Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2016, Síða 36

Læknablaðið - 01.04.2016, Síða 36
196 LÆKNAblaðið 2016/102 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R fræðast um efnið og hafa nýjustu upplýs- ingar á reiðum höndum þegar veita þarf skjólstæðingum ráðleggingar um hollt mataræði og heilbrigðan lífsstíl. Listinn yfir fyrirlesara er glæsilegur en þeir eru Gary Taubes, Axel F. Sigurðsson, Tim Noakes, Tommy Wood, Denise Minger og Aseem Malhotra. Kynnir og fundarstjóri ráðstefnunnar er Dr. Maryanne Demasi, þekkt sjónvarpskona frá ABC sjónvarps- stöðinni í Ástralíu. Nánari upplýsingar um fyrirlesarana er að finna á heimasíðunni www.foodloose.is en þar geta áhugasamir jafnframt skráð sig á ráðstefnuna. Sykur er ekki bara sykur Samkvæmt nýútkominni skýr- slu heilbrigðisyfirvalda Banda- ríkjunum er þriðji hver Banda- ríkjamaður orðinn offeitur og annar hver Bandaríkjamaður er með sykursýki eða forstigsein- kenni hennar. Guðmundur: „Þar erum við meira að segja að sjá offitufaraldur meðal ungbarna, 6 mánaða gömul börn með einkenni offitu. Það hlýtur að stafa af umhverfisþáttum, næringunni, þar sem hreyfingarleysi ungbarna er óþekkt hug- tak.“ Er það sykur sem veldur þessu? Guðmundur: „Sykurinn virðist eiga stóran þátt í þessu en þó varla eingöngu. Rannsóknir sýna sterk tengsl milli við- bætts sykurs í matvælum og efnaskipta- heilkennis en fleiri þættir spila þar inn í.“ Það er gjarnan bent á muninn á glúkósa og frúktósa þegar rætt er um sykurneyslu. Mannslíkaminn bregst mjög ólíkt við þess- um tveimur einsykrum. Guðmundur: „Nýleg rannsókn á offeit- um börnum sem gerð var í Bandaríkjun- um (Lustig o.fl.) sýndi til dæmis að með því að halda sama kolvetnainnihaldi og hitaeiningafjölda í mataræðinu en taka út frúktósann og setja glúkósa í staðinn dró markvert úr forstigseinkennum sykursýki hjá börnunum á aðeins 10 dögum, án þess að þyngd barnanna breyttist.“ Axel: „Viðbættur sykur í matvælum er yfirleitt blanda af glúkósa og frúktósa í mismunandi hlutföllum. Þeir sem telja frúktósann helsta skaðvaldinn hafa bent á að það eru eingöngu lifrarfrumur sem geta unnið úr frúktósa en allar frumur líkam- ans geta nýtt sér glúkósann. Frúktósinn verður því að fara í gegnum lifrina. Mikil neysla á frúktósa örvar framleiðslu á þrí- glýseríðum í lifrinni. Þannig hækkar magn þríglýseríða í blóði auk þess sem fitusöfn- un í lifur getur orðið vandamál. Fitumagn í líkamanum eykst þó viðkomandi sé ekki að neyta fitu. Líkaminn er einfaldlega að bregðast á þennan hátt við frúktósaneysl- unni.“ Guðmundur: „Rannsóknin sem ég nefndi sýndi einmitt að með því taka frúktósann úr mataræðinu minnkaði lifrarfitan og innanfitan í börnunum, þrí- glýseríð og insúlínmagn í blóði minnkaði þrátt fyrir að ekki væri verið að fækka hitaeiningum eða minnka magn kolvetna í matnum, aðeins breyta gerð þeirra.“ Axel: „Við höfum áhuga á að fjalla um áhrif mataræðis á langvinna lífsstílssjúk- dóma með því að vekja athygli á niður- stöðum nýlegra rannsókna og kenninga á þessu sviði. Því ákváðum við að fá viður- kennda og þekkta fræði- og vísindamenn á þessu sviði til að tala á ráðstefnunni. Um leið viljum við að sem flest sjónar- mið heyrist. Annað vandamál er að ráð- leggingar um mataræði henta ekki alltaf þeim sem þurfa mest á þeim að halda. Með öðrum orðum, ráðleggingarnar þurfa að vera praktískar og þess eðlis að sjúklingur sé líklegur til að fylgja þeim. Þær þurfa einnig að miða að einstaklingnum sjálfum og lífsháttum hans. Þannig þarf að stýra ráðleggingunum út frá þörfum einstak- lingsins því það sama hentar ekki öllum.” Kjartan: „Undanfarin 30 ár hefur áróðurinn beinst gegn fitu í mataræðinu. Upphaf þess má rekja til ákvörðunar heilbrigðisyfirvalda í Bandaríkjunum sem settu fram manneldismarkmið sem beindust að því að lækka kólesteról í blóði, byggt á þeirri kenningu að mettuð fita og kólesteról í mataræði hækkuðu kólesteról í blóði sem aftur ylli hjartasjúkdómum. Þetta varð til þess að fitan hvarf úr matn- um að miklu leyti og í staðinn kom unnið korn, eða maís, sem gerbreytti í rauninni allri undirstöðu í mataræði bandarísku þjóðarinnar og í framhaldinu alls hins vestræna heims. Það hlálega við þetta er að þetta var ekki ætlun þeirra næringarfræðinga sem lögðu til upphaflegu breytingarnar á mataræði bandarísku þjóðar- innar en þarna voru greinileg pólitísk áhrif frá matvælaiðnað- inum svo velferð almennings var kannski ekki efst á blaði. Einn þeirra næringarfræðinga sem kom að þessu spáði því að þetta myndi valda verulegri aukningu í offitu og sykursýki sem svo varð raunin. Nú eru viðhorfin að snúast við, fitan er að koma inn aftur. Líklegra er að neysla sykurs og unninna kolvetna sé hinn raun- verulegi áhættuþáttur þegar kemur að offitu, sykursýki II og hjarta- og æðasjúk- dómum.“ Axel: „Þetta olli því að um árabil lögðu matvælaframleiðendur áherslu á að fram- leiða matvæli með sem lægstu fituinni- haldi. Til að slíkur matur sé yfirhöfuð ætur þá verður að bæta upp fituleysið með ein- hverju öðru og algengast er að það sé gert með viðbættum sykri. Í kjölfarið margfald- aðist framleiðsla á maís til sýrópsgerðar sem er aðaluppistaðan í frúktósanum sem notaður er sem viðbættur sykur víða um heim.“ Kjartan: „Í heilsugæslunni erum við að meðhöndla börn og unglinga sem eru orðin of feit. Svo virðist sem mataræði þeirra byggist að miklu leyti á sykur- neyslu. Gosdrykkir, ávaxtasafar og sæl- gæti eru auðvitað augljósar ástæður en jafnvel þar sem foreldrar eru að reyna að halda hollari mat að börnunum er erfitt að forðast sykurinn sem er oft falinn og jafnvel undir öðrum nöfnum. Til dæmis eru flestar mjólkurvörur sem ætlaðar eru börnum með hátt sykurinnihald og lágt fituinnihald og þetta þarf að endurskoða

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.