Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 94
Helgarblað 27.–30. nóvember 201578 Fólk
n Geir Ólafs hefur aldrei verið hamingjusamari n Ný plata komin út n Barn á leiðinni
Þ
að er mikill heiður að fá að
syngja lög eftir Jóhann G. Jó-
hannsson heitinn. Ég lofaði
honum sem deyjandi manni
að gefa út efnið hans,“ segir
söngvarinn Geir Ólafsson sem sendi
nýlega frá sér plötuna Just a Simple
Man, sem inniheldur lög og texta eft-
ir Jóhann G. „Hann lét mig líka hafa
efni sem ég gæti hugsanlega notað í
framtíðinni, þannig að ég er honum
mjög þakklátur.“
Keppist við að verða betri
Einvalalið hljóðfæraleikara leikur
undir á plötu Geirs og státar hann sig
meðal annars af því að fengið til liðs
við sig einn þekktasta trommuleik-
ara í heiminum, Dave Weckl. „Allir
trommuleikarar í heiminum þekkja
hann og flestir í bransanum vita
hver hann er. Svo er félagi minn,
Don Randi, auðvitað með mér líka,“
segir Geir, en það var einmitt Don
sem tengdi hann og Dave saman.
„Það yrði enginn árangur hjá manni
nema vegna fólksins sem er á bak
við mann. En maður öðlast ekki
gott bakland nema koma vel fram
við aðra og taka sjálfan sig ekki of
alvarlega. Þetta eru engin geimvís-
indi, þetta er músík,“ segir Geir. „Ég
hef alltaf haft ástríðu fyrir músík og
keppist við að að verða betri músík-
ant. Það er það eina sem ég vinn að.“
Geir segir diskinn hafa fengið góða
dóma úr ólíkum áttum og meira geti
hann varla beðið um. Sjálfur er hann
auðvitað virkilega stoltur af útkom-
unni.
Barn væntanleg í janúar
En það er fleira gleðilegt að gerast í
lífi Geirs um þessar mundir. Hann á
von á sínu fyrsta barni í janúar með
unnustu sinni, hinni kólumbísku
Adriönu Patriciu Sanchez Krieger.
„Mér skilst allavega að þetta sé mitt
fyrsta barn,“ segir hann kíminn.
En líka er um að ræða fyrsta barn
Adriönu sem starfar sem bankastjóri
hjá Santander-banka í Madríd Spáni.
„Hún ætlar að koma til Íslands og
mér finnst mjög gaman að segja öll-
um frá því að hún ætli að eiga barnið
hér. Mitt aðalmarkmið í dag er að láta
henni líða sem best og allt annað er
aukaatriði. Þetta er mjög spennandi
verkefni.“
Heillaðist strax
Adriana er væntanleg til Íslands í
næstu viku en fram að þessu hefur
hún verið föst í vinnu á Spáni. Geir
hefur því verið á ansi miklu flakki
á milli Íslands og Spánar til að geta
varið sem mestum tíma með unn-
ustu sinni. En hann hefur að sjálf-
sögðu ekki sett það fyrir sig. Allt fyrir
ástina, á svo sannarlega við hjá okk-
ar manni.
Geir og Adriana kynntust á Ís-
landi þegar hún var hér á ferðalagi
árið 2009. „Fyrst þegar ég sá hana
sagði ég: „Ég ætla að giftast þér“
og hún var svolítið hissa á þessum
frakka Íslendingi. Við byrjuðum hins
vegar ekki að vera saman fyrr en árið
2012. Fram að því höfðum við átt í
einhverjum samskiptum á Facebook
og Skype,“ útskýrir Geir. „Ég var svo
með tónleika í Los Angeles í febrú-
ar 2012 og hvatti hana til að koma að
hitta mig. Hún var nefnilega ekki til-
búin að koma aftur til Íslands og ég
ekkert endilega til í að fara til Kól-
umbíu þar sem hún bjó. Við ákváð-
um að fara milliveginn og hittast í
Los Angeles og síðan þá höfum við
verið saman.“
Vinkonur mömmu að prjóna
Geir og Adriana reikna með að ala
barnið upp hér á landi fyrst um
sinn, en þau hafa fengið að vita að
það er lítil stúlka sem er á leiðinni.
„Adriana er spennt fyrir því að taka
að sér einhver verkefni hér á Íslandi.
Hún er með góða menntun og mikla
reynslu í sínum geira. Hún er líka
mjög hrifin af íslensku samfélagi,“
segir Geir sem er augljóslega stoltur
af sinni konu.
Það er mikil tilhlökkun eftir litlu
stúlkunni í báðum fjölskyldum og
stórfjölskylda Geirs hefur nú lagst
á eitt við að undirbúa heimili hans
fyrir komu Adriönu og dótturinnar.
„Það eru allir af vilja gerðir að hjálpa
okkur. Allar vinkonur mömmu eru
byrjaðar að prjóna handa henni.
Bróðir minn varð meira að segja hálf
meyr yfir fréttunum og hann kallar
ekki allt ömmu sína.“
Þau hjónaleysin eru búin að
ákveða nafn á stúlkuna, en Geir vill
ekki gefa það upp í fjölmiðlum. Hann
segir forvitna þó geta kíkt á Face-
book-síðuna sína. Svarið gæti leynst
þar. Eina sem hann gefur upp er að
nafnið er íslenskt og mjög fallegt. n
„Við ákváðum að
fara milliveginn og
hittast í Los Angeles og
síðan þá höfum við verið
saman.
Er að verða pabbi
Geir á von á sínu fyrsta barni
í janúar. Mynd Sigtryggur Ari
Sólrún Lilja ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Ástfangin
Geir og Adriana
kynntust fyrst
hér á landi árið
2009 en tóku
ekki saman fyrr
en 2012.
„Ég ætla að giftast þér“
Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I
LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND