Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 2
Helgarblað 27.–30. nóvember 20152 Fréttir
Hlutu viður-
kenningu
Ritstjórn Framhaldsskóla-
blaðsins, Halla Kristín Einarsdótt-
ir og Sigrún Stefánsdóttir, fengu
fjölmiðlaviðurkenningu Jafn-
réttisráðs á miðvikudag úr hendi
Eyglóar Harðardóttur, félags- og
húsnæðismálaráðherra. Viður-
kenningarnar voru veittar í þrem-
ur flokkum. Ritstjórn Framhalds-
skólablaðsins fékk viðurkenningu
fyrir umfjöllun um jafnréttis-
mál, Halla Kristín fyrir heimilda-
myndina Hvað er svona merki-
legt við það? og Sigrún fyrir störf
í þágu jafnréttis á fjölmiðlum. Í
valnefnd sátu Brynhildur Heiðar-
og Ómarsdóttir frá Jafnréttisráði,
Arndís Þorgeirsdóttir frá Blaða-
mannafélagi Íslands og Ragnar
Karlsson frá Háskóla Íslands.
N
orden i Skolen, sem er stórt
samnorrænt fræðsluverkefni,
hleypir af stokkunum Bar-
áttunni gegn matar sóun
ásamt nýju námsefni um
þessar mundir. Þessa vikuna
er Glerárskóli frumkvöðla-
skóli, en þann 11. nóvem-
ber hófst baráttan gegn
matarsóun á hinni samnor-
rænu námsgátt Norrænu fé-
laganna, nordeniskolen.org.
Allir skólar á Norðurlöndun-
um hafa fengið aðgang að námsefni
um norrænar auðlindir og hráefni.
Nemendur eru hvattir til þess að vera
meðvitaðir um matarsóun, vigta af-
ganga og skoða neysluvenjur sínar.
Námsefnið er aðgengilegt á fimm
norrænum tungumálum. Þar er velt
upp spurningum eins og hvað
getum við lært hvert af
öðru? Hvaða þýðingu
hafa fiskveiðar fyrir Ís-
lendinga? Hvernig geta
eldri korntegundir
Danmerkur og Noregs
framvegis verið nýtt-
ar í brauð? Hvernig á að
stjórna skóglendi Svíþjóð-
ar og Finnlands svo það nýt-
ist bæði til gagns og gamans í framtíð-
inni? Einnig er áhersla lögð á að skoða
kjötframleiðslu með gagnrýnum
hætti enda er hún einn stærsti orsaka-
valdur loftslagsbreytinga í dag. n
Nemendur fræddir
um matarsóun
Nýtt námsefni sem er aðgengilegt fyrir öll Norðurlöndin
Tendra ljósin
Á sunnudaginn 29. nóvember,
þann fyrsta í aðventu, verða ljósin
tendruð á Óslóartrénu við athöfn
á Austurvelli. Dagskráin hefst
klukkan 15.30 og lýkur klukkan
17.00, en þetta markar upphaf
jólahalds í borginni. Gerður G.
Bjarklind verður kynnir. Með-
al þeirra sem fram koma eru þau
Stefán Hilmarsson og Ragnheiður
Gröndal. Líkur eru á því að jóla-
sveinar stelist snemma til byggða
auk þess sem Birkir Elías Stefáns-
son, sjö ára, tendrar ljósin á trénu.
„Okkur finnst alltof
mikil græðgi ríkjandi“
n Leigusalar veittu afslátt af húsaleigu í desember n „Bjóst ekki við þessu“
É
g bjóst engan veginn við þess-
um viðbrögðum, þetta fór eins
og eldur um sinu um allt,“ seg-
ir Gunnar Már, en skeyti hans
á hinum fjölmenna Facebook-
hóp „Leiga“ vakti gríðarleg viðbrögð.
Í skeytinu tilkynnti Gunnar Már að
leigusalar hans hefðu ákveðið að
gefa honum 10 prósent afslátt af
leigunni í desember sem jólagjöf
til hans. Viðbrögðin voru gríðarleg
og fljótlega höfðu um tvö þúsund
einstaklingar líkað við færsluna.
Íbúð á besta stað í miðbænum
„Þetta er búin að vera mjög nei-
kvæð umræða um leigusala og
þessi markaður er náttúrlega mjög
erfiður fyrir marga. Ætli það skýri
ekki þessi miklu viðbrögð,“ seg-
ir Gunnar Már. Hann flutti inn í
íbúðina sem hann leigir í byrjun
þessa árs. „Þetta er íbúð á besta
stað í miðbænum og leigusalarnir
eru auk þess afar sanngjarnir varð-
andi leiguverðið. Samskiptin eru
hins vegar ekki mikil en við ræð-
um saman af og til eins og gengur.
Ég átti hins vegar engan veginn von
á þessari jólagjöf, þetta kom mér
mjög á óvart,“ segir Gunnar Már og
er augljóslega alsæll með leigusal-
ana sína. Aðspurður hvort hann
hyggist flytja eitthvað á næstunni,
segir Gunnar Már hlæjandi: „Það
er ekkert fararsnið á mér, ég held
að ég sé í góðum málum miðað við
marga aðra.“
Toppurinn ef Íbúðalána-
sjóður gerði hið sama
Leigusalarnir sendu Gunnari Má
skilaboð um jólagjöfina á Facebook
og hann mátti til með að deila því
áfram. „Mér fannst þetta svo flott hjá
þeim að ég ákvað að deila þessu til
annarra leigjenda og leigusala. Það
kom mér ánægjulega á óvart að ein-
hverjir höfðu sömu sögu að segja og
jafnvel höfðu aðrir leigusalar haft
þetta sem reglu,“ segir Gunnar Már
og vonar að sem flestir leigusalar
taki hugmyndina til sín. „Ég skil vel
að margir leigusalar eru ekki í þeirri
aðstöðu að gefa slíkan afslátt en
vonandi grípa þeir sem geta þessa
hugmynd á lofti. Toppurinn væri ef
Íbúðalánasjóður færi að gefa slíkar
jólagjafir,“ segir Gunnar Már og hlær.
Leigjendurnir eiga gjöfina skilið
Leigusalar Gunnars Más voru ekki
áfjáðir í að hreykja sér undir nafni
í fjölmiðlum og drógu úr góðverki
sínu. „Okkur finnst alltof mik-
il græðgi ríkjandi og of lítið eftirlit.
Það hvað þessi markaður er ósann-
gjarn og erfiður kveikti þessa hug-
mynd. Okkur langaði til þess að
gera eitthvað fallegt fyrir báða leigj-
endurna okkar í tilefni jólanna. Þeir
eiga það líka skilið enda traustir og
skilvísir leigjendur og við viljum
ekkert frekar en að samskiptin verði
áfram góð,“ segja leigusalarnir og
benda enn fremur á að leigusalar
hafi hag af því að koma vel fram við
leigjendur. „Með góðri og alúðlegri
framkomu er líklegra að leigjendur
greiði á réttum tíma, gangi vel um
og ef einhver álitamál koma upp þá
er líklegra að hægt sé að setjast nið-
ur og ræða þau í mesta bróðerni.“ n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Ég skil vel að
margir leigusalar
eru ekki í þeirri aðstöðu að
gefa slíkan afslátt en von-
andi grípa þeir sem geta
þessa hugmynd á lofti.
Gunnar Már Jónsson Fékk óvænta en
ánægjulega jólagjöf frá leigusölum sínum.
BURT MEÐ MÚSARÚLNLIÐ
Ei algengasta vandamálið meðal tölvunotenda – bæði barna og fullorðinna
Léir álagi af viðkvæmum
sinaskeiðum úlnliðsins
Minnkar og fyrirbyggir spennu í hendi,
handlegg, öxlum og hálsi
duopad.is
Náúruleg staða með DuoPadSlæm staða handleggs
Meðmæli sjúkraþjálfara
léur og þægilegur
ÚLNLIÐSPÚÐI
aðeins 4 gr.
Fæst á www.duopad.is – árfesting gegn músararmi
DuoPad fylgir hreyfingum
handleggsins í staðinn fyrir að
allur líkaminn þurfi að aðlagast
stuðningi sem liggur á borðinu.
1
2
3
4
EINKENNI MÚSARÚLNLIÐS
Aukinn stirðleiki í hálsi og axlasvæði,
síðar seiðingur út í handlegg.
Verkur upp handlegg að olnboga með
vanlíðan og sársauka.
Verkurinn verður ólíðandi og stöðugur
í olnboga, úlnliðum og öxlum. Stífleiki í
hálsi getur verið viðvarandi.
Fólk getur orðið ófært um að nota
tölvumús og jafnvel óvinnufært.