Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Blaðsíða 23
Vikublað 3.–5. nóvember 2015 Kynningarblað - Viðburðir & skemmtanir 7
Fjölbreyttir jólatónleikar
á vegum Dægurflugunnar
Ellen og KK, Ragnheiður Gröndal og Pálmi Guðmundsson, Boney M
Þ
að kennir ýmissa grasa í
spennandi tónleikafram
boði á vegum Dægur
flugunnar nú fram að jólum.
Íslenskir og erlendir tón
listarmenn í fremstu röð skemmta
landsmönnum. Á suma tónleikana
er nú þegar orðið uppselt en mik
ilvægt er að tryggja sér miða í tíma.
Meðal þeirra sem syngja sig inn í
hjörtu landsmanna fyrir næstu jól
eru systkinin Ellen Kristjánsdóttir
og KK. Jólatónleikar þeirra systkina
eru orðnir fastur liður í jólahaldi fjöl
margra á Íslandi. Í ár verða þau á
faralds fæti líkt og áður, syngja jólalög
í bland við sín eigin og segja sögur af
sér sínum sem laða fram gleði og eitt
og eitt tár.
Með þeim systkinum verður
fimm manna úrvalssveit tónlistar
manna undir stjórn hljómborðsleik
arans góða Jóns Ólafssonar.
Ellen og KK halda alls níu tón
leika vítt og breytt um höfuðborgar
svæðið og nágrenni þess, en nánari
upplýsingar og miðasölu má nálgast
á midi.is og salurinn.is.
Ragnheiður Gröndal og Pálmi
Gunnarsson: Gleði- og friðarjól
Jólatónleikar Pálma og Ragnheiðar
slógu rækilega í gegn í fyrra og
komust færri að en vildu. Þau endur
taka leikinn í ár með góðum gestum
og sömu notalegu stemningunni.
Í ár eru 30 ár liðin frá útgáfu jóla
plötunnar Friðarjól og er hún
órjúfan legur hluti af jólaundirbún
ingnum á fjölmörgum heimilum. Og
það er aldrei að vita nema ný jólalög
líti dagsins ljós í tilefni afmælisins.
Strengjasveit, kór og gestir ásamt
hljómsveit undir stjórn Þóris Úlfars
sonar koma einnig fram á tónleikun
um. Tónleikarnir verða í Hörpu þann
19. desember, kl. 17 og 21. Miðasölu
og nánari upplýsingar má nálgast á
vefnum tix.is
Boney M í dúndrandi jólastuði
Ein frægasta hljómsveit diskó
tímabilsins, Boney M, skemmtir
landanum í Eldborgarsal Hörpu
þann 20. desember. Söngdívan Liz
Mitchell er að sjálfsögðu með í för
og hefur hún engu gleymt. Boney M
skipa, auk Liz Mitchel, tvær kvenn
raddir, ein karlrödd og níu manna
hljómsveit.
Uppselt er á tónleika sveitarinnar
kl. 21 um kvöldið en enn er hægt
að fá miða á aukatónleika kl. 17.
Miðasölu má nálgast á vef Hörpu,
harpa.is n
„Á suma tónleikana
er nú þegar orðið
uppselt en mikilvægt
er að tryggja sér miða í
tíma.
Systkynin KK og
Ellen halda níu tón-
leika vítt og breitt
um höfuðborgar-
svæðið.
Gleði- og
friðarjól
Ragnheiður
og Pálmi.
Boney M Diskó-
goðin í Boney M
hafa engu gleymt