Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 64
Helgarblað 27.–30. nóvember 201548 Fólk Viðtal Mátaði sig sem lesbía Hera tók þátt í Eurovision fyrir Ís- lands hönd árið 2010, með lagið Je ne sais quoi en ári áður hafði hún tekið þátt í forkeppninni í Dan- mörku með laginu Someday og lent í öðru sæti. En það var einmitt þátt- takan í Eurovision sem kom henni á kortið. „Minn aðal aðdáenda hópur er erlendis. Hann er meira og minna í Evrópu og núna í Suður-Ameríku. Mér finnst alveg magnað hvað það eru margir sem fylgjast með mér og það er eingöngu út af Eurovison. Það var tækifæraglugginn minn.“ Eftir keppnina 2010 byrjuðu Hera og umboðsmaðurinn hennar, Val- geir Magnússon, að vinna í öllum tækifærunum sem buðust og þau verkefni sem hún er að vinna að í dag eru hugsuð fyrir þennan er- lenda markað sem opnaðist í kjöl- far Eurovision. „Einhverra hluta vegna þá hefur gay-heimurinn tekið mér opnum örmum. Mér finnst það alveg frá- bært því barátta þeirra er sú barátta sem ég hef valið að taka þátt í. Það er eitthvert samband á milli mín og gay-heimsins sem er ofsalega fal- legt. Ég segi oft að ég sé eitt stærsta gay „wannabe“ í heiminum. Ég reyndi líka að vera gay,“ segir Hera og skellir upp úr. „Ég reyndi að sannfæra sjálfa mig um að ég gæti orðið frábær lesbía. Þegar ég skildi við manninn minn á sínum tíma þá fannst mér þetta svo frábær lausn á öllum karlavandamálum. Svo á ég yndislega lesbíska vin- konu í Danmörku sem sagði mér að hafa samband þegar ég loks- ins myndi átta mig á því að ég væri lesbía og ég sagðist svo sannarlega ætla að gera það. Ég fór mjög mikið að spá í þetta og ráðfærði mig við fólk sem ég treysti. Ég reyndi mjög mikið að selja þessa hugmynd en fólk var ekki alveg að kaupa hana. Það var ekki fyrr en ein góð vin- kona mín fór aðeins með mér yfir kynlífið og spurði hvort ég væri til í hitt og þetta, að ég áttaði mig á því að ég var virkilega gagnkyn- hneigð – og varð að sætta mig við það. Ég var nefnilega heldur ekki til í platónskt lesbískt samband.“ Kynntist manninum á einkamal.is Það var kannski eins gott að Hera fór ekki að reyna fyrir sér í lesbísk- um samböndum því ekki leið á löngu þar til hún kynntist núver- andi manni sínum. En þau fundu hvort annað með hjálp internets- ins. „Systir mín náði að telja mér trú um að það væri sniðugt að fara á einkamal.is. Það var eftir ein- hverja helgina sem ég hafði verið að djamma með vinkonum mín- um og hafði fengið átta tilboð frá misdrukknum karlmönnum sem buðu mér að koma heim og syngja fyrir þá. Þá hugsaði ég með mér að ég þyrfti að fara aðra leið. Helst þar sem ég þekktist ekki.“ Hera og maðurinn hennar spjölluðu lengi saman áður en þau loksins hittust, en hún var þó búin svipta af sér hulunni löngu fyrir þann tíma. „Ég missti það út úr mér í annarri viku og var svo feg- in að hann hörfaði ekki. Að hann þyrði í alvöru í mig. Þetta var alveg dásamlegt því við vorum bæði að vanda okkur svo mikið við að finna lífsförunaut og vin. Gildi okkar eru svipuð, en hann er skemmtilega jarðbundinn á meðan ég er eins og flugdreki sem hann heldur í. Svo styður hann mig í allri klikkuninni sem mér dettur í hug og það er al- veg ómetanlegt,“ segir Hera einlæg og það fer ekki á milli mála að hún er hamingjusöm með sínum manni. Þau eru dugleg að rækta sambandið og viðhalda neistan- um, sem er að hennar mati mjög nauðsynlegt. Flakkaði á milli kennara Hera hefur sungið síðan hún man eftir sér og það má með sanni segja að sönghæfileikana hafi hún fengið með móðurmjólkinni, enda mamma hennar söngkona líka. Það var því mjög snemma ljóst í hvað stefndi þó að Hera streitt- ist svolítið á móti og reyndi fyrir sér á öðrum sviðum. En hún lærði líka söng. Flakkaði reyndar á milli kennara þangað til hún fann hinn eina rétta. „Mér gekk illa að finna kennara sem talaði mitt tungumál. Framan af lærði ég eiginlega bara samskipti, lög og texta, en ég lærði ekki á röddina mína fyrr en ég fór til Danmerkur 32 ára. Þar hitti ég kennara sem hentaði mér og ég kynntist loksins röddinni minni og tengdist sjálfri mér betur. Í kjölfar- ið þurfti ég að fara að gera upp alls konar skítamál úr minni fortíð. Ég varð bara að gera því því ég hafði náð svo góðri tengingu við röddina. Hjartastöðvarnar og röddin eru svo tengd.“ Varð fyrir kynferðisofbeldi Eitt af þeim málum sem Hera varð að gera upp tengdist kynferðislegri misnotkun sem hún varð fyrir þegar hún var 12 ára. „Ég hélt þessu út af fyrir mig í mörg ár og burðaðist ein með þetta þangað til ég átti strákinn minn. Þá var eins og rúllugardínu hefði verið kippt upp og þetta hellt- ist allt yfir mig. Ég byrjaði að vinna í þessu í kjölfarið og kláraði það endanlega þegar ég var í söngnám- inu í Danmörku. Þá fór ég í gegn- um sátta- og fyrirgefningarferli sem reyndist mér mjög vel.“ Sá sem braut á Heru var hálf- gerður ógæfumaður sem ekki hefur átt sældarlíf. Hún þekkti hann ekki persónulega þegar brotið átti sér stað, en vissi af tilvist hans. Í upp- gjörinu við sjálfa sig tók hún hins vegar ákvörðun um að kæra hann ekki. Hún segist lengi hafa efast um að kynferðisofbeldið hafi átt sér stað, en síðar þegar hún fór að lesa sér til um viðbrögð við slíku ofbeldi þá hafi komið í ljós að hún var skólabókardæmi um brota- þola. Að efast er algeng viðbrögð. „Þetta er svipað og með fósturmis- sinn, það er alltaf ákveðin sjálfs- ásökun til staðar. Þetta var mér að kenna og mér fannst ég hafa boðið upp á þetta. Og eftir fósturmissinn þá fór ég til dæmis að hugsa að ég hefði ekki átt að fara á flug, ég hefði ekki átt að beygja mig á ákveðinn hátt eða ganga of hratt. En svona hugsanir geta bugað mann. Mað- ur verður að þakka fyrir það sem maður lærir af allri lífsreynslu. Þetta er það sem hefur gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag og svona misbrestir gera mann ef- laust dýpri. Ég held að sem lista- maður nái ég betri tengingu við fólk fyrir vikið. “ Gamall draumur rætist Framundan hjá Heru eru jólatón- leikar í Grafarvogskirkju á morgun, laugardag, þar hún syngur inn að- ventuna ásamt góðum gestum. Þar mun rætast hjá henni gamall draumur þegar hún stígur á svið með Kristni Sigmundssyni óperu- söngvara. Þau hafa ekki sungið saman áður og Hera viðurkennir að vera eins og spennt smástelpa á jólum yfir tónleikum þeirra saman. „Hann er búinn að vera átrúnaðar- goð mitt og fyrirmynd síðan ég fór á fyrirlestur hjá honum í Gerðubergi þegar ég var 18 ára Söngskólamær. Um leið og hann byrjaði að tala og syngja þá snerti hann hjartað í mér. Hann er með alveg stórkostlega rödd og ég set hann og Pavarotti al- veg á sama stall. Svo er hann líka stórkostleg manneskja, sem á sinn þátt í því að hann hefur átt svo frá- bæran feril. Við erum bara að kynn- ast núna en ég er strax komin með milljón hugmyndir að því hvernig ég get nýtt hans krafta og samtvinn- að þá mínum. Ég veit sosum ekkert hvort hann verður jafn hrifinn af þeim hugmyndum, en ég viðra þær allavega við hann,“ segir Hera hlæj- andi. En hún er líka með annað verk- efni í smíðum, sem tengist ekki Kristni Sigmundssyni. Hún er ekki tilbúin að gefa of mikið upp um verk efnið að svo stöddu, en þó nóg til að gera lesendur spennta. „Ég er að skrifa verk sem fjallar um mig og líf mitt. Þetta verður blanda af tón- list og uppistandi. Ég er búin að ganga með þetta í maganum í tíu ár og nú er ég komin á þann stað að ég tel mig vera tilbúna,“ segir Hera og brosir. „Ég er 43 ára og mjög hamingjusöm. Lífið er bara svo skemmtilegt,“ bætir hún við að lokum. n „Í mínum huga sner- ist þetta aldrei um að fara út og „meika það“ „Maður verður að þakka fyrir það sem mað- ur lærir af allri lífsreynslu Ekki mistök Hera segist upplifa það í kringum sig að fólki finnist henni hafa mistekist í Chile því hún hafi ekki „meikað það“. Mynd SiGtryGGur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.