Læknablaðið - 01.04.2016, Side 4
164 LÆKNAblaðið 2016/102
F R Æ Ð I G R E I N A R
4. tölublað, 102. árgangur, 2016
167
Birgir Jakobsson
Nauðsyn grund-
vallarbreytinga
á íslensku heil-
brigðiskerfi
Ef sú heilbrigðisstefna
sem nú er boðuð kemst
í framkvæmd mun hún
auka möguleikana á því
að fjármagn sem varið er
til heilbrigðismála fari í
rétt forgangsverkefni.
171
Gunnar Björn Ólafsson, Hlíf Steingrímsdóttir, Brynjar Viðarsson,
Anna Margrét Halldórsdóttir
Langvinnt eitilfrumuhvítblæði á Íslandi árin 2003-2013:
Nýgengi, aðdragandi greiningar og undanfari
Langvinnt eitilfrumuhvítblæði er hæggengur sjúkdómur og þróast oft á löngum tíma.
Því greinast margir sjúklingar fyrir tilviljun áður en sjúkdómurinn fer að valda einkenn-
um. Aukinn fjöldi eitilfrumna í hefðbundnum blóðhag með deilifrumutalningu er gjarn-
an fyrsta vísbending sem síðar er staðfest með frekari rannsóknum. Þó fram hafi
komið ýmsar leiðir til lyfjameðferðar við sjúkdómnum er hann engu að síður ólækn-
andi og meðferð miðar að því að halda honum í skefjum. Lifun sjúklinga er breytileg
en getur verið allt frá mánuðum upp í áratugi.
179
Guðmundur Skarphéðinsson, Bertrand Lauth, Urður Njarðvík, Tord Ivarsson
Gagnreynd meðferð við áráttu- og þráhyggjuröskun
hjá börnum og unglingum: Yfirlitsgrein
Áráttu- og þráhyggjuröskun hjá börnum og unglingum einkennist af þráhyggjukennd-
um hugsunum og áráttukenndri hegðun eða hugsun. Hugræn atferlismeðferð (HAM)
og sérhæfð serótónín-endurupptökuhamlandi lyf (SSRI) eru áhrifarík meðferðarform
fyrir börn og unglinga sem koma fyrsta sinn í meðferð. Í samanburðarrannsóknum
hefur HAM vinninginn. Rannsóknir á börnum sem svara fyrstu meðferð illa eru tak-
markaðar en benda þó til þess að áframhaldandi HAM og SSRI séu áhrifarík úrræði.
187
Bryndís Baldvinsdóttir, Martina Vigdís Nadini, Ingvar Hákon Ólafsson,
Ólafur Guðmundsson, Sigurður Stefánsson
Rof á efri bogagöngum – sjúkratilfelli
Bogagöng innra eyrans eru þrjú og mikilvægur hluti jafnvægiskerfis líkamans. Rof
á efri bogagöngum er sjaldgæf orsök heyrnardeyfu og svima. Fáir hafa greinst á Ís-
landi. Níu Íslendingar hafa farið í aðgerð í lækningatilgangi. Fjórir fyrstu sjúklingarnir
fóru til Baltimore en hinir 5 fóru í aðgerð hér heima. Lýst er einu þessara tilfella.
169
Sigurveig Þ.
Sigurðardóttir
Getum við snúið
við vaxandi tíðni
fæðuofnæmis?
Fæðuofnæmi hefur
farið vaxandi í hinum
vestræna heimi og er
almennt talið að 4-5% af
börnum fái fæðuofnæmi.
Samkvæmt EuroPrevall-
rannsókninni 2005-2010
fá tæplega 3% íslenskra
barna til 2,5 árs aldurs
sannanlegt fæðuofnæmi
sem er um prósentu
hærra en áratug áður.
L E I Ð A R A R