Læknablaðið - 01.04.2016, Síða 9
LÆKNAblaðið 2016/102 169
R I T S T J Ó R N A R G R E I Nhttp://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.04.73
Fæðuofnæmi hefur farið vaxandi í hin-
um vestræna heimi og er almennt talið að
4-5% barna fái fæðuofnæmi. Samkvæmt
EuroPrevall-rannsókninni 2005-2010, fá
tæplega 3% íslenskra barna til 2,5 árs aldurs
sannanlegt fæðuofnæmi, sem er um pró-
sentu hærra en áratug áður.
Fæðuofnæmi getur í sínu hættulegasta
formi verið lífshættulegt og hefur oft mjög
mikil áhrif á einstaklinginn sem þolanda,
sem og aðstandendur hans og umhverfi.
Vaxandi fæðuofnæmi hefur verið
áhyggjuefni í yfir 30 ár. Sem andsvar var
mæðrum ráðlagt að lengja þann tíma sem
börn voru eingöngu á brjósti í fjóra og síð-
an sex mánuði. Þegar það dugði ekki til var
foreldrum ráðlagt að gefa ekki ofnæmis-
valdandi fæðu, svo sem egg, fisk og hnet-
ur, fyrr en eftir eins, tveggja eða jafnvel
þriggja ára aldur. En þessar aðgerðir hafa
ekki minnkað fæðuofnæmi nema síður sé.
Rannsóknirnir á síðasta áratug hafa
bent til að það að gefa börnum snemma
jarðhnetur,1 egg2 eða kúamjólk3 geti hugs-
anlega komið í veg fyrir þróun ofnæmis
fyrir þessum fæðutegundum. Þetta leiddi
til rannsóknar á 640 breskum börnum í
áhættuhópi fyrir jarðhnetuofnæmi (exem
og/eða eggjaofnæmi) þar sem þeim var
raðað tilviljunarkennt í tvo hópa; annars
vegar hóp sem forðaðist jarðhnetur og hins
vegar hóp barna sem voru látin borða jarð-
hnetur frá 4-11 mánaða til 5 ára aldurs en
þá voru þau metin með tilliti til jarðhnetu-
ofnæmis.4 Þessi rannsókn, sem kölluð er
LEAP (Learning Early About Peanut Allergy),
sýndi að minnka má líkur á jarðhnetuof-
næmi hjá börnum í áhættuhópi um 80%
með því að gefa þeim jarðhnetur snemma.
Nú í mars birtist síðan önnur rannsókn
sem gerð var í framhaldi af LEAP og kall-
ast EAT (Enquiring About Tolerance).5 Þar er
1303 þriggja mánaða breskum börnum sem
voru eingöngu á brjósti slembiraðað í tvo
hópa; annar hópurinn var látinn byrja eftir
þriggja mánaða aldur að fá 6 fæðutegundir
– jarðhnetur, soðin egg, kúamjólk, sesam-
fræ, fisk og hveiti, en hinn hópurinn fékk
eingöngu brjóstamjólk í 6 mánuði sam-
kvæmt bresku leiðbeiningunum. Þegar öll
börnin voru metin, burtséð frá því hvort
þau héldu rannsóknaráætlun eða ekki,
reyndist munurinn á hópunum ómarktæk-
ur þar sem 7,1% þeirra sem voru eingöngu
á brjósti fengu fæðuofnæmi en 5,6% þeirra
sem fengu viðbótarfæðu snemma. Þegar
eingöngu voru skoðaðir þeir sem héldu
rannsóknaráætlun varð munurinn mark-
tækur, það er 7,3% á móti 2,4% (p=0,01) alls,
2,5% á móti 0% (p=0,003) fyrir jarðhnetur
og 5,5% á móti 1,4% (p=0,009) fyrir egg. Við
nánari greiningu kom í ljós að 2 g af jarð-
hnetupróteini og 4 g af eggjapróteini (2 g
af eggjahvítupróteini) í að minnsta kosti
fjórar vikur, frá þriggja til sex mánaða
aldurs, varði gegn ofnæmi fyrir þessum
fæðutegundum. EAT sýndi jafnframt að
viðbótarfæðan truflaði hvorki brjóstagjöf-
ina né þroska barnsins.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO)
ráðleggur eingöngu brjóstamjólk til 6
mánaða aldurs og mjög margar þjóðir,
meðal annars Íslendingar, hafa farið eftir
þessum leiðbeiningum.
LEAP-rannsóknin sýnir að ef beðið er
með að setja jarðhnetur inn í fæði barna,
eykur það beinlínis líkurnar á jarðhnetu-
ofnæmi og skýrir sennilega vaxandi tíðni
þess. EAT-rannsóknin staðfesti þetta en
sýnir jafnframt að það þarf ákveðið magn
af fæðunni til að mynda slíkt þol. Þó að
margar þjóðir hafi rýmkað ráðleggingar
sínar í þá átt að það sé í lagi að byrja að gefa
viðbótarfæðu milli fjögurra og sex mánaða
aldurs, er ástæða til að ætla að þessar rann-
sóknir muni hafa afgerandi áhrif á slíkt. Í
Bandaríkjunum er nú byrjað að ráðleggja
að leita eftir ofnæmi hjá ungbörnum í
áhættuhópi og ef þau eru ekki komin með
ofnæmi fyrir jarðhnetum er ráðlagt að
hefja reglulega neyslu þeirra eftir fjögurra
mánaða aldur. Ísland hefur fylgt hinum
Norðurlöndunum og WHO-ráðleggingun-
um, sem eflaust verða endurskoðaðar í ljósi
þess að viðbótarfæða með brjóstamjólk
frá þriggja til sex mánaða aldurs reyndist
örugg og að forða megi þúsundum barna
í heiminum frá því að fá til dæmis jarð-
hnetuofnæmi. Það eru þó fleiri heilsufars-
þættir en ofnæmi sem þarf að taka tillit
til og mikilvægt að vandað sé vel til þess
þegar nýjar ráðleggingar um matargjöf til
ungbarna eru gerðar.
Heimildir
1. Du Toit G, Katz Y, Sasieni P, Mesher D, Maleki SJ, Fisher
HR, et al. Early consumption of peanuts in infancy is
associated with a low prevalence of peanut allergy. J
Allergy Clin Immunol 2008; 122: 984-91.
2. Koplin JJ, Osborne NJ, Wake M, Martin PE, Gurrin LC,
Robinson MN, et al. J Allergy Clin Immunol Can early
introduction of egg prevent egg allergy in infants? A
population-based study. J Allergy Clin Immunol 2010;
126: 807-13.
3. Katz Y, Rajuan N, Goldberg MR, Eisenberg E, Heyman
E, Cohen A, et al. Early exposure to cow‘s milk protein
is protective against IgE-mediated cow‘s milk protein
allergy. J Allergy Clin Immunol 2010; 126: 77-82.e71.
4. Du Toit G, Roberts G, Sayre PH, Bahnson HT, Radulovic S,
Santos AF, et al. Randomized trial of peanut consumption
in infants at risk for peanut allergy. N Engl J Med 2015;
372: 803-13.
5. Perkin MR, et al. and Gideon Lack, M.B., B.Ch., for the
EAT Study Team. Randomized Trial of Introduction of
Allergenic Foods in Breast-Fed Infants. N Engl J Med;
nejm.org/doi/pdf/10.1056/NEJMoa1514210 - mars 2016.
Can we reverse the ever
increasing morbidity of food-allergy?
Sigurveig Th Sigurdardottir MD, PhD
Pediatrics, Allergy and Clinical Immunology,
Department of Immunology
Landspitali University Hospital
Reykjavik
veiga@lsh.is
Getum við snúið við vaxandi
tíðni fæðuofnæmis?
Sigurveig Þ.
Sigurðardóttir
sérfræðingur í barna-
lækningum, ofnæmis- og
ónæmislækningum, ónæmis-
fræðideild Landspítalans
Nýr valkostur
Fyrir jafnan blóðsykur1
Er meðferðin stöðug
málamiðlun milli blóðsykursfalla
og viðunandi HbA1c?2,3
Myndræn framsetning unnin af Sanofi
Tími frá lyfjagjöf undir húð (klst.)
In
nr
e
nn
sl
i g
lú
kó
sa
(m
g
/(k
g
m
ín
)
3
2
1
0
60 12 18 24 30 36
Lantus®
Toujeo®
Stöðugt
Jöfn dreifing
Meira en 24 klst.
Jafn verkunarprófíll
Toujeo® hefur jafnari verkun en
Lantus® í a.m.k. 24 klst.1
Toujeo® veitir sambærilega blóðsykur-
stjórn og Lantus® með minni hættu á
blóðsykurföllum hjá sjúklingum með
sykursýki tegund 21,4,5
Auðveldara er að stilla Toujeo® en
Lantus® til að ná meðferðarmarkmiðum1,3,4,5
Toujeo® hefur sama langtíma öryggis-
prófíl og Lantus® og er á sama verði1,6,7,8
Fyrir sjúklinga með sykursýki tegund 1 og 2
IS
AI
S-
TJ
O
-1
6.
04
.0
00
1
insúlín glargín 300 einingar/ml
NÆSTA KYNSLÓÐ
GRUNNINSÚLÍNS
Frá framleiðendum
LANTUS
insúlín glargín 100 einingar/ml
1. Toujeo sérlyfjatexti 04.12.2015 kafli 5.1
2. Cooper JG, Claudi T, Thordarson HB. Behandling av type 1-diabetes I spesialisthelsetjenesten – data fra Norsk diabetesregister for voksne. Tidsskr Nor
Legeforen 2013; 133: 2257 – 61
3. Home PD, Bergenstal RM, Bolli GB. New Insulin Glargine 300Units/mL Versus Glargine 100 Units/mL in People With Type 1 Diabetes: A Randomized, Phase 3a,
Open-Label Clinical Trial (EDITION 4). Diabetes Care 2015. DOI: 10.2337/dc15-0249 [Epub ahead of print 17 Juni 2015].
4. Riddle MC, Bolli GB, Ziemen M et al. New insulin glargine 300 units/mL versus glargine 100 units/mL in people with type 2 diabetes using basal and mealtime
insulin: glucose control and hypoglycemia in a 6-month randomized controlled trial (EDITION 1). Diabetes Care 2014;37:2755–2762.
5. Yki-Järvinen H, Bergenstal R, Ziemen M, et al. New insulin glargine 300 units/mL versus glargine 100 units/mL in people with type 2 diabetes using oral agents
and basal insulin: glucose control and hypoglycemia in a 6-month randomized controlled trial (EDITION 2). Diabetes Care 2014; 37:3235–3243.
6. Lantus sérlyfjatexti 29.07.2015, kafli 5.1
7. Lantus styttur sérlyfjatexti 21.09.2015
8. Toujeo styttur sérlyfjatexti 04.12.2015
Sanofi á Íslandi, Vistor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ.
Sími: 535-7000. Netfang: sanofi@vistor.is