Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Síða 49
Helgarblað 27.–30. nóvember 2015 Kynningarblað - Jólagjafahandbók 9
Hallgrímur Andri
Ingvarsson Eigandi
Fish Spa Ísland.
Gjafakort í Fish Spa Ísland
er frábær jólagjöf
Algjört dekur, skemmtun og hollusta í senn
F
ish Spa Ísland, Hverfisgötu
98 (á horni Hverfisgötu og
Barónsstígs), er fyrsti og
eini staður sinnar tegund-
ar hér á landi. Staðurinn var
opnaður í júní 2013 og síðan þá
hefur aðsóknin vaxið jafnt og þétt.
„Kostirnir eru fjölmargir.
Manni líður mjög vel við að kom-
ast í snertingu við fiskana. Þetta
er mikil slökun, fiskarnir eru alveg
tannlausir. Þeir fjarlægja dauða
húð og skilja eftir sig sérstakt
ensím sem lætur húðina endur-
nýja sig þannig að hún verður
miklu mýkri og sléttari,“ segir Hall-
grímur Andri Ingvarsson, eigandi
Fish Spa Ísland. Hann segir að
sumir segi að þetta sé eins og að
fara í fótsnyrtingu. En heilsusam-
leg áhrif af því uppátæki að stinga
fótum ofan í ker full af nartandi
fiskum eru ekki upptalin:
„Þeir eru líka taldir auka blóð-
streymi í fótunum og þeir eru al-
gjörir snillingar í að ýta á tauga-
enda og taugapunkta í fótunum.
Þetta er því mjög slakandi. Fyrst
kitlar þetta rosalega mikið og svo
róast fólk niður og það færist yfir
það vellíðan.“
Hallgrímur segir að mikill
hlátur hljómi jafnan á staðnum
þegar fólk kitlar í byrjun og þetta
vekur kátínu og skemmtilega
stemningu. Oft er ferð í Fish Spa
Ísland hluti af lengra prógrammi
þegar fólk vill lyfta sér vel upp. Auk
þess, segir Hallgrímur:
„Við höfum fengið hingað enda-
laust af gæsunum og steggjunum.
Hingað koma heilu hóparnir og
þá er mikið gaman, allir fara ofan
í og skemmta sér vel. Þetta er mjög
skemmtilegt, þetta er umfram allt
mikil upplifun, enda um lifandi
verur að ræða – fiskana. Síðast en
ekki síst er þetta dekur – algjört
dekur.“
Öðruvísi jólagjöf
En ferð í Fish Spa Ísland er líka
ljómandi fín gjafahugmynd:
„Þetta hentar í ýmsar gjafir, til
dæmis afmælisgjafir – en ekki síst
jólagjafir. Við erum með snyrtileg
og falleg gjafabréf sem hægt er að
pakka inn eða setja í umslag. Þetta
er klárlega gjöf sem kemur á óvart.
Skemmtileg jólagjöf – öðruvísi
jólagjöf.“
Klárlega á heimsmælikvarða,
betri umhirða en víða erlendis
Margir Íslendingar hafa séð Fish
Spa erlendis og þekkja því til þess.
Hallgrímur segir að þeir sem hafi
prófað Fish Spa erlendis álíti Fish
Spa Ísland vera á heimsmæli-
kvarða. Til dæmis er aðstaðan
mun snyrtilegri en víða annars
staðar:
„Það er líka meira í þetta lagt
hjá okkur. Mér finnst að sums stað-
ar þar sem ég sé þetta erlendis sé
miklu minna hugsað um þetta. Hér
á landi eru hins vegar strangari
staðlar en víða annars staðar hvað
varðar umhirðu og hreinlæti.“
Nánari upplýsingar um Fish
Spa Ísland má fá á heimasíðunni
www.fishspa.is og á Facebook-
síðu fyrirtækisins: www.facebook.
com/FishSpaIceland. n