Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 28
Helgarblað 27.–30. nóvember 201528 Fréttir Erlent
Órjúfanlegur hluti af jólunum
Nýfætt barnið
grét í jötunni
n Húsvörður fann yfirgefið barn í kirkju n Barnið nokkurra klukkustunda gamalt
L
ítið barn sem fannst í jötu
í einni af kirkjum New
York-borgar hefur fengið
viðurnefnið „litla Jesúbarnið.“
Barnið fannst á miðvikudag
í kirkju Heilaga barnsins, Jesú, í
Queens þegar húsvörður heyrði óm
af barnsgráti. Hann gekk á hljóðið
og fann nýfætt barnið í jötu sem til-
heyrir uppstillingu sem á að sýna
fæðingu Jesú Krists. Barnið grét
mikið, var augljóslega nýkomið í
heiminn og var enn með naflastreng.
Líklega hefur það verið um fjögurra
klukkustunda gamalt. Barnið hafði
verið reifað í handklæði og lá við
hlið helgimyndar af Maríu mey. Lík-
lega hefur móðirin komið með það
í kirkjuna í hádeginu á mánudag,
þegar húsvörðurinn, Jose Moran, var
í matarhléi. Uppstillingin hafði verið
sett upp aðeins klukkutíma áður en
barnið fannst. Upptökur úr öryggis-
myndavélum sýna konu kaupa sams
konar handklæði og barnið hafði
utan um sig í verslun rétt hjá kirkj-
unni. Barnið var sýnilega vafið inn í
jakka hennar.
„Þegar ég heyrði barnið gráta,
hugsaði ég ekki mikið um það í
fyrstu. Svo leit ég í kringum mig og
sá að það var enginn í kirkjunni. Þá
varð ég forvitin og gekk á hljóðið,“
segir Jose. „Ég er feginn að sá sem
yfirgaf barnið kom með það á
öruggan stað og skildi það ekki eftir
til að deyja.“
Í reglum New York-borgar
segir að mæður geti komið með
börnin sín á örugga staði, svo sem
slökkvistöðvar, kirkjur, spítala og
lögreglustöðvar og skilið þau eft-
ir þar. Eina skilyrðið er að mæð-
urnar afhendi einhverjum börnin.
Ekki má skila þau eftir í reiðileysi.
Móðir barnsins getur því búist við
því, gefi hún sig fram, að hún verði
ákærð fyrir að ógna öryggi barns-
ins. Barnið er í góðum höndum á
sjúkrahúsi í New York og er á for-
ræði barnaverndaryfirvalda. Kirkj-
an biður fólk um að biðja fyrir móð-
ur barnsins, hvar sem hún kann að
vera. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Klukkutíma gluggi Líklega var barnið
bara fjögurra tíma gamalt og móðir þess
hafði að líkindum komið með það í kirkjuna
klukkustund áður en það fannst.
Nýfæddur
Drengurinn var
vafinn inn í blá
handklæði.
Að störfum Sjúkraflutningamenn að störfum fyrir utan kirkjuna.