Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Side 63

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Side 63
Helgarblað 27.–30. nóvember 2015 Fólk Viðtal 47 með sér. Þetta er ekki merkilegt fyrir neinn nema mann sjálfan. Ég var búin að tengjast og stilla mig inn á nýjan draum. Nýja framtíðar­ sýn. Við vorum búin að spá í fram­ tíðina, húsnæðismál og vinnuna. Það tekur nefnilega ekki nema viku að endurraða lífinu sínu. Þetta var í þriðja skipti sem við misstum svo ég var orðin pínu töffari og ætlaði ekki að taka þetta inn fyrr en allt væri orðið pottþétt. En þegar ég var alveg að detta í þrjá mánuðina þá fór ég aðeins að leyfa mér að hugsa um þetta. Ég keypti litla samfellu og brjóstagjafarbol. Þegar maður leyfir sér þetta þá er allt orðið svo raun­ verulegt. En svona er lífið og líkam­ inn losar sig við það sem hann þarf að losa sig við í staðinn fyrir að mað­ ur fái í hendur eitthvert stórkostlegt verkefni sem gæti verið manni of­ viða,“ segir Hera hreinskilin. Hún trúir því að það sé ástæðan. Líkam­ inn hafi einfaldlega tekið fram fyrir hendurnar á henni. „Það er auðvitað svakalegt kraftaverk þegar þetta gengur. Og þetta gerði börnin mín tvö, sem ég á, ennþá mikilvægari. En ég þurfti engu að síður að fara í gegnum sorgina. Ég er búin að liggja heima og gráta, langa að sparka í allt og alla og fara upp og niður. Svo hef­ ur sorgin áhrif á röddina, sérstak­ lega þegar maður er svona tengdur henni. Kökkurinn er alltaf á kantin­ um. Ég hef því ekki tekið að mér að syngja í jarðarförum, ég myndi lík­ lega standa á orginu.“ Öðruvísi sorg Þessar yfirvofandi breytingar á lífi fjölskyldunnar voru helsta ástæðan fyrir því að þau ákváðu að koma heim í sumar, en fleira kom til. „Það var mikil óvissa í gangi, bæði hvort ég væri á leið í einhver verkefni og maðurinn minn. Það var líka óvissa í samfélaginu öllu, í pólitíkinni og náttúrunni. Það reið einmitt stór jarðskjálfti yfir eftir að við vorum farin. Það voru mjög skrýtnir tímar í gangi. Þetta var frábær skóli, en það var gott að koma heim, þó að við söknum Chile auðvitað núna þegar veðrið er svona,“ segir Hera brosandi og lítur út um gluggann á nóvemberhretið. Hún er að jafna sig á sorginni og vill endilega opna á umræðu um fósturmissi. „Þetta er sorgarferli þó að það sé ekki hægt að líkja þessu við að missa barn. Þetta er öðruvísi sorg. Þetta er sorg yfir draumi sem aldrei verður að veruleika. Sumir eru komnir með nöfn og allt á þessum tímapunkti. Það var þannig með bæði börn­ in sem ég á. Þá var ég komin á fullt eftir fimm vikur. Ég gat ekki setið á mér fram á tólftu viku.“ Hætt að reyna Hera er svo sannarlega að syrgja draum sem ekki hefur orðið að veruleika. Hún og maðurinn hennar hafa markvisst reynt að eignast saman barn síðustu fjögur ár. Án árangurs. „Núna erum við hætt að reyna. Eða ég aðallega. Ég treysti mér ekki í fleiri rússíbanaferðir. Ég tek þetta bara út eftir tíu ár, þegar ég verð amma. Dóttir mín er 17 ára núna, svo það er fínt hjá henni að byrja eftir tíu ár. Ekki fyrr,“ segir Hera og leggur þunga áherslu þessi skilaboð til dóttur sinnar. En svo á hún líka 12 ára son. „Það hefði auð­ vitað verið dásamlegt að koma með eitt kríli til viðbótar, en það varð ekki.“ Hera segist eiga nokkuð auð­ velt með að ræða missinn í dag, en fyrir einum og hálfum mánuði hefði hún ekki getað það án þess að gráta. „Ég hvet allar konur sem lenda í þessu til að leyfa sér að syrgja og gráta. Þakka fyrir og kveðja.“ Lífið tók völdin Þegar Hera hélt með fjölskyldu sinni til Chile á sínum tíma, þá vissi hún nánast ekkert um land og þjóð. En eftir að hafa sigrað í söngvakeppni í svo fjarlægu landi þá var hún mjög forvitin og vildi kynnast því betur. Og það virtist vera gagnkvæmt hjá Chilemönnum. Þeir vildu endi­ lega kynnast henni. „Það var mjög magnað að hugsa til þess að hinum megin á hnettinum væri land, og heil heimsálfa, þar sem gæti verið markaður fyrir mig. Ég varð eigin­ lega að kanna þetta og fjölskylda mín tók vel í það. Þannig að við fór­ um út í þetta fáránlega verkefni. Við seldum húsið okkar og bílana og hálfa búslóðina og skelltum okkur út. Við gáfum okkur ár til að byrja með, en margir héldu að við værum alfarin. Ég gerði samning við barns­ föður minn um að við fengjum að hafa börnin úti í ár og við vissum því alltaf að þau færu heim að ári liðnu og við ætluðum að taka stöðuna þá. En einmitt á þeim tíma gerð­ ist þetta. Það var eiginlega alveg magnað. Lífið tók völdin og ég réð engu. Fyrir stjórnunarfrík eins og mig þá var það mjög erfitt, en líka afar mikill lærdómur.“ Nú er fjölskyldan búin að koma sér fyrir í lítilli íbúð sem þau áttu í Hlíðunum og eftir að hafa selt stór­ an hluta af veraldlegum eigum sín­ um hafa þau svolítið þurft að leita aftur til upprunans. En Hera segist hafa lært það á síðustu tveimur árum hvað hún virkilega þarf og hvað ekki. „Við erum að reyna að sanka ekki að okkur of miklu dóti og einfalda þannig lífið,“ útskýrir Hera. Hún segir fjölskylduna þó ekki með­ vitað hafa tekið upp naumhyggju lífsstíl, eins og mikið er í umræðunni um þessar mundir, heldur hafi það frekar orsakast af nauðsyn. „Þegar maður leggur af stað í svona ferðalag eins og við gerðum, þá gerir maður sér enga grein fyrir því hvað mað­ ur er að fara út í. Allt í einu vorum við bara lent í Chile með tvær töskur og áttum ekki einu sinni ostaskera,“ segir Hera hlæjandi, en ostaskerann tekur hún sem dæmi, því það var hlutur sem fjölskylduna tilfinnan­ lega vantaði, sem og uppþvotta­ bursta. „Það eru víst ekki notaðir ostaskerar og uppþvottaburstar í öll­ um löndum, við komumst að því.“ Börnin afeitruðust Hera segir að hún hafi í raun ekki áttað sig á hvað þau gerðu fyrr hún var komin til Chile. Þá laust því skyndilega niður í huga hennar að þau væru búin að selja ofan af sér húsið og næstum alla búslóðina. „Mér fannst ég ekki eiga neitt, en samt áttum við litla íbúð og fulla geymslu af dóti. Við áttum allt sem við þurftum og meira til. Svo fannst mér magnað að sjá hvaða áhrif þetta hafði á börnin. Þau áttu ekkert dót, bara iPad­ana sína, og þau af­ eitruðust. En það verður erfitt að halda þessu svona, í neyslusamfé­ laginu sem við búum í.“ Að mati Heru eru Íslendingar neysluóðir upp til hópa og allir al­ veg eins. Þeir klæðist sömu fötun­ um, séu með sömu hárgreiðsluna og noti sömu snyrtivörurnar. „Það var einmitt mjög fyndið að sjá það á Airwaves hvað allir voru eins. Sá hópur telur sig vera öðruvísi, en það voru allir eins. Allir með sama skeggið, í sömu úlpunni, sömu lopapeysunni, með sömu húfuna og í sömu skónum. Þetta sér maður svo skýrt þegar maður er búin að fara aðeins í burtu. Við erum svo miklar dúllur,“ segir Hera og hlær sínum dillandi hlátri. „Það er eins og það sé ekki rými til að vera öðru­ vísi á Íslandi,“ bætir hún við. Sjálf er hún reyndar ekkert skárri og viður­ kennir það kinnroðalaust fyrir blaðamanni að ásælast ákveðna úlpu eins helmingur Íslendinga á. Samstarf fór út um þúfur Þegar Hera hélt utan hafði hún engin verkefni föst í hendi, en markmiðið var að fylgja eftir sigrin­ um í áðurnefndri söngvakeppni. Hún var komin í samband við fólk í bransanum sem hún vonaðist til að geta unnið með, en það sam­ starf gekk ekki eftir. Tíminn fór því aðallega í að efla tengslanetið og kynningar. Þá ráku þau hjónin lífs­ stílsverslunina Púkó og smart á Laugavegi og töluverð orka fór í að halda þeim rekstri gangandi úr fjar­ lægð. Þau lokuðu reyndar verslun­ inni í vor þegar þau misstu hús­ næðið sem þau höfðu. „Það fór líka mikil orka og tími í að fóta sig í nýju og framandi landi. Maður gleym­ ir að taka það inn í reikninginn. En ég var með nokkur „gigg“ og það hefði getað orðið eitthvað úr þessu. Ég sé það þegar ég lít til baka að það gerðist heilmikið þó að mér hafi á tímabili fundist ekkert hafa gerst. Chilemönnunum sem ég hitti fannst ég vera hálfgeðveik, því ég væri með svo mikið í gangi. Á sama tíma fannst mér ekkert vera að ger­ ast. Við Íslendingar erum svo mikl­ ir vinnualkar. En þarna úti þurftum við að læra að slaka á. Við þurftum að læra að það er alveg eðlilegt að svara ekki tölvupósti vikum saman og fleira í þeim dúr.“ Tilgangurinn ekki að slá í gegn Hera segir marga halda að þegar listamenn reyni fyrir sér erlendis þá gangi þeir strax inn í stór verkefni og slái í gegn. En ef það gerist ekki, þá hafi allt mistekist. „Það tekur yfir­ leitt mörg ár að ná árangri. Maður þarf að fóta sig á nýjum stað, búa til tengslanet og kynna sig. Svo ganga hlutirnir kannski ekki upp. Í mín­ um huga snerist þetta aldrei um að fara út og slá í gegn. Það var kannski þannig í huga einhverra annarra, en ekki mínum. Ég fór aðallega út fyrir forvitni sakir og auðvitað hefði ver­ ið frábært að fá eitthvað að gera, en það var líka frábært að kynnast nýj­ um stað og nýju fólki. Svo er Chile ekki alfarið dottið út úr myndinni hjá mér. Ég er alveg ákveðin í að fara aftur og ég er alveg viss um að þá gerist eitthvað. Minn draumur er að geta verið í verkefnum í Suður­ Ameríku í einn til fjóra mánuði á ári, og ég vinn áfram að honum.“ Aðspurð hvort hún upplifi það í kringum sig að fólki finnist henni hafa mistekist, svarar Hera játandi. „Ég fæ svolítið að heyra frasann: „Jæja, vinan“ og á tímabili varð ég mjög pirruð yfir því. En fólk meinar held ég ekkert meira með því en að það vildi óska að mér hefði gengið betur. Það áttar sig bara ekki á því að þetta gekk brjálæðislega vel. Við vorum öll mjög hamingjusöm allan tímann.“ „Núna erum við hætt að reyna. Eða ég aðal- lega. Ég treysti mér ekki í fleiri rússíbanaferðir. „Ég reyndi að sann- færa sjálfa mig um að ég gæti orðið frábær lesbía Missti fóstur Hera tók sér tíma til að vinna úr sorginni og getur nú talað um fósturmissinn án þess að gráta. Mynd SigTryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.