Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 60
Helgarblað 27.–30. nóvember 201544 Fólk Viðtal nánast á jaðri hins byggilega heims. Nú erum við á miðju umræðu- torginu. Ég get borið vitni um það sem forseti að við getum sagt með sanni að við njótum núna trausts samstarfs við nágranna okkar í vestri, hvort sem það eru Bandaríkin eða Kanada. Við njótum náins samstarfs við öll helstu forysturíki Evrópu. Og við njótum góðra tengsla í vaxandi mæli við forysturíki í Asíu. Við eigum marga kosti í okkar al- þjóðlegu samskiptum. Þegar þeir bæt- ast við auðlegð landsins og hæfileika fólksins sjálfs og tækifærin til að nýta þá hæfileika þá væri það meiri háttar klaufaskapur ef okkur tækist ekki sem þjóð á næstu áratugum að byggja á þessum trausta grunni. Mér finnst miður að þeir sem vilja halda til haga árangri Íslendinga séu sakaðir um þjóðrembu. Um leið og þeir halda fram kostum Íslands og árangri Íslendinga eru þeir sagðir fara með ýkjusögur. Það er eins og ætlast sé til að þeir haldi bara á lofti brotalömum eða öðru sem dregur kjarkinn úr ungu fólki. Eitt af því sem er nauðsynlegt til að ná árangri er að hafa kjark til að gera nýja hluti. Ungt fólk þarf að fá skilaboð um að það er hægt að ná miklum árangri með því að byggja áfram á Íslandi sem heimavelli um leið og tekist er á við erfiðleika og vandamál á raunsæjan hátt og sam- einast um umbætur. Það er hins vegar svartur blettur á samfélagi okk- ar að of margir búa við sára fátækt og erfiðleika. Mér er það enn ráðgáta af hverju ekki tekst í þessu litla landi að ná samstöðu ríkis, sveitarfélaga og annarra um að tryggja að enginn þurfi að glíma við daglegan skort eða fátækt í okkar landi.“ Sérstakur bókasiður Nú líður að jólum. Skipta jólin þig máli? „Já, þau hafa að sjálfsögðu alltaf gert það, kannski er það arfleifð frá uppeldi mínu vestur á fjörðum. Jólin voru stórviðburður í vestfirsku sjávar plássi og eini tíminn á árinu sem epli bárust í þorpið. Mikil helgi fylgdi síðan jólaguðþjónustunni í þorpskirkjunni. Þessi andi hefur alltaf fylgt mér og gert að verkum að jólin eru fyrir mér eins og mörgum öðrum ekki bara trúarhátíð heldur líka hátíð fjölskyldu og samfélags. Við í fjölskyldunni höfum alltaf lagt mikið upp úr jólunum, bæði meðan Búbba var á lífi og síðan eftir að Dorrit varð hluti af fjölskyldunni þótt hún sé annarrar trúar. Við Dorrit höfum verið heima hjá Döllu og Tinnu til skiptis á aðfangadags- kvöld og um jólin reynum við öll að koma saman á Bessastöðum ásamt stjúpdætrum mínum, Þóru og Erlu. Það er sérstakur blær yfir Bessa- stöðum jóladagana. Messan á að- fangadag í Bessastaðakirkju hefur alltaf sinn sess og ýmsir hafa fyrir sið að koma í þá messu þótt þeir búi ekki á Álftanesi. Þetta er líka mjög skemmtilegur tími þegar kemur að bókum. Ég hef lengi horft á jólin og vikurnar í des- ember sem tímann þegar maður kaupir nýjar bækur og les þær og fylgist með þeirri ótrúlegu nýsköp- un sem er í íslenskum bókmennt- um. Fyrir nokkrum árum bjó ég til sérstakan sið varðandi afmælisdaga barnabarnanna sem sum eiga af- mæli í mánuðunum nærri jólum. Ég fer með þau, hvert fyrir sig, í smá leið- angur þar sem þau geta valið sér af- mælisgjafir en það er alltaf skilyrði að líka verði farið í bókabúð þar sem þau fá að velja sér bækur. Það er gaman að fá að skoða bækurnar, sem hafa kom- ið út, með augum barnanna. Ég upp- lifi tvöfalda ánægju varðandi bókaút- gáfuna um jólin vegna þess sem ég vel handa sjálfum mér og svo vegna þessara leiðangra sem ég fer í með barnabörnin. Mér sýnist reyndar vera óvenju margar forvitnilegar bækur á markaði um þessi jól. En jólin eru líka vinnutími hjá mér. Nýársávarpið hvílir í huga manns sem verkefni þessa daga og samningu þess er ekki lokið fyrr en dagana milli jóla og nýárs.“ Augu greinandans Talandi um nýársávarpið. Ertu búinn að taka ákvörðun hvort þú hættir sem forseti eða heldur áfram? „Niðurstaða af þessu tagi fæst ekki á einhverri einni stundu. Eitt af því sem skapar mér vanda í þessum efnum er að ég er sífellt að hitta fólk sem hvetur mig til að halda áfram. Það er óneitanlega umhugsunarefni hvers vegna hugarástand hjá þjóð- inni sé með þeim hætti að það sé ekki yfirgnæfandi skoðun þorra þjóðarinnar, ef ekki allrar, að það sé í fínu lagi að ég hætti. Ég horfi á samfélagið og forseta- embættið að nokkru leyti með aug- um greinandans og reyni að taka sjálfan mig út úr myndinni. Þá er það visst áhyggjuefni að það skuli enn vera svo ríkt í hugum manna að það þurfi að vera á Bessastöðum einstak- lingur sem ekki haggast í róti um- ræðunnar, bloggsins og hitans sem fylgir átökum dagsins. Þar með er ég ekki að segja að ég sé eini maðurinn sem geti gegnt því hlutverki. Ég hef sagt við marga að ekki sé hægt að gera þá kröfu á mig að ég sé alltaf þessi kjölfesta. Ég er búinn að vera lengi í þessu embætti og það felur í sér margvíslegar takmarkanir á einkalífi, sem ég ætla ekkert að tíunda, en eru hluti af þeirri upplifun og skyldum sem felast í embættinu. Eins og ég fjallaði um í síðasta áramótaávarpi, þá taldi ég rétt að láta af embættinu fyrir fjórum árum; það var einlæg skoðun og niðurstaða okkar Dorritar. Síðan hófst atburða- rás sem allir þekkja. Sumir hafa túlk- að það þannig að þarna hafi verið á ferð klækjastjórnmál af minni hálfu en það er algjör misskilningur. Í þessu embætti læra menn að bera virðingu fyrir embættinu og að bera virðingu fyrir þjóðinni. Menn átta sig fljótlega á því þegar þeir eru kosnir til þessa trúnaðar að það er vilji þjóðarinnar sem ræður. Það er sú skylda sem sérhver, sem gegnir þessu embætti, verður að meta mest. Lær- dómurinn er sá að þjóðin ræður.“ n Kemi ehf. kemi@kemi.is Tunguhálsi 10 110 Reykjavík Sími: 415 4000 www.kemi.is ER HESTHÚSIÐ KLÁRT FYRIR VETURINN? Krafthreinsir pH 14 er afar öflug basísk sápa sem vinnur gríðarlega vel á erfiðum óhreinin- dum sem og fitu og próteinum sem safnast í stíum og göngum hesthúsa. “Krafthreinsir er öflugasta sápan sem ég hef prófað í hesthúsið, leysir upp fitu og erfið óhreinindi. Minna skrúbb.” Nova X-Dry er undirburður sem skapar dýrunum þurrt umhverfi, eyðir ammoníaks- lykt. Spillir vaxtarskilyrðum baktería og dregur úr fjölgun flugna og skordýra. Hefur mikla ísogsgetu (allt að 200% af nettóþyngd). “Nova X-Dry er tilvalið að nota c.a. 1-2 x í viku með spæni eða kögglum.” Virkon S er mjög öflugt veirueyðandi sótthreinsiefni með víðtækri virkni. Áhrifaríkt gegn veirum, bakteríum og sveppagróum. Kjörið í gripahús, yfirborð, gólf, ílát, borð og tækjabúnað o.fl. “Virkon S er gott og öflugt veirueyðandi sótthreinsiefni með víðtæka virkni.” Björgvin Þórisson Dýralæknir Sindri Sigurðsson Reiðkennari „Það er óneitanlega umhugsunarefni hvers vegna hugarástand hjá þjóðinni sé með þeim hætti að það sé ekki yfir­ gnæfandi skoðun þorra þjóðarinnar, ef ekki allrar, að það sé í fínu lagi að ég hætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.