Læknablaðið - 01.04.2016, Side 38
198 LÆKNAblaðið 2016/102
Jón Karlsson prófessor og yfirlæknir
við Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsið
í Gautaborg hlaut nýverið norrænu
verðlaunin í læknisfræði árið 2015 fyrir
rannsóknir sínar og brautryðjendastarf á
sviði íþróttalækninga. Verðlaunin afhen-
ti Daníel Svíaprins við hátíðlega athöfn í
Stokkhólmi þann 27. janúar síðastliðinn.
„Mér þótti afskaplega vænt um að fá þessi
verðlaun og þau eru mikil viðurkenning
fyrir það starf sem við höfum unnið hér
undanfarna fjóra áratugi,“ segir Jón og
bætir við að ekki hafi spillt fyrir að hitta
ríkisarfa Svíþjóðar og snæða svo hátíðar-
kvöldverð. „Þetta var mjög virðulegt og
hátíðlegt.“
Auk Jóns hlutu þrír aðrir sérfræðingar
í íþróttalækningum verðlaunin, Norð-
mennirnir Roald Bahr og Lars Engebret-
sen og Daninn Michael Kjær.
Jón hefur verið búsettur í Gautaborg
allar götur frá árinu 1981 er hann hélt utan
frá Íslandi til framhaldsnáms í læknis-
fræði og segir að val á sérgrein hafi verið
hálfgerð tilviljun og enn síður hafi hann
ætlað sér að setjast að í Svíþjóð til lang-
frama. „Eftir kandídatsárið starfaði ég í
tvö ár sem deildarlæknir á bæklunardeild
Landspítala og einn af sérfræðingunum
á deildinni útvegaði mér námsstöðu við
Sahlgrenska-sjúkrahúsið í Gautaborg.
Síðan hef ég verið hér án þess að hafa haft
uppi stórar áætlanir um það í upphafi.
En svona gerast hlutirnir bara og nú er ég
farinn að nálgast eftirlaunaaldur,“ segir
hann. Eiginkona Jóns er sænsk og eiga þau
fjórar uppkomnar dætur og fjögur barna-
börn. „Heimþráin hefur alltaf blundað í
mér en Svíþjóð hefur farið afskaplega vel
með mig,“ segir hann.
Norrænu verðlaunin í læknisfræði hafa
verið afhent árlega síðan 1979 og voru
stofnuð af Salus, tryggingafélagi sænskra
lækna. Árið 2013 rann Salus saman við
Folksam-tryggingasamsteypuna og eru
verðlaunin nú kennd við Folksam. Dóm-
nefnd er skipuð fjórum einstaklingum úr
jafnmörgum greinum læknisfræði og á
hverju ári er veitt til ákveðinnar sérgrein-
ar. Verðlaunin nema einni milljón sænskra
króna sem skiptist á milli verðlaunahafa.
Jón er vel þekktur innan sinnar sér-
greinar og doktorsverkefni hans er fjallaði
um nýjung í aðgerð á ökklaáverka vakti
heimsathygli. „Þetta er mun einfaldari
aðgerð en áður var gerð og hefur reynst
mjög vel.“ Reyndar svo vel að aðgerðin
er kennd við hann. „Það finnst mér nú
reyndar óþarfi og hef reynt að draga úr
því eftir bestu getu,“ segir hann en þess
má einnig geta að auki að hann er höfund-
ur nærri 30 bóka um bæklunarlækningar,
ritrýndar greinar hans skipta hundruðum
svo sitthvað hefur hann lagt til málanna á
merkum ferli. Og er langt frá því sestur í
helgan stein.
„Ég er núna að rannsaka mjaðmaað-
gerðir með liðspegli ásamt samstarfsfólki
Jón Karlsson bæklunarlæknir
Handhafi norrænu
læknisfræðiverðlaunanna 2015
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
CP REYKJAVÍK er frísklegt og skapandi þjónustu-
fyrirtæki sem skipuleggur viðburði, ferðir og ráðstefnur
fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini.
Hafðu samband og við gerum þér tilboð
í ógleymanlega upplifun
Suðurlandsbraut 6 - 108 Reykjavík - 510 3900 - www.cpreykjavik.is
VIÐ GERUM ATVINNULÍFIÐ
VIÐBURÐARÍKARA
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R