Læknablaðið - 01.09.2016, Qupperneq 9
LÆKNAblaðið 2016/102 377
Ég hef ekki
verið á pillunni í
og samt verið yfir 99% örugg
um að verða ekki þunguð
2 ár, 3 mánuði
og 4 daga
13,5 MG LEVONORGESTREL
Ný getnaðarvörn
Jaydess® er smálykkja sem veitir
örugga vörn gegn þungun í allt að 3 ár
Lítil og auðveld í uppsetningu1
Lítið magn hormóna og verkun að
mestu staðbundin
Rannsökuð hjá konum sem hafa fætt
barn sem og þeim sem ekki hafa fætt
barn
-Jaydess® er ekki fyrsta val fyrir
konur sem ekki hafa fætt barn,
vegna takmarkaðrar klínískrar
reynslu
1. Gemzell-Danielsson K, et al. Fertil steril 2012; (97): 616-622. e3.
Upplýsa ber notendur um hættu
á utanlegsfóstri og einkenni þess
L.
IS
.0
5
.2
0
14
.0
0
71
Skannaðu QR kóðann
eða farðu inn á smalykkjan.is
til að nálgast rafrænar
upplýsingar
R I T S T J Ó R N A R G R E I Nhttp://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.09.94
Allt bendir til þess að kosið verði til al-
þingis í lok október næstkomandi. Ekki er
ólíklegt að staða og framtíð heilbrigðisþjón-
ustunnar á Íslandi verði eitt af stóru kosn-
ingamálunum og segja má að kominn hafi
verið tími til. Miðað við vægi hennar í ís-
lensku samfélagi og miðað við þann mikla
metnað og samstöðu þjóðarinnar sem
ítrekað hefur komið fram á síðustu árum er
í raun illskiljanlegt að heilbrigðismálin hafi
ekki skipað stærri sess í stjórnmálaumræðu
undanfarinna áratuga en raun ber vitni.
Á því hlýtur að verða breyting í að-
draganda þeirra kosninga sem framundan
eru. Um leið er ástæða til að láta í ljós þá
von að umræðan verði málefnaleg og upp-
byggjandi. Hitt verður þó að játast að þegar
umræðuhefðin á vettvangi stjórnmálanna
er skoðuð í heild sinni og ennþá frekar
þegar horft er til opinberra skoðanaskipta
um heilbrigðismál að undanförnu er engin
sérstök ástæða til bjartsýni.
Í þessum efnum hef ég til dæmis í huga
upphrópanakennda umræðu um eflingu
heilsugæslunnar og þróun í átt til aukins
einkareksturs í heilbrigðisþjónustunni.
Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna
þeir stjórnmálamenn sem andsnúnir eru
slíku rekstrarfyrirkomulagi leyfa sér til
dæmis endalausar tilraunir til að setja
samasemmerki á milli einkareksturs og
einkavæðingar. Ég þekki engan Íslending
og ennþá síður lækni sem vill hverfa frá
því sterka kerfi almannatrygginga og um
leið þeim jöfnuði sem einkennir íslenska
heilbrigðisþjónustu. Ég þekki hins vegar
marga, og er ein af þeim sjálf, sem telja
ólík rekstrarform undir sameiginlegum
hatti almannatrygginga og ríkisrekinnar
heilbrigðisþjónustu af hinu góða. Einka-
rekstur er eitt þeirra. Einkavæðing kemst
hins vegar ekki undir þann hatt samkvæmt
skilgreiningu fjármálaráðuneytisins á hug-
takinu. Svo einfalt er það.
Heilbrigðiskerfið sem okkur öllum þyk-
ir svo mikilvægt hefur átt undir högg að
sækja í langan tíma. Nú virðist langþráð lag
til þess að snúa vörn í sókn og fyrstu skref-
in í þá átt hafa raunar þegar verið stigin.
En betur má ef duga skal og um það virð-
ast allir sammála. Þess vegna er svolítið
einkennilegt að heyra á sama tíma þær úr-
töluraddir að stíga verði varlega til jarðar,
ekki megi auka á þenslu í ríkisútgjöldum,
vekja upp verðbólgudrauginn og annað
álíka. Við höfum hvort tveggja í senn, góð-
ar aðstæður og uppsafnaða þörf fyrir veru-
legan viðsnúning. Á meðan biðlistar eftir
margskonar þjónustu eru langir, á meðan
hjúkrunarrýmisþjónustu við aldraða er
verulega ábótavant og á meðan greiðslu-
þátttaka almennings er langt umfram eðli-
leg mörk er engin afsökun til fyrir því að
bretta ekki upp ermar. Engin ástæða er þó
til að leggja til gjaldfrjálsa þjónustu eins og
sum stjórnmálaöfl hafa þegar freistast til að
lofa. Eðlileg og hófstillt gjaldtaka með þaki
á heildarútgjöldum einstaklinga er það sem
þarf.
Og það eru fleiri ástæður sem hvetja
til aðgerða. Háværar raddir hafa haldið
því fram að undanförnu að íslensku heil-
brigðiskerfi og ekki síst Landspítalanum
væri ógnað af því sérhæfða sjúkrahúsi í
eigu einkaaðila sem ef til vill mun rísa hér
á næstu árum. Væntanlega er nokkuð til
í því. En hvers vegna stafar ógn af tilvist
slíks fyrirtækis? Svarið er einfalt: Skortur á
samkeppnishæfni. Enda þótt reynt væri að
halda því fram að bæði stæði til að flytja
inn lækna og sjúklinga blasti það auðvitað
við að læknum og öðru heilbrigðisstarfs-
fólki á Íslandi yrði boðið að starfa á sjúkra-
húsinu. Ef það er talin ógn við heilbrigð-
iskerfið að fólki bjóðist störf annars staðar
er rétt að skoða það ofan í kjölinn hver hinn
raunverulegi vandi er.
Talið um að íslenskum læknum myndi
ekki bjóðast að starfa þarna var auðvit-
að augljós og innihaldslaus fagurgali og
rímaði á engan hátt við það alþjóðlega
umhverfi sem læknar bæði mennta sig og
starfa í. Og það leiðir hugann að því hverjir
séu í raun „íslenskir læknar“. Er íslenskur
ríkisborgari endilega íslenskur læknir? Er
sá sem mætir til leiks með háskólagráður
sínar og áralanga sérfræðiþjálfun til dæmis
frá Svíþjóð eða Bandaríkjunum íslenskur
læknir eða er hann miklu frekar til dæmis
sænskur eða bandarískur? Hvað um ind-
verska lækninn sem starfað hefur á Íslandi
í aldarfjórðung? Er hann íslenskur læknir,
indverskur eða franskur af því að hann
menntaði sig þar? Mikill meirihluti þeirra
lækna sem starfa hér á landi sækir sér-
fræðimenntun sína til virtra háskóla utan
landsteinanna og standa þeir sjálfir straum
af öllum kostnaði ólíkt því sem er í hinu
niðurgreidda grunnnámi við Háskóla Ís-
lands. Eftir starfskröftum þessara lækna er
sóst víða um heim. Það er að mínu viti bæði
úrelt hugsun og hættuleg íslenska heil-
brigðiskerfinu ef það telur sig geta gengið
að einhverjum hópi lækna vísum af því að
hann sé „íslenskur“. Allra síst er það hægt
ef aðbúnaður og kjör standast ekki alþjóð-
legan samanburð og hætta þykir jafnvel á
hruni kerfisins ef einkavædd (sem er allt
annað en einkarekin!) heilbrigðisstarfsemi
ákveður að drepa niður fæti hér á landi.
Þess vegna skipta bæði loforð og efndir
frambjóðenda og þingmanna miklu máli á
næstu mánuðum og misserum. Með hvoru
tveggja verður fylgst af athygli.
Arna
Guðmundsdóttir
innkirtlalæknir
Formaður Læknafélags
Reykjavíkur
arnagu@landspitali.is
Campaign promises and delivery
Arna Guðmundsdóttir, MD
Consulting Physician
Department of Endocrinology & Metabolism
Landspítali - University Hospital Fossvogi
107 Reykjavik Iceland
Loforð og efndir