Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 92
Helgarblað 27.–30. nóvember 201576 Fólk
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is
Skrítnustu auglýsinga-
samningar stjarnanna
n Hollywood-stjörnurnar drýgja tekjurnar með auglýsingasamningum
E
in af ástæðunum fyrir gífur-
legu ríkidæmi stjarnanna í
Hollywood eru gróðavænleg-
ir auglýsingasamningar þar
sem uppáhaldsstjörnurnar
okkar dásama allt frá sturtusápu til
tölvuleikja. Stundum getur maður
þó ekki annað en klórað sér í hausn-
um yfir því af hverju fyrirtækin völdu
hina og þessa stjörnu til að auglýsa
vöru sína og af hverju stjörnurnar
vildu selja andlit sitt hinum ýmsu
misgáfulegu vörutegundum. Getur
til að mynda einhver svarað því af
hverju Olsen-systur féllust á að setja
nafn sitt á tannkremstúbu? n
Viðskipta-
vinirnir veiktust
Eins og margt tónlistarfólk hefur
Jessica Simpson verið á samningi
hjá hinu og þessu fyrirtækinu.
Eitt skiptið fór söngkonan í
samstarf með snyrtivörufyrir-
tækinu Sephora sem framleiddi
sykraðan rjómakenndan
varasalva. Samvinnan stóð ekki
lengi og lauk með málsókn og
látum þegar viðskiptavinir
sögðust hafa veikst við
notkunina.
Á öllu Þegar þú hugsar um
Olsen-systur langar þig þá strax að
tannbursta þig? Varla, en árið 2003 fékk
umboðsmaður systranna þá hugmynd að
koma andlitum systranna á nánast allar
vörur sem fólk þarfnast í daglegu lífi. Andlit
og nöfn Mary-Kate og Ashley var að finna á
húsgögnum, tölvuleikjum, fatnaði og
tannkremi. Það verður þó að viðurkennast
að systurnar státa af fallegu brosi.
Rihanna og bjórinn
Einhvern veginn verður allt sem söngkonan
Rihanna snertir að gulli sem hefur orðið til
þess að hún getur valið úr tilboðum alls kyns
risafyrirtækja. Það kom því mörgum á óvart
að bjórrisinn Budweiser yrði fyrir valinu árið
2013. Söngkonan birtist í auglýsingum
bjórfyrirtækisins sem svo fjármagnaði
tónleikaferðalag hennar. Skál fyrir því!
Stórmarkaðs-Britney Ein ástæða fyrir
vinsældum Britney Spears er sú að þótt auðæfi hennar séu metin á yfir
165 milljónir Bandaríkjadala þá leyfir hún sér enn að lifa eins og við hin.
Af og til allavega. Britney vílar ekki fyrir sér að versla í stórmörkuðum á
borð við Target og Wal-Mart en þar eru aðrar Hollwood-stórstjörnur
sjaldgæf sjón. Þess vegna kom það ekki svo mikið á óvart þegar söngkonan
gerði samning við tískumerkið Candie's fyrir verslunina Kohl árið 2010 þótt
flestum hefði fundist hún full gömul fyrir vörurnar sem hún auglýsti.
Bieber og nagla-
lakkið Mörgum fannst samstarf
poppprinsins Justins Bieber við naglalakks-
framleiðandann OPI undarlegt. Samvinnan
gekk hins vegar fullkomlega upp og
naglalökkin seldust í bílförmum.
Fiat af
öllum bílum
Fáir hefðu getað giskað á
að söngkonan Jennifer
Lopez myndi velja bílafram-
leiðandann Fiat til samstarfs. Alls kyns
samsæriskenningar spruttu upp eftir
auglýsinguna sem á að gerast í New York en
var tekin víðsvegar í Ameríku auk þess sem
söngkonan var gagnrýnd fyrir að nota
tvífara í flestar tökurnar. Bíllinn á líka að
hafa bilað fimm sinnum við tökur en
aðalatriðið er líklega það að Jennifer Lopez
myndi aldrei keyra um á Fiat. Nema
náttúrlega ef hún fengi borgað fyrir það.
Auglýsti
morgunkorn
Af hverju valdi Usher að
auglýsa fyrir Honey Nut
Cheerios? Getur einhver
svarað því?
Auglýsa allt Svo virðist sem
Kardashian-systur séu til í að auglýsa allt
fyrir rétt verð hvort sem það eru strigaskór,
líkamsræktarmyndbönd, ilmvötn,
megrunarpillur og jafnvel fyrirframgreidd
kreditkort. Kortið var að vísu tekið úr notkun
fljótlega eftir að það var sett á markað eftir
harða gagnrýni á himinháa vexti og
markaðsherferð sem einblíndi á ungt fólk.
Systurnar hafa ekki minnst á kortið síðan.
Heimilisgyðjan Ozzy
Það er líklega óhætt að halda því fram að
engum hafi dottið
rokkhundurinn
Ozzy Osbourne
í hug í tengslum
við köku-
bakstur. Ekki
fyrr en
tónlistarmað-
urinn gerði
samning við I
Can't Belive It's Not Butter. Ozzy birtist í
auglýsingum viðbitsins um árabil eftir að
hafa unnið hug og hjörtu landsmanna sem
hinn skrautlegi fjölskyldufaðir í raun-
veruleikaþættinum The Osbournes.
Nekt selur Skyndibitakeðjan Carl's Jr veðjaði á París Hilton til að auglýsa
hamborgara í afar umdeildri auglýsingu sem skartaði hótelerfingjanum á nærfötunum að
þrífa bíl á meðan hún hámaði í sig hamborgara.
Jógurtsjúk leikkona
Þótt Jamie Lee Curtis sé heimsfræg og rík
leikkona fær hún stundum meltingartrufl-
anir. Allavega hefur hún auglýst jógúrt við
magaverk frá árinu 2007.