Morgunblaðið - 08.12.2016, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fjögur félög í BSRB hafa óskað eftir
bindandi allsherjaratkvæðagreiðslu
á meðal félagsmanna BSRB um fyr-
irhugaðar breytingar á lífeyrisrétt-
indum opinberra starfsmanna. Um
er að ræða samkomulag sem for-
ystumenn BHM, BSRB og KÍ gerðu
við fjármálaráðuneytið og Samband
íslenskra sveitarfélaga 19. septem-
ber síðastliðinn.
Félögin sem um ræðir eru Lands-
samband lögreglumanna, Lands-
samband slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna, Sjúkraliðafélag Íslands
og Tollvarðafélag Íslands. Þau ósk-
uðu eftir lögfræðiáliti Gísla Tryggva-
sonar hdl. um hvort bera ætti fyrr-
nefnt samkomulag undir atkvæði
félagsmanna þeirra stéttarfélaga
sem málið varðar.
Gísli komst að þeirri niðurstöðu að
„allsherjaratkvæðagreiðsla allra
hlutaðeigandi félagsmanna þeirra
stéttarfélaga sem eiga í hlut sé sú
stofnun sem er til þess bær að sam-
þykkja endanlega og með bindandi
hætti breytingar á lífeyrisréttindum
opinberra starfsmanna sem samið
var um hinn 19. september sl.“ Þá
segir hann talið hugsanlegt að van-
höld á þessu gætu leitt til ógildingar
„ef á það reyndi með réttum hætti“.
Einnig komst hann að þeirri nið-
urstöðu að „af fordæmum, langri
hefð um framkvæmd kjara- og rétt-
indamála opinberra starfsmanna og
þróun á sviði vinnumarkaðsréttar og
stjórnskipunarréttar leiði að skýra
beri 2. mgr. 75 gr. stjórnarskrárinn-
ar um samningsrétt launafólks varð-
andi „réttindi tengd vinnu“ þannig
að verulegar efnisbreytingar um
mikilvæg réttindamál launafólks,
svo sem félagsleg lífeyrisréttindi,
skuli afgreiddar endanlega með
bindandi allsherjaratkvæða-
greiðslu.“
Komist er að þeirri niðurstöðu að
það sé örugglega heimilt og líklega
skylt að bera samkomulagið undir
allsherjaratkvæði hlutaðeigandi fé-
lagsmanna sem málið varðar. Gísli
leggur til að félögin fjögur sendi
BSRB formlegt erindi og afrit af því
a.m.k. til BHM og KÍ. Þar verði ósk-
að eftir bindandi allsherjaratkvæða-
greiðslu meðal hlutaðeigandi fé-
lagsmanna allra þeirra stéttarfélaga
sem málið varðar. Jafnframt leggi
álitsbeiðendur það til að heildarsam-
tökin tilkynni viðsemjendum sínum
þessa afstöðu, fallist heildarsamtök-
in á tillöguna, formlega fyrir árslok.
Allsherjaratkvæði fari fram við
fyrsta hentugleika, nema aðilar
ákveði að semja um breytingar á
samkomulaginu.
Fjögur félög kalla
eftir atkvæðagreiðslu
Deilt um breytingar á lífeyrisréttindum félagsmanna
Morgunblaðið/Kristinn
BSRB Fjögur félög vilja atkvæða-
greiðslu um breytingar.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vænst er þess að bormenn sem starfa
við gerð Vaðlaheiðarganga muni mæt-
ast og slá í gegn, eins og það er kallað,
um mánaðamót janúar og febrúar. Alls
90,8% af greftri ganganna er lokið.
Eyjafjarðarmegin eru menn komnir
4,993 m. inn í fjallið en 1559 m. úr
Fnjóskadal. Hægt miðaði í síðustu
viku m.a. vegna vinnu við bergstyrk-
ingar á því svæði þar sem berg hrundi
úr lofti og skemmdi borvagninn sem
var notaður Eyjafjarðarmegin. Ný
tæki eru nú komin í staðinn.
Allt að 60 metrar á viku
„Gangurinn í greftrinum hefur verið
um 50 til 60 metrar á viku eftir að
bergþéttingum lauk. Fljótlega kemst
verktakinn vonandi út úr setberginu
og í betra efni. Þá ætti verkið að ganga
hraðar. Í síðustu viku náðist ekki nema
sjö metrar úr Eyjafirði og átján og
hálfur að austan,“ segir Valgeir Berg-
mann hjá Vaðlaheiðargöngum hf., tals-
maður verkefnisins.
Síðsumars tókst gangamönnum að
komast í gegnum hrunsvæðið aust-
anmegin sem stoppaði alla borun í
langan tíma þar sem mikill vatnsagi
kom í kjölfarið á hruni úr misgeng-
issprungu. Nú er dælt um 100 sek/ltr
af köldu vatni en var allt að 500 sek/ltr
þegar mest var. Þegar slegið hefur
verið í gegn mun kalda vatnið að aust-
an blandast svipuðu magn af um 40
gráða heitu vatni sem nú þegar rennur
út Eyjafjarðarmegin.
Í notkun vorið 2018
Verktakafyrirtækið Ósafl, sem er í
eigu ÍAV-Marti er aðalverktaki við
gangagerðina. Valgeir segir að þótt
borun ganganna ljúki senn sé mikið
eftir, svo sem lagnavinna og ýmis frá-
gangur í göngunum, vegagerð, veg-
skálabyggingar og svo framvegis.
Verktakinn gefi sér 15 mánuði í þau
verkefni og væntanlega komist Vaðla-
heiðargöng í notkun vorið 2018.
Ljósm/Valgeir Bergmann
Fnjóskadalsmegin Nú er búið að bora rúm 90% í Vaðlaheiðargöngunum.
Gegnumslag nálgast
BeChristensen armböndin eru falleg jólagjöf!
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-17 - lau: 12-15 - www.facebook.com/spennandi
Hreindýraleður - hreindýrahorn- silfurhúðað víravirki
- dönsk hönnun byggð á hefð frá sömum - ath! lækkað verð! -
Agnetha kr. 13.500.- Arctic kr. 12.800.- Boda kr. 14.900.- Inga kr. 21.600.-
Linn kr. 17.600.- Polar kr. 13.900.- Sif kr. 13.600.- Victoria kr. 11.700.-
Stjórn BSRB stendur við þá
ákvörðun sína að undirrita sam-
komulag um breytingar á lífeyr-
isréttindum, þrátt fyrir afstöðu
félaganna fjögurra. Í yfirlýsingu
er vísað til þess að sú niður-
staða hafi fengist á fundi for-
manna aðildarfélaga BSRB. Þá
er vitnað til álits lögmanna um
að samkomulagið sé ekki kjara-
samningur eða ígildi hans.
Standa við
ákvörðun
EKKI ATKVÆÐAGREIÐSLA