Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Síða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Síða 66
Helgarblað 27.–30. nóvember 201550 Sport Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands, þekk- ir allar hliðar íslenskra fimleika eins og lófann á sér. Hún hefur æft íþróttina, þjálfað annað fimleikafólk og stýrt fimleikasamfélaginu í gegnum hvert stór- mótið á fætur öðru. Hún brennur af ástríðu fyrir íþróttinni, fyrir því að krakkar fái tækifæri til að alast upp innan íþróttahreyfingarinnar og því að fólk á sjötugs- aldri geti áfram æft fimleika. Svo kemst hún líka í splitt. Alvarlegt bílslys hafði mikil áhrif á keppnisferil hennar, en hún lagði bolinn ekki á hilluna fyrr en í fulla hnefana. Hún ræddi við Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur um íslenska fimleika og mikilvægi þess að eiga fimleikafólk af öllum stærðum og gerðum. Ég lét slysið ekki stöðva mig J á, ég kemst í splitt,“ segir Sólveig þegar blaðamaður ber hikandi upp spurninguna. „En það eru bara valin augnablik þar sem það fær að flakka,“ segir hún og skellihlær. Hún þakkar einmitt fim- leikunum, sem hún hefur stundað frá barnæsku, liðleikann og segir að hún hafi búið að því alla ævi. „Þó að ég sé núna 35 ára og búin að ganga með þrjú börn þá bý ég enn að þessu. Maður heldur þessum liðleika og getur staðið á höndum og því um líkt langt fram eftir aldri. Það er auðvitað mjög gott að hafa svona góðan grunn,“ segir hún. „Ef þú viðheldur honum getur þessi grunnur og þessi styrkur fylgt þér alla ævi.“ Missti af fyrsta tímanum Sólveig hóf ferilinn í fimleikum átta ára í Gerplu. Hún æfði síðar með Stjörnunni, en flutti sig svo aftur í uppeldisfélagið. „Ég skráði mig sjálf í fimleika þegar ég var átta ára. Mér fannst mamma ekki ganga í þetta alveg nógu hratt fyrir mig. Ég var í ballett en var mjög virkur krakki og það átti ekki við mig. Þegar ég kom á fyrstu fimleika- æfinguna mína missti ég hreinlega af tímanum vegna þess að ég fylgd- ist hugfangin með úr fjarlægð. Mér fannst þetta svo stórkostlegt,“ segir hún. Þetta var eiginlega ást við fyrstu sín, hún náði fljótlega góðum tökum á íþróttinni og missti ekki af fleiri tím- um. Sólveig var líka dugleg að æfa, naut þess til hins ýtrasta og gerði alltaf aðeins meira en hún þurfti. „Þetta var það skemmtilegasta sem ég gerði,“ segir hún. Árangurinn lét ekki á sér standa, Sólveig á að baki fjölmarga Íslandsmeistaratitla bæði í áhaldafimleikum og hópfimleik- um. Hún tók einnig þátt í landsliðs- verkefnum og hefur að auki starfað sem fimleikaþjálfari. Hún hefur því séð flestar hliðar greinarinnar, ef ekki allar, og komið að þeim með einum eða öðrum hætti. Forréttindi og tækifæri „Það hafa verið forréttindi, að fá að ferðast og kynnast íþróttinni svona vel. Ég fór í mína fyrstu keppnisferð ellefu ára, og keppti svo tólf ára með landsliðinu í fyrsta sinn. Ég var í landsliðinu þar til ég hætti að æfa. Ég æfði áhaldafimleika þar til ég var sextán ára og skipti þá yfir í hópfimleika,“ segir hún. Áhaldafimleikar eru einstaklingsíþrótt en hópfimleikar er liðaíþrótt þar sem oftar en ekki myndast sterkur kjarni sem æfir saman. Greinarnar eru því afar ólíkar, en Sólveig segist hafa fengið mikinn styrk út úr því að stunda þær báðar. „Ég er svo þakklát fyrir þetta tækifæri, að fá að tilheyra liði. Stelpurnar verða næstum því systur þínar. Það var gott fyrir mig sem hafði verið svo mikill einstaklingur að keppa í áhaldafimleikunum og fá svo tækifæri til að keppa með liði, upplifa hvernig það er að hjálpa öðrum svo að þér gangi betur. Það er gaman að hafa fengið að prófa bæði, að þurfa að standa og falla með mér – vera sjálfstæð. En líka að hugsa um lið og liðsheild,“ segir hún. Skyndileg breyting „Ég hef líka prófað að vera í liði þar sem ég var ein af lykilmönnunum. En svo lenti ég í bílslysi og þá þurfti ég að læra hvað maður getur gefið liðinu þegar maður er ekki lengur einn af lykilmönnunum. Ég fékk að vera með því þetta var eins og fjölskyldan mín. Ef það væri einhver reynsla sem ég væri ekki til í að sleppa úr fortíðinni, þá væri það hvernig ég lærði að gefa af mér og lærði að skipta máli í liði á þennan hátt. Að vera mikilvægur leikmaður án þess að vera endilega á gólfinu,“ segir hún. Slysið sem um ræðir var mjög alvarlegt. Hún var 23 ára og starfaði við sorphirðu á sumrin í nokkur ár. Vinnan var mjög líkamleg og hentaði vel með fimleikunum. Einn daginn var hún að hífa ruslafötu upp í ösku- bíl þegar annar bíll kom aðvífandi. Bílstjórinn hafði hvorki séð Sólveigu né öskubílinn. „Þetta var um vor og hann sá okk- ur ekki. Sólin var lágt á lofti og hann keyrði beint aftan á ruslabílinn. Tunnan var tóm og ég skaust eigin- lega upp úr henni. Ég slasaðist mikið á vinstri fætinum – hann datt eigin- lega næstum því af,“ segir hún. Sólveig þurfti að læra að beita lík- ama sínum upp á nýtt eftir slysið og þá komu fimleikarnir sterkir inn. Hún var í fantagóðu formi þegar slysið varð og telur að það hafi hjálpað sér mikið. „Það kom sér líka vel að hafa verið einstaklingur í grein. Þarna var ég að keppa við sjálfa mig og engan „Ég velti því þess vegna fyrir mér hvaða skilaboð við erum að senda íslenskum íþróttakonum Forréttindi Sólveig segir að það hafi verið mikil forréttindi að fá að æfa íþróttina sem hún elskar og fá að starfa innan hennar. Mynd Sigtryggur ari Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Framhald á næstu síðu 
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.