Læknablaðið - 01.04.2016, Page 31
LÆKNAblaðið 2016/102 191
Þegar þessi grein er skrifuð hefur ný-
lega verið birt niðurstaða úr Þjóðarpúlsi
Gallups þar sem fram kemur mikið fall
á því trausti sem fólk hafði til heilbrigð-
iskerfisins, eða um 14%, og er það nú kom-
ið niður í 46%. Þetta mikla fall á trausti
fólks á sér eflaust margar skýringar en nei-
kvæð umfjöllun fjölmiðla síðustu misseri
á líklega stóran þátt í því. Ekki er ólíklegt
að neikvæðar fréttir af Landspítala, flagg-
skipi íslensks heilbrigðiskerfis, vegi þar
þyngst. Þó að þar séu unnin þrekvirki og
nánast kraftaverk á hverjum degi virðast
nær eingöngu neikvæðar sögur þaðan rata
í fréttirnar. Sögur af myglu í húsnæði og
samanplástruðum tækjum.
Í lok árs 2013 var íslenski heilbrigð-
isstarfsmaðurinn valinn maður ársins
á Bylgjunni. Eftir það hefur leiðin legið
niður á við. Neikvæðar fréttir í tengslum
við launabaráttu lækna og verkfall þeirra
árið 2014 og barátta fyrir uppbyggingu nýs
Landspítala nú uppá síðkastið eru atburð-
ir sem virðast hafa snúið almenningsáliti
til hins verra. Það má ætla að hlutur lækna
vegi þungt í þessari umfjöllun. Margir
læknar hafa verið viljugir til að tala niður
ástandið til þess að ná fram hagsmunum
sínum. Við þetta bætist ákveðin sundrung
í læknastétt þar sem barist er um þá fjár-
muni sem veitt er til heilbrigðiskerfisins
og þar hefur landlæknir nú nýlega lagt
þung lóð sín á vogaskálarnar.
Á meðan við lesum fréttir af hörmu-
legu ástandi kerfisins er þó ef vel er að
gáð hægt að finna eitthvað jákvætt, eins
og til dæmis niðurstöðu úr nýrri skýrslu
Health Consumer Powerhouse þar sem
fram kemur að Ísland er með 8. besta
heilbrigðiskerfi Evrópu. Noregur situr þar
í 3. sæti, Danmörk í 7. sæti. og Svíþjóð í
því 10. Þetta eru hin hefðbundnu saman-
burðarlönd okkar sem svo vinsælt er að
vísa til þegar bent er á það sem betur má
fara í okkar kerfi.
Ísland skorar hæst í flokknum árangur
og meðferð í þessari sömu skýrslu.
Í áðurnefndum Þjóðarpúlsi Gallups
skorar Landhelgisgæslan hæst, eða 96%.
Það verður seint sagt að Gæslan búi við
ríkan tækjakost, hún fékk ekki einu sinni
að halda gömlum vopnum frá Noregi.
Varla er hægt að tala um merkilegan húsa-
kost eða annan aðbúnað. Þrátt fyrir það
eru starfsmenn Landhelgisgæslunnar ekki
reglulega í fjölmiðlum að tala niður störf
sín, kvarta yfir launum eða aðbúnaði. For-
stjóri Gæslunnar er ekki með yfirlýsingar
um að öryggi íbúa landsins sé ógnað. Ég
held að starfsmenn Landhelgisgæslunnar
séu almennt stoltir af störfum sínum og
það smitast út í þjóðfélagið.
Er ekki kominn tími til fyrir okkur að
skipta um taktík? Er þessi aðferð ekki full-
reynd, hver vill setja meiri peninga í að
bjarga sökkvandi fleyi? Fyrir fjárveitinga-
valdið hlýtur þetta að vera niðurdrepandi.
Þetta er eins og fyrir fólk að heyra að
fermingarbarnið hafi keypt sér bland í
poka fyrir allan peninginn í stað þess að
safna sér fyrir innborgun í íbúð. Hvoru
barninu er skemmtilegra að færa pening?
Læknafélag Íslands er nú að hefja
undirbúning fyrir 100 ára afmæli félagsins
sem er árið 2018. Þá stendur til að vera
með ýmsar uppákomur og minnast sögu
félagsins. Gaman væri að það yrði ekki í
skugga talna um dvínandi traust fólks til
kerfisins sem við viljum svo gjarnan fara
með aðalhlutverkið í.
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Þorbjörn Jónsson, formaður
Orri Þór Ormarsson, varaformaður
Björn Gunnarsson, gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Arna Guðmundsdóttir
Hildur Svavarsdóttir
Magnús Baldvinsson
Tinna Harper Arnardóttir
Þórarinn Ingólfsson
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna
LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Stjórn LÍ
Þverrandi traust
magnus.baldvinsson@simnet.is
Magnús
Baldvinsson
sérfræðingur
í læknisfræðilegri
myndgreiningu
Ný stjórn
Félags bráðalækna
Á aðalfundi Félags bráðalækna (FBL), sem haldinn var 16. febrúar síð-
astliðinn, var kjörin ný stjórn félagsins. Í stjórnina voru kjörin:
formaður Jón Baldursson, varaformaður Mikael S. Mikaelsson, ritari
Guðmundur F. Jóhannsson, gjaldkeri Guðrún María Svavarsdóttir og
fulltrúi námslækna Erna Ósk Grímsdóttir.
Aðalfundurinn samþykkti ný lög fyrir félagið. Auk þess samþykkti
fundurinn að veita stjórn félagsins umboð til að sækja um það að Félag
bráðalækna verði aðildarfélag í Læknafélagi Íslands. Umsóknin verður
tekin til afgreiðslu á aðalfundi LÍ 2016 sem verður haldinn 22. og 23.
september næstkomandi. Á aðalfundi LÍ 2014 var samþykkt
breyting á lögum LÍ sem gerir sérgreinafélögum kleift að
sækja um að vera sjálfstæð aðildarfélög í LÍ.