Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2016, Síða 39

Læknablaðið - 01.04.2016, Síða 39
LÆKNAblaðið 2016/102 199 Jón Karlsson prófessor og yfirlæknir tekur við verðlaununum úr hendi Daníels Svíaprins. Ljósmynd: Lars Nyman. Sérfræðileyfi Læknablaðið harmar þau mistök sem urðu við birtingu lista yfir þá sem fengu sérfræðileyfi útgefin og staðfest frá Embætti landlæknis. Listarnir víxl- uðust og hefur þetta nú verið leiðrétt á heimasíðu blaðsins. mínu. Þetta er stórt rannsóknarverkefni sem felur í sér talsverða nýjung og er mjög spennandi. Hér var einn Íslendingur, Páll Jónasson, sem vann við þetta en hann lauk doktorsverkefni sínu í fyrra undir minni handleiðslu. Hann er fluttur heim og starfar í Orkuhúsinu núna. Hér hafa þrír aðrir íslenskir læknar stundað sérnám í bæklunarlækningum undir minni hand- leiðslu, Sveinbjörn Brandsson, Gauti Lax- dal og núna Haukur Björnsson sem er að ljúka sérnámi sínu. Þetta eru toppmenn og ég hef gert talsvert af því að fara heim til Íslands og gera aðgerðir með þeim þannig að tengslin við Ísland eru sterk, bæði fag- lega og persónulega.“ Jón segist sinna aðgerðum daglega og helst eru það ökklaaðgerðir og flóknar hnéaðgerðir sem hann fæst við. „Á þess- um árstíma eru skíðameiðsli algeng. Fólk slasast á ökklum og hnjám. Þetta eru al- gengustu aðgerðirnar. Annars má segja að ég hafi sérhæft mig í íþróttameiðslum og þá sérstaklega meiðslum sem knattspyrnu- menn verða fyrir.“ Knattspyrna er eitt helsta áhugamál Jóns utan vinnunnar og tilviljun réði því að hans sögn að árið 1984 gerðist hann liðslæknir eins af stóru liðunum í Svíþjóð, IFK Gautaborg. „Þetta var hrein tilviljun. Einn af liðslæknunum hætti með stuttum fyrirvara og samstarfsmaður minn á bækl- unardeildinni hljóp í skarðið og spurði mig hvort ég vildi aðstoða hann. Síðan höfum við verið læknar liðsins.“ Ein af bókum Jóns fjallar einmitt um knattspyrnumeiðsli og er sögð ómissandi fyrir alla sem leggja slíkar lækningar fyrir sig. „Þetta er líklega sú bók sem ég er hvað stoltastur af. Hún hefur gagnast mörgum og meðal annars orðið til þess að alvarleg- um meiðslum í íþróttinni hefur fækkað. Það er fyrst og fremst því að þakka að með markvissri þjálfun er hægt að fyrirbyggja mörg alvarlegustu meiðslin.“ Ekki er hægt að heyra á mæli Jóns að hann hafi tapað niður íslenskunni að neinu leyti og hann segist halda henni við með lestri íslenskra bóka. „Ég les mest ís- lenska reyfara og er hrifnastur af Arnaldi Indriðasyni.“ U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.