Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 12

Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 12
172 LÆKNAblaðið 2016/102 4,9/100.000 á ári hjá körlum en 1,9/100.000 hjá konum (Krabbamein á Íslandi, Krabbameinsskrá 2012). Markmið þessarar rannsóknar var að ákvarða nýgengi CLL á Íslandi á rannsóknartímabilinu (2003-2013) og skoða greiningar- aðferðir og einkenni sjúklinga í aðdraganda greiningar. Einnig var leitað eftir vísbendingum um hækkun á eitilfrumum í blóð- rannsóknum áður en formleg greining var gerð. Efni og aðferðir Rannsóknin var afturskyggn og lýsandi og náði rannsóknar- tímabilið frá upphafi árs 2003 og út árið 2013. Íslendingar sem greindust með CLL á þessu tímabili urðu hluti af rannsókn- arhópnum. Upplýsingar um sjúklinga með CLL/SLL greiningu á þessu árabili voru fengnar frá eftirfarandi deildum/stofnunum; 1) blóðmeinafræðideild Landspítalans (greining með frumuflæði- sjá), 2) Krabbameinsskrá, 3) Læknasetrinu í Mjódd. Langflestir CLL-sjúklingar eru greindir og meðhöndlaðir á blóðmeinafræði- deild Landspítala en auk þess er nokkur fjöldi í eftirliti hjá sér- fræðingum á Læknasetrinu. Því ættu með þessum hætti að fást upplýsingar um langflesta sjúklinga með CLL á Íslandi. Sjúklingar sem uppfylltu ekki skilyrði rannsóknarinnar voru útilokaðir frá rannsóknarhópnum og útbúinn var einn heildstæður grunnur yfir rannsóknarhópinn. Til þess að staðfesta nákvæmni CLL-greiningar voru frumgögn skoðuð á öllum þremur stofnunum. Upplýsingar um blóðfrumu- gildi við greiningu og eitilfrumutalningar í blóði fyrir greiningu voru fengnar úr Sögukerfi Landspítala, Rannsóknastofunni Mjódd (Læknasetrinu) og úr Heklu-tölvukerfi. Rai-sjúkdóms- stig var reiknað út frá upplýsingum í sjúkraskrá. Upplýsingar um hvort sjúklingar hefðu greinst með annan illkynja sjúkdóm en CLL voru sóttar til Krabbameinsskrár. Gögn um niðurstöður litninga rannsókna fengust frá Erfða- og sameindalæknisfræði- deild Landspítala. Upplýsingar um lyfjameðferð voru fengnar úr Sögukerfi Landspítala/Læknaseturs og Aria-kerfi Landspít- ala. Fyrir meðhöndlaða sjúklinga var og gerð tímasetning fyrstu meðferðar skráð (time-to-treat). Upplýsingar um búsetu sjúk- linga og dánardag voru fengnar úr Þjóðskrá, en upplýsingar um dánarorsakir frá Embætti landlæknis. Til að reikna nýgengi voru tölur yfir mannfjölda sóttar á vef Hagstofu Íslands (hagstofa. is). Aldursstaðlað nýgengi var reiknað út frá alþjóðlegum staðli WHO frá árinu 2000.17 Upplýsingar voru skráðar í Excel-töflureikni sem var not- aður við samantekt og úrvinnslu gagna. Tölfræðileg grein- ing var unnin í tölfræðiforritinu R. Cox-próf var notað til þess að reikna lifun og tíma að meðferð. Marktækni var miðuð við p-gildi 0,05. Áður en rannsóknin hófst fengust tilskilin leyfi frá Persónuvernd (tilv.: 2013111400HGK/--), Vísindasiðanefnd (tilv.: VSNb2013110023/03.07) og framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala (tilv.: 16 ÓB/eí). Einnig fengust leyfi frá stjórnarfor- manni Læknasetursins og yfirlækni Krabbameinsskrár. Niðurstöður Í upphafi fundust 217 einstaklingar með greininguna CLL en við yfirferð gagna voru 56 þeirra útilokaðir frá rannsóknarhópnum; 36 greindust með CLL utan rannsóknartímans, 19 höfðu ekki rétta sjúkdómsgreiningu og einn var erlendur ríkisborgari. Alls greindist því 161 Íslendingur (109 karlar, 52 konur) með CLL/ R A N N S Ó K N Mynd 1a. Árlegur fjöldi og kynjaskipting CLL/SLL-greininga á rannsóknartímabilinu. Mynd 1b. Aldur sjúklinga við greiningu CLL (rauðir stöplar). Mannfjöldi á Íslandi í sömu aldursflokkum er sýndur til samanburðar (blá lína, Hagstofa Íslands fyrir árið 2013). Tafla I. Fjöldi og hlutfall sjúklinga með tiltekin einkenni eða teikn. Þeir sem töld- ust hafa B-einkenni höfðu eitt eða fleira af eftirfarandi: óútskýrðan hita, megrun og/eða nætursvita. Einkenni Fjöldi sjúklinga Hlutfall (%) Þreifanlegar eitlastækkanir 40 26,5 Þreifanleg miltisstækkun 14 8,7 Vaxandi þreyta/mæði 20 13,2 Slappleiki 34 22,5 Fölvi 12 7,9 Sýkingar 25 16,6 Óeðlilegar blæðingar/marblettir 1 0,7 Óútskýrður hiti 6 4,0 Megrun 17 11,3 Nætursviti 19 12,6 B-einkenni 29 19,2 a b

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.