Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Síða 20
Vikublað 3.–5. nóvember 20154 Viðburðir & skemmtanir - Kynningarblað
Í
vor verða liðin 30 ár
síðan Simply Red hélt
tónleika hér á landi.
Þann 31. maí halda
þessir snillingar aftur
tónleika í Laugardalshöll-
inni og óhætt er að segja
að þeir hafa engu gleymt.
Simply Red hefur selt yfir 60
milljónir platna og á þess-
um tónleikum mun sveitin
flytja öll sín vinsælustu lög.
Mick Hucknall og fé-
lagar hafa sjaldan eða
aldrei verið í betra formi
en Mick er með eina flottu-
stu söngrödd poppsögunn-
ar. Sveitin á margar sígilda
smelli sem allir Íslendingar
yfir fertugu þekkja vel. Það
má því búast við ógleyman-
legri stemningu og upplifun
þegar Simply Red stíga á svið
í Laugardalshöllinni þann 31.
maí í vor.
Þegar Simply Red spiluðu hér á
landi vorið 1986 voru þeir nýbúnir
að gefa út fyrstu plötuna sína, Pict-
ure Book, sem sló allrækilega í gegn
hér á landi. Eftir það varð Simply
Red ein vinsælasta hljómsveit heims
næstu árin.
Meðal laga sem búast má við að
verði flutt í höllinni næsta vor eru:
A New Flame, It´s Only Love, If You
Don´t Know Me By Now, For Your
Babies, Stars- Money´s Too Tight (To
Mention), Fairground, Something
Got Me Started, Holding Back The
Years og mörg fleiri.
Nú þegar er uppselt í stúku á tón-
leikana en ennþá er hægt að fá miða
í stæði. Miðasala er á Miði.is. n
Simply Red í
Laugardalshöll
Ein vinsælasta hljómsveit Bretlands frá upphafi hefur engu gleymt