumálasjóður lagði
fram fyrir dómi, að engin gögn liggi
fyrir í málinu, eins og skattframtöl
eða önnur rekstrargögn „sem renna
styrkari stoðum undir eða sýna fram
á að dúntekja í hólmanum hafi ver
ið stunduð óslitið og samfleytt frá
Staðastað eftir 8. júlí 1954, þannig að
til hefðar gæti hafa stofnast.“
Því verði ekki séð að Kirkjumála
sjóður hafi í nokkru sýnt fram á að
hann hafi öðlast öll hlunnindi af
æðarvarpi í umræddum hólma sem
ítak á grundvelli hefðar „og skiptir þá
ekki máli hvort um sé að ræða sýni
legt eða ósýnilegt ítak.“
Var Kári því sýknaður af dómkröf
um Kirkjumálasjóðs og vann hann
fullnaðarsigur í málinu. Kirkjumála
sjóði Þjóðkirkjunnar var sömuleiðis
gert að greiða Kára 1,2 milljónir
króna í málskostnað. Kári vonar að
kirkjan muni una niðurstöðu dóm
stólsins. „Því eins og þeir segja sjálf
ir, þá stendur kirkjan fyrir friðarins
boðskap og vill starfa þannig í verki.“
Þjófkenndur í sjónvarpi
Til marks um þau óþægindi sem Kári
hefur orðið fyrir vegna málsins rifjar
hann upp ummæli sem presturinn á
Staðastað lét falla í sjónvarpsþættin
um Sjálfstætt fólk. „Þar sagði hann,
„karlinn í Haga rær út í hólmann
og stelur dúninum og ágirnist
hólmann“.“
Þá segir Kári að í júní síðastliðnum
hafi tveir menn veist að honum með
fúkyrðum þegar hann hafði tínt dún
í Hagavatnshólma. „Þeir tóku af mér
með valdi tvo poka af dúni sem mun
láta nærri að vera um fjögur kíló af
hreinsuðum dún. Mér er óljúft að
efna til ýfinga en tel að þessi hátt
semi þeirra sé refsiverð. En ég vil
horfa á þetta sem óígrundað frum
hlaup og bauð þess vegna upp á að
þeir skiluðu dúninum án eftirmála.
Því hefur ekki verið svarað.“
DV sendi fyrirspurn á Biskups
stofu þar sem spurt var hvort
ákvörðun hefði verið tekin um hvort
niðurstöðu héraðsdóms yrði áfrýjað.
Engin svör höfðu borist þegar blaðið
fór í prentun. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is „Þeir tóku af
mér með valdi
tvo poka af dúni
Í mál vegna æðardúns Kirkjumálasjóð-
ur Þjóðkirkjunnar vildi að viðurkennt yrði
með dómi að öll hlunnindi af æðarvarpi í
Gamlahólma í Hagavatni tilheyrðu kirkju-
jörðinni og prestsetrinu að Staðastað.
„Ég vona að
Biskupsstofa taki
þessum málalokum.
Fullnaðarsigur Landeigandinn
Kári H. Jónsson hafði betur
gegn Þjóðkirkjunni í dúntöku-
deilunni fyrir héraðsdómi og var
Kirkjumálasjóður dæmdur til að
greiða honum 1,2 milljónir króna í
málskostnað. Mynd SiGtryGGur Ari
Fjáröflun
fyrir félög
og hópa
Flottar
pakkningar
sem
innihalda
jólapappir
og skraut