Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Qupperneq 36
Vikublað 3.–5. nóvember 201528 Fólk
ÁstarjÁtning
Á tímaflakki
n Eva fékk sms frá fortíðar-kára n „Þetta var virkilega krúttlegt“
Þ
að gerist nú varla róman-
tískara en þetta! Kári sendi
Evu, kærustunni sinni,
sms-skilaboð árið 2009 og
stillti þau sex ár fram í tím-
ann. Eva fékk skilaboðin þann 26.
október síðastliðinn, með fallegri
ástarjátningu úr fortíðinni.
Eva Alexandra Árnadóttir og Kári
Pálsson kynntust árið 2008. „Við
hittumst á Landsmóti hestamanna
2008, eftir það urðum við aðeins
vinir og kynntumst betur þegar frá
leið og út frá því small samband síð-
ar. En góðir hlutir gerast hægt ekki
satt?“ segir Eva, aðspurð hvernig
þetta byrjaði allt saman. Eva er 24
ára og stundar nám í mannfræði
en Kári er 26 og er að læra þjóð-
fræði við Háskóla Íslands. Kári heill-
aðist af Evu vegna þess að honum
fannst hún heilsteypt og skemmti-
leg manneskja, Eva segist hins vegar
hafa fallið fyrir sjarmanum hans
Kára og hversu samkvæmur hann er
sjálfum sér.
En hvernig dettur manni hug að
senda sms-skilaboð sex ár fram í
tímann? „Ég sá slóð á vefsíðunni b2
þar sem maður gat sent framtíðar-
sms, ég ákvað því að slá til,“ segir
Kári. Hann var ekki búinn að gleyma
skilaboðunum þegar þau loks bár-
ust Evu í síðustu viku. „Ég vissi alltaf
að ég hafði sent eitthvað, ég mundi
þó ekki hvenær það myndi skila sér
í framtíðinni.“
Eva var að vonum ánægð
með skilaboðin. „Þetta sms kom
skemmtilega á óvart og mín fyrstu
viðbrögð voru að hlæja, en þetta
var virkilega krúttlegt.“ Hún smellti
skjámynd af skilaboðunum á Face-
book-síðuna sína með merkinu
#einsgottviðhættumekkisaman.
Þetta ástfangna par segir að lykill-
inn að góðu sambandi séu þrír hlutir
– traust, virðing og að taka hlutunum
ekki of alvarlega. Þau eru ekki mik-
ið að stressa sig á framtíðinni og ætla
hvort um sig að klára háskólanámið
og sjá svo til hvað gerist næst. n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Í jökli Brosandi og kát í jökulsprungu.
Í sundi Eva og Kári eru dugleg að ferðast
saman um landið.
stuð á skól avörðustíg
g
latt var á hjalla í út-
gáfuhófi bókarinnar Yfir
farinn veg með Bobby
Fischer, sem Garð-
ar Sverrisson ritaði. Hófið
fór fram í Eymundsson við
Skólavörðustíg síðastliðinn
föstudag og var fullt út úr dyr-
um. Menn úr skákheimin-
um létu sig að sjálfsögðu ekki
vanta og var Hrafn Jökulsson,
forseti skákfélagsins Hróks-
ins, þar fremstur í flokki. n
Útgáfu bókarinnar Yfir farinn veg fagnað
Töff hjón Hjónin Lísa Pálsdóttir og Björgúlfur Egilsson sýndu sig og sáu aðra.
Reffilegur í rykfrakka
Listamaðurinn og skáldið
Bjarni Bernharður fylgist
vel með því sem gerist í
heimi menningar og lista.
Drekkir
sorgunum
í münchen
Sigríður Elva er á ferð og flugi
þrátt fyrir uppsögn
Sjónvarps- og þáttagerðarkonan
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir er
ein þeirra sem sagt var upp hjá
365 miðlum í síðustu viku eftir
að hafa starfað hjá fyrirtækinu í
nokkur ár. Margir stöppuðu stál-
inu í sjónvarpskonuna á Face-
book-síðu hennar, þrátt fyrir að
hún væri ekki að barma sér yfir
uppsögninni á þeim vettvangi.
Sigríður Elva, sem ekki er
þekkt fyrir að taka sjálfa sig of há-
tíðlega, birti hins vegar hressilega
myndasyrpu af sér á Facebook
á mánudaginn. Þar má meðal
annars sjá hana keyra um í gulum
sportbíl og drekka bjór. Segist
hún einfaldlega vera að drekkja
sorgum sínum í München, þar
sem myndirnar eru teknar.
Á Stöð 2 hófu nýlega göngu
sína ferðaþættir sem Sigríður
Elva stýrir, og bera nafnið á Ferð
og flugi, en óvíst er hvað verð-
ur um þá nú þegar hún er horfin
frá störfum. Þá er Sigríður Elva
ein þeirra sem Lóa Pind Aldísar-
dóttir fjallar um í þáttunum Örir
Íslendingar, sem einnig hófu ný-
lega göngu sína á Stöð 2, en Sig-
ríður Elva er nýlega greind með
ADHD og í fyrsta þættinum mátti
fylgjast með því þegar hún tók of-
virknilyfið Concerta í fyrsta skipti.
Þótt Sigríði Elvu hafi verið sagt
upp hjá 365 er ljóst að hún verður
á skjánum, eitthvað áfram, í áð-
urnefndum þáttum.
HamraHlíð 17, 105 reykjavík / Hús Blindrafélagsins / sími 552-2002
Vönduð
lesgleraugu
frá 3.900 kr.