Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Qupperneq 32
Vikublað 3.–5. nóvember 201524 Menning
F
yrsta ljóðabók Bubba
Morthens, Öskraðu gat á
myrkrið, hefur vakið athygli og
fengið góða dóma. Ljóðabálk-
urinn er sjálfsævisögulegur og
Bubbi gerir þar upp erfiðan kafla á
ævi sinni og gengur nærri sér. Hann
er spurður hvort það hafi verið erfitt
að vinna bókina.
„Já og nei. Meðgangan var
erfiðust,“ segir hann. „Ég hafði sent
fósturmóður minni, Silju Aðalsteins-
dóttur, uppkast að eins konar ættar-
sögu minni. Hún sagði að það þyrfti
að vinna handritið öðruvísi og betur.
Ég tek mikið mark á henni og hugs-
aði: Þetta er rétt hjá henni, og lagði
handritið til hliðar. Hver veit hvað
verður úr því. Kannski held ég áfram
og yrki mig í gegnum ævi mína.
Kvöld eitt, að vori til, var ég að
keyra heim og sá hrafnaþing úti í
móa. Ég stoppaði bílinn og gekk mjög
hægt og varlega í átt að hröfnunum
og komst ótrúlega nærri. Sólin mýkti
landslagið og þá komu upp í hug-
ann orðin „rökkurmjúkur mosi“. Svo
fór ég heim og skrifaði
fyrstu línuna í bókinni
og um leið var ég kom-
inn af stað.
Þetta var ekkert
hrópandi auðvelt, en
var lokaferli í átt að
ákveðinni sátt. Eftir
einhver ár á ég líklega
eftir að hugsa: Andskoti
gekk ég nú nærri mér
þarna! En þannig hefur
æviverk mitt alltaf ver-
ið, upp á líf og dauða.“
Grátbeðin að koma
til baka
Þegar maður er búinn
að lesa bálkinn þá situr myndin af
mömmu þinni eftir í huga manns.
Hvernig kona var mamma þín?
„Mamma var dönsk, af stórri og
ríkri ætt þar sem klassísk tónlist var
spiluð eftir kvöldmat og bókmenntir
ræddar fram og til baka. Hún kom til
Íslands sautján ára gömul og fór að
vinna á Sólheimum sem hjúkrunar-
kona. Hún varð ástfangin af pabba,
fráskildum manni sem
átti börn með tveimur
konum. Það fór allt á
annan endann í Dan-
mörku og ég hef séð
bréf þar sem mamma
var grátbeðin um að
koma til baka og stíga
ekki það skref að búa
með föllnum manni.
En hún, af ást, stóð sína
plikt. Svo kom raun-
veruleikinn hægt og
rólega í ljós. Hún hélt
heimilinu saman við
gríðarlega erfiðar að-
stæður. Pabbi var ekki
slæmur en hann var
alkóhól isti og einu sinni upplifði ég
ofbeldi sem hafði gríðarleg áhrif á
mig.“
Hvað gerðist?
„Þetta var atburður þar sem faðir
minn beitti móður mína líkamlegu
ofbeldi. Mamma var þannig mann-
Upp á líf og dauða
Í fyrstu ljóðabók sinni minnist Bubbi Morthens móður sinnar, en hann var fjarri þegar hún dó
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Það tók mig tölu-
verðan tíma að
fyrirgefa sjálfum mér.
Í bálkinum er ég að skrifa
mig í gegnum þetta.
Undarleg krafa
Irmgard Kramer er höfundur
barnabókarinnar Sólbjört Val-
entína - Um frumskógarfugla og
konunglegar nærbuxur. Húsið
hennar Sólbjartar Valentínu vill
fána úr konunglegum nærbuxum
og hótar að henda fjölskyldunni á
götuna verði ekki af því.
Nýjar bækur
Óttalaus
ofurhetja
Norski höfundur-
inn Håkon Övreås
fékk Barnabóka-
verðlaun Norður-
landaráðs fyrir
Brúnar. Þegar
kvölda tekur
breytist Rúnar
í óttalausu ofurhetjuna Brúnar
sem refsar strákunum sem stríða
Rúnari.
Sagan af
Dennis
Strákurinn í
kjólnum er fyrsta
bók Davids Wall-
iams og skaut
honum á stjörnu-
himin barna-
bókanna. Aðalpersónan er lítill
strákur, Dennis, sem leynir svo
sannarlega á sér.
Iceland Airwaves
Á
miðvikudag hefst tónlistar-
hátíðin Iceland Airwaves,
sem haldin er í sextánda
skipti í ár. Yfir 240 flytjend-
ur koma fram á fimm kvöldum
á þrettán tónleikastöðum í mið-
borg Reykjavíkur – og þá er ótalin
hliðardagskráin sem fer fram um
alla borg. Þar sem magnið af tón-
list er gríðarlegt er tilvalið að nýta
vikuna til að undirbúa sig fyrir há-
tíðina og merkja við þá listamenn
sem maður vill alls ekki missa
af. DV fékk nokkra íslenska lista-
menn, sem koma fram á hátíðinni,
til að mæla með því sem þeir eru
spenntastir fyrir að sjá og heyra.
kristjan@dv.is
Guðmundur Úlfarsson,
forsprakki Good Moon Deer
Good Moon Deer spilar í Norðurljósasal Hörpu
á föstudagskvöld.
Ég er mikill Battles-
aðdáandi, þannig að
ég er mjög spenntur að
sjá þá. En annars er ég
eiginlega spenntastur
fyrir eigin atriði í ár. Ég
verð með sjö af efnileg-
ustu dönsurum lands-
ins með mér á sviðinu.
Við höfum verið að æfa atriðið undanfarnar
vikur með Sögu Sigurðardóttur danshöf-
undi og ég hlakka mjög mikið til að sýna það.
Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir
Rykmoppur og
sápuþykkni frá
Pioneer Eclipse
sem eru hágæða
amerískar hreinsi-
vörur.
Teppahreinsivörur
frá HOST
Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942
Frábærar þýskar
ryksugur frá SEBO
Decitex er
merki
með allar
hugsanlegar
moppur og klúta í þrifin.
UNGER gluggaþvottavörur,
allt sem þarf í gluggaþvottErum einnig með:
Marpól er með
mikið úrval af
litlum frábærum
gólfþvottavélum
Tilboð fyrir hótel og
gistiheimili í apríl/maí!