Læknablaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 34
402 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Þótt læknar vinni mikið finna þeir sér
margir tómstundagaman, hobbí, til að
stunda í frítíma sínum. Þessi hobbí eru
af ýmsum toga, sumir spana upp á fjöll
hvenær sem þeir eiga lausa stund, aðrir
stunda golf eða aðrar íþróttir eða spila
bridds. Og svo er nokkuð fjölmennur
hópur sem helgar frítímann tónlistinni.
Margir sækja reglulega tónleika og óperu
en aðrir láta ekki nægja að hlusta á aðra
heldur vilja leggja sitt af mörkum með
hljóðfæraleik eða söng.
Viðmælendur Læknablaðsins falla í
síðastnefnda flokkinn, þeir syngja í kór.
Eiríkur Jónsson skurðlæknir og heimilis-
læknarnir Jón Steinar Jónsson og Sverrir
Jónsson eiga það sameiginlegt að syngja
í karlakór. Þrátt fyrir sama föðurnafn eru
þeir ekki bræður en þeir eru Fóstbræður
og eru að búa sig undir þátttöku í aldaraf-
mæli þess ágæta kórs síðar í haust. Sam-
anlagður ferill þeirra í kórnum er orðinn
nokkuð langur þótt ekki spanni hann
heila öld. Jón Steinar hefur verið lengst,
eða í 20 ár, Sverrir í 14 ár og Eiríkur í sex
ár.
Hvers vegna að ganga í kór?
Blaðamaður stefndi þeim á Kaffi Loka á
Skólavörðuholti og fyrsta spurningin sem
lögð var fyrir þá var einfaldlega: Hvers
vegna syngið þið í kór?
Jón Steinar: Ég hef alltaf haft áhuga á
tónlist þótt ég hafi ekki haft tækifæri til
að læra hana. Afi kenndi mér þó stafrófið
svo ég kann undirstöðuatriðin í nótna-
lestri. Hann var karlakóramaður austan
af Héraði og ég fór oft með honum á tón-
leika með ónefndnum karlakór. Ég var
ákveðinn í því frá blautu barnsbeini að ég
ætlaði að syngja í karlakór. Ég byrjaði að
vísu í blönduðum kórum í Bústaðakirkju
og víðar, en lengst hef ég þó sungið með
Fóstbræðrum.
Sverrir: Ég söng ekkert fyrr en ég var
um fertugt þótt ég ætlaði mér alltaf að
syngja í kór. Ég neitaði að læra á hljóð-
færi sem krakki en það var söngfólk í
fjölskyldunni svo ég reiknaði alltaf með
þessu. Árið 1993 fluttum við austur á
Hvolsvöll og þá byrjaði ég að syngja með
Karlakór Rangæinga. Þá komst ég að því
að ég kunni lítið að beita röddinni og
þegar ég fór að leita eftir aðstoð fann ég út
að það var ekkert í boði þar eystra nema
reglulegt söngnám. Ég fór í slíkt nám og
lærði í nokkur ár hjá Jóni Sigurbjörnssyni
söngvara og leikara. Eftir að ég flutti til
Reykjavíkur fór ég í Fóstbræður og hef
verið þar síðan árið 2002.
Eiríkur: Ég söng í MK-kórnum með
Jóni Steinari á menntaskólaárunum og
föndraði aðeins við píanónám. En eftir
að ég kom heim úr sérnámi 1993 fórum
við hjónin í Fílharmóníuna. Þar söng ég
tenór í blönduðum kór í nokkur ár og átti
í smávandræðum með röddina því tenór
í blönduðum kór er dálítið strekktur fyrir
mann sem er nær því að vera baritón.
Ég hafði alltaf áhuga á að fara í karlakór
og vonaðist eftir því að það hitti betur á
röddina. Þar syng ég fyrsta bassa og líkar
vel. Mig langaði alltaf að komast inn í
þennan karlakórahljóm sem er svo flottur.
Svo var það félagsskapurinn. Með fullri
virðingu fyrir samstarfskonum mínum
þótti mér gaman að koma í karlahópinn.
Þetta er blandaður hópur allsstaðar að
úr samfélaginu sem er svo skemmtilegt.
Sumir fara í karlaklúbba, læons og rótarí,
en þetta er annars konar framlag til sam-
félagsins.
Annar kúltúr og svartur húmor
Jón Steinar: Ég hef oft sagt það við kon-
urnar sem ég vinn með að ef ég væri ekki í
Fóstbræðrum væri ég kominn á blæðingar
og með brjóst. Þær taka því vel. Það er
frábært að vinna með konum en í kórnum
er annar kúltúr, annar húmor. Hann er
frekar svartur en góður og þú upplifir
hann ekki á kvennavinnustað. Svo er það
náttúrulega hljómurinn sem getur verið
bæði öflugur og mjúkur. Menn hafa ýmis
áhugamál en þegar maður er innan um
100 karla og er ekki að keppa við þá eins
og í golfi hverfur maður inn í samhljóm,
í harmóníu við 100 aðra karla. Ég hef
oft svarað því til þegar ég er spurður af
hverju ég hafi valið þetta hobbí, að það
syngi enginn vondur maður. Það er því
enginn vondur maður í þessum félags-
skap.
Blaðamaður vitnar í grein sem hann
ritaði fyrir Læknablaðið haustið 2013 um
norska rannsókn sem sýndi ótvírætt
að tónlistaráhugi og -kunnátta væri
útbreiddari meðal lækna en annarra
menntastétta. Þetta gátu þeir félagar
tekið undir og Sverrir benti einmitt á sin-
fóníutónleika sem margir læknar sæktu
reglulega. Þeir höfðu ekki neina skýringu
á þessum mun en Eiríkur setti þessa fram:
Kannski urðu þeir læknar af því þeim
tókst ekki að verða alvöru tónlistarmenn
eins og þá langaði til.
Sverrir og Jón Steinar bentu á að í
læknastétt væru til atvinnutónlistarmenn.
Þeir töldu áhugavert að skoða hversu
margir læknar syngi í kórum hér á landi,
þeir væru eflaust allmargir.
Söngur er ákveðin „hreyfing“
– En eftir hverju eru menn að sækjast með því
að syngja í kór?
Eiríkur: Það sem ég held að menn séu
að sækjast eftir er að upplifa eins konar
katharsis, hreinsun. Í söngnum upplifa
þeir slökun og íhugun, gleyma stund og
stað og hreinsa hugann. Harmónían hefur
þessi áhrif.
Hreinsun, slökun, harmónía
– er það sem er eftirsóknarverðast við að syngja í kór,
segja þrír læknar sem syngja með aldargömlum karlakór, Fóstbræðrum
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson