Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Blaðsíða 26
Vikublað 3.–5. nóvember 201518 Sport Áttræður í fullu fjöri Gary Player byrjar daginn á 1.300 magaæfingum og vinnur tólf tíma vinnudag á búgarði K ylfingurinn Gary Player varð áttræður á sunnudaginn. Enn þann dag í dag byrjar þessi magnaði afreksmaður hvern dag á því að gera 1.300 magaæfingar og taka 150 kíló í hnébeygju. Þrátt fyrir háan aldur, þegar íþróttamaður er annars vegar, er hann enn í fullu fjöri. Hann hefur á árinu ekki leikið einn golfhring á fleiri höggum en aldur hans segir til um – geri aðrir betur. Greinin er unnin upp úr grein á Daily Mail, skrifuð af Derek Lawrenson. Vinnur tólf tíma Gary Player er frá Suður-Afríku, fæddur 1. nóvember 1935. Hann er einn sigursælasti kylfingur sögunn- ar og hefur ávallt haldið sér í topp- formi. Á 80 ára afmælisdeginum, sem var á sunnudag, flaug hann frá Flórída til Kína og þaðan áleiðis til Bangkok. Hann er enn virkur í við- skiptalífinu og er í forsvari fyrir ýmis fyrirtæki. Hann hannar golfvelli á milli þess sem hann sinnir viðskipt- um og leikur golf. Þegar hann er heima hjá sér, í Suður-Afríku, vaknar hann klukkan fimm á morgnana og vinnur tólf tíma vinnudag á bú- garðinum sínum. Blaðamaður spyr Player hvort honum líði aldrei þannig að hann þurfi að minnka við sig vinnu. „Ég skal segja þér svolítið, Derek,“ segir hann við blaðamanninn. „Það að setjast í helgan stein er dauðadómur. Ég man eftir umræðu í Bretlandi fyrir nokkrum árum þegar farið var fram á að fólk yrði árinu lengur á vinnu- markaði. Sjáðu til, ég er áttræður og enn samur og þegar ég var 22. Ég er enn áfjáður í að læra nýja hluti og ég trúi ekki á það að setjast í helgan stein. Ég vil deyja sem vinnandi maður.“ Hann segir að þegar hann verði níræður muni hann enn spila golf og enn fara hringinn á færri en 80 höggum. Palmer vann með töfrum Player er einn sigursælasti kylfingur sögunnar. Blaðamaður biður hann að horfa yfir ferilinn og nefna mestu von- brigðin. Svarið er svo þrungið tilfinn- ingum að hann segir að ætla mætti að hann væri að lýsa atviki sem gerst hafi í gær. „Ég var með tveggja högga forystu á Arnold Palmer, þegar þrjá holur voru eftir,“ svarar Player og dregur samtalið aftur til ársins 1962, á Mastersmótið. „Teighöggið hans á 16. rataði hægra megin við brautina þaðan sem ómögu- legt er að slá. „Ég sagði við kylfusvein- inn að nú værum við búnir að vinna.“ Næsta högg negldi Palmer, úr vonlausri stöðu, í holuna af löngu færi. „Á næstu holu, þeirri 17., sló hann boltann í Eisenhower's Tree úr upphafshögginu en setti næsta högg ofan í af 11 metrum með fimm járni.“ Þeir voru jafnir og máttu spila annan hring. „Ég var með þriggja högga forystu þegar níu holur voru eftir. Hann fór seinni níu á 31 höggi. Ég skal segja þér það að Aronld vann þetta mót með töfrum,“ segir hann og rekur upp roknahlátur. Skytturnar þrjár Player er iðulega nefndur í sömu andrá og Arnold Palmer og Jack Nicklaus en skytturnar þrjár (Big Three) voru yfirburðamenn í golfinu á síðari hluta 20. aldar. Þeir unnu samtals 13 sinnum Masters á árunum 1958–86. Í dag eru aðalmennirnir þrír, Rory Mcllroy, Jason Day og Jordan Spieth. Þeir þeir hafa á ferli sín- um verið spurðir hver þeirra gömlu þeir hafa mest litið upp til hafa þeir allir nefnt Player, af ólík- um ástæðum þó. Nefna má að Spieth lítur á Player sem fyrir mynd fyrir þær sakir að hann spilar, líkt og Player, við menn sem geta slegið boltanum 30 til 40 metrum lengra. Player segir að hann sé upp með sér vegna þessa enda dáist hann að þessum þremur leikmönnum, sem séu, hver og einn, frábærar fyrirmyndir og fulltrúar sinnar kynslóðar. Hann segir ómögulegt að gera uppi á milli þeirra – hver muni vinna flesta titla. Það ráðist á úthaldi þeirra og metnaði. „Að mínu mati eru Rory og Jason með bestu tæknina en Jord- an er afar þroskaður leikmaður og tekur hinum fram þegar kemur að því að pútta. Og það er svo mikil- vægt. Hvenær ætla allir þessir sér- fræðingar að átta sig á því að 70 pró- sent högga á golfvelli eru slegin á innan við 100 metrum?“ Boðnir milljón dollarar á ári Player vann níu stórmót á ferli sínum en 165 atvinnumannamót alls. Þetta afrekaði hann á árunum 1955 til 1981. „Ég er klárlega með besta ferilinn af þeim öllum – og það var markmiðið.“ Hann vann fjölmörg mót úti um allan heim, í Afríku, Ameríku og Ástralíu, svo eitthvað sé talið. Spurður hvort hann sjái eftir einhverju segist hann ekki beinlínis gera það. Honum hafi þó verið boðnir milljón dollarar ár- lega, árið 1961, fyrir að spila bara í Ameríku. Því hafnaði hann. „Ég hefði unnið miklu fleiri stórmót ef ég hefði tekið tilboðinu. Ég mun alltaf velta því fyrir mér hvort ég hefði átt að taka því.“ n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Helstu afrek Players Að mati hans sjálfs Besti kylfingurinn: „Ben Hogan. Hann vann níu stórmót þrátt fyrir að hafa verið í hernum í fimm ár og verið þrjú ár til viðbótar frá vegna bílslyss.“ Besta mótið: „Opna breska. Ég elskaði þá staðreynd að maður gat einn daginn slegið 200 metra með sjö-járni, en þann næsta dreif maður ekki hálfa þá vegalengd.“ Stærsti sigurinn: „Opna bandaríska 1965, þegar ég vann „Grand Slam“.“ Mesta afrekið: „Ég er mjög stoltur af því að hafa, einn kylfinga, náð Grand Slam bæði á mótaröð fyrir yngri og eldri kylfinga. Ég náði því vegna þess að ég var í nákvæmlega jafn góðu formi þegar ég var fimmtugur eins og þegar ég var 25.“ Besta tilvitnunin: „Því meira sem ég æfi því heppnari verð ég.“ Þessi orð lét hann falla í Texas 1960 eftir að áhorf- andi hafði orð á því hversu heppinn hann væri að setja niður bolta úr sandgryfjum. „Hvenær ætla allir þessir sér- fræðingar að átta sig á því að 70 prósent högga á golfvelli eru slegin á innan við 100 metrum? Skytturnar þrjár Player, til hægri auðvitað, líður enn eins og hann sé tvítugur. Mynd EPA Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is Dæmi um verð: Tóner fyrir HP CF283A 8.500 kr. CE285A 6.490 kr. CE278A 6.800 kr. CF280X 9.800 kr. Blek fyrir Canon 550/551 970 kr. 525/526 870 kr. 520/521 870 kr. 5/8 870 kr. BL EK & TÓ NE R

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.