Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 48
Helgarblað 27.–30. nóvember 20158 Jólagjafahandbók - Kynningarblað
Hótelið sem aldrei sefur
Gjafabréf að sveitasælu á Hótel Grímsborgum er einstaklega ljúf jólagjöf
H
ótel Grímsborgir er á gull-
fallegum stað í kjarrivöxnu
landi við Sogið í Gríms-
nesi, glæsilegt 4 stjörnu hót-
el sem býður upp á gistingu
í 44 superior-herbergjum, 7 junior-
svítum, 5 stúdíóíbúðum og 7 lúxus-
íbúðum. Gistipláss er fyrir samtals
200 gesti. Hótel Grímsborgir er opið
allan sólarhringinn allan ársins hr-
ing og er vinsælt bæði meðal Ís-
lendinga sem vilja lyfta sér upp og
hlaða batteríin í nýju umhverfi og er-
lendra ferðamanna sem vilja njóta
landsins.
Hótel Grímsborgir er með frábært
og bjart fundarherbergi fyrir alls kyns
fundahöld og ráðstefnur þar sem
þekktustu fyrirtæki landsins halda
mikilvæga fundi.
Hótel Grímsborgir er afar vinsæll
staður fyrir hvers konar samkom-
ur, hópaferðir og veisluhöld enda
aðstaða til þess á staðnum frábær.
Algengt er að halda upp á stóraf-
mæli á hótelinu, til dæmis fertugs-,
fimmtugs- og sextugsafmæli, og þá
gista yfirleitt allir veislugestir. Brúð-
kaup eru einnig vinsæl ásamt starfs-
mannaskemmtunum.
Í boði er akstursþjónusta, til
dæmis fyrir og eftir fundahöld, þar
sem notast er við glæsilega Mercedes
Sprinter-rútu með plássi fyrir 19 far-
þega.
Gjafabréf: Draumajólagjöf –
margs konar gisting í boði
Gjafabréf frá Hótel Grímsborgum
munu gleðja marga um þessi jól
enda dásamlegt að eiga í vænd-
um lúxusgistingu á fjögurra stjörnu
hóteli í fagurri íslenskri náttúru.
Gistimöguleikarnir fyrir gjafabréf
eru margvíslegir og nánar má lesa
um það á vef hótelsins undir liðnum
Gjafabréf og tilboð.
Hér er dæmi um ljúfa gisti-
möguleika. Síðan er bara að byrja
að láta sig dreyma og stinga þessari
jólagjafahugmynd að ástvinum sín-
um:
Gjafabréf á sveitasælu við Sogið
í Grímsnesi og gistingu í glæsilegu
superior 24 fm herbergi og þéttskip-
aðan skemmtidag. Superior-her-
bergin eru mjög rúmgóð, björt og
notalega innréttuð. Úr hverju her-
bergi er útgengt á litla verönd.
Veitingastaður hótelsins var opnað-
ur sumarið 2014 og er rómaður fyrir
góðan mat, glæsilega framsetningu
og bæði huggulega og glæsilega um-
gjörð.
Innifalið • 1 nótt í superior 24 fm
superior-herbergi með baðslopp
og aðgangi að heitum potti. • Köku-
skreytinganámskeið. • Brauðgerðar-
námskeið. • Hvítvínskynning. •
Glæsilegur 3ja rétta kvöldverður á
Restaurant Grímsborgum þar sem
allir elda. • Diplóma (viðurkenn-
ingarskjal) og uppskriftir. • Morgun-
verðarhlaðborð. n