Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 32

Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 32
192 LÆKNAblaðið 2016/102 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Krabbameinsfélag Íslands og velferð- arráðuneytið gerðu í upphafi þessa árs samkomulag um styrk til að undirbúa skipulagða leit að krabbameini í ristli og endaþarmi hjá 32.000 konum og körlum í aldurshópnum 60-69 ára. Áætlað er að skimunin hefjist í ársbyrjun 2017. Vel- ferðarráðuneytið veitir 25 milljónum til verkefnisins á þessu ári. Sunna Guðlaugs- dóttir, sérfræðingur í meltingarsjúkdóm- um, var strax í upphafi ráðin stjórnandi að undirbúningi þessa umfangsmikla verkefnis til eins árs og fékk til þess tímabundna lækkun á stöðuhlutfalli hjá Landspítala. Verkefni Sunnu fólst í að kanna hvaða leiðir aðrar þjóðir hafa farið og velja farsælustu leiðina fyrir Ísland á faglegan hátt. Því verkefni er nú lokið með framangreindu samkomulagi. Sunna leggur áherslu á að á þessu ári verði unnið áfram að verkefninu og fjárveitingin verði nýtt til að kaupa þann búnað sem þarf til að hægt sé að hefja skimunina. „Þetta eru hægðapróf (FIT test) sem mæla mjög sértækt og nákvæmlega fyrir mannablóði í hægðum og til að hægt að sé að lesa úr prufunum verður settur upp búnaður á Landspítalanum. Verið er að undirbúa útboðsgögn fyrir þetta og nokkur fyrirtæki koma til greina. Einnig þarf að forrita gagnagrunna til að taka við og vinna úr upplýsingum og þar er í fyrsta lagi miðlægur gagna- grunnur sem Krabbameinsfélagið hýsir en einnig þrjú ytri kerfi sem tengjast miðlæga gagnagrunninum. Þetta er í fyrsta lagi aðstaðan þar sem prufurnar eru skimaðar fyrir blóði, í öðru lagi er þeim sjúklingum sem blóðskimunin mælir jákvæða vísað í ristilspeglun og læknirinn færir niðurstöð- ur hennar í annan gagnagrunn samkvæmt sérstökum stöðlum og gæðakröfum. Í þriðja lagi eru separ eða krabbamein á for- stigi sem finnst og er fjarlægt við speglun- ina sent til rannsóknar hjá vefjameina- fræðideild þar sem líffærameinafræðingar meta ástand sýnisins. Allar þessar upplýs- ingar flytjast í miðlæga grunninn eins og áður sagði.“ Sunna segir að meltingarlæknar hafi um árabil hvatt til þess að hafin yrði skim- un fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini og árið 2008 hafi slík skimun staðið fyrir dyrum en verið frestað vegna efnahags- hrunsins og bágrar stöðu ríkissjóðs. „Það sem hratt þessu verkefni af stað núna var að Krabbameinsfélagið ásamt 11 fag- og sjúklingafélögum stóð að áskorun til heil- brigðisráðherra og alþingismanna um að hefja skipulega leit að ristilkrabbameini í mars 2014. Líftryggingafélagið Okkar Líf hafði sýnt áhuga á að leggja einhverju góðu málefni lið og eftir ábendingu frá krabbameinslækni varð þetta þarfa verk- efni fyrir valinu. Okkar líf bauð veglegan styrk, gerði samning við Krabbameinsfé- lagið en setti jafnframt skilyrði um að ráð- inn yrði verkefnastjóri sem héldi utan um þetta. Þáverandi forstjóri Krabbameinsfé- lagsins, Ragnheiður Haraldsdóttir, hringdi í mig þar sem ég var stödd á Tenerife um jólin 2014 og spurði hvort ég væri til í að taka þetta að mér. Mér fannst þetta auðvit- að gríðarlega spennandi og mér var falið að safna gögnum og útbúa greinargerð um hvernig mætti standa að árangursríkri hópleit hér á landi útfrá nýjum forsendum. Þetta vann ég í mjög nánu samstarfi við Embætti landlæknis og velferðarráðu- neytið.“ Valið á milli FIT-skimunar og ristilspeglunar Meltingarlæknar hafa verið sammála um að besta leiðin til að finna ristil- og enda- þarmskrabbamein væri með ristilspeglun og Sunna segir engan ágreining um það. „Ristilspeglun er gullstaðallinn. Könnun Hópskimun fyrir ristilkrabbameini hefst á næsta ári Skýringarmynd sem sýnir hvernig hópleitin er skipulögð.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.