Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 74
74 .
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
BÆKUR
Tveir bræður
Sveinn var á gangi um götur bæj-
arins þegar Finnjón bróðir hans birt-
ist skyndilega á reiðhjóli og hafði
hann fest skóflu við hjól sitt. Þetta
var áður en Reykjavík þandist í út-
hverfin og því fóru flestir gangandi
eða hjólandi um bæinn. Hitt var
sjaldgæfara að menn hefðu skóflu
meðferðis – sérstaklega væru þeir á
hjóli. Sveinn tók bróður sinn tali og
spurði frétta.
Sagðist Finnjón
vera á leið í Foss-
voginn þar sem
hann hefði orðið
sér úti um land-
spildu. Hugðist
hann koma sér
þar fyrir, þó af-
skekkt væri fyrir
mann sem þurfti
að sækja mestalla sína vinnu í bæinn.
Þó eins væri ástatt um Svein hugsaði
hann sig ekki um tvisvar heldur sagði
að bragði: „Fyrst svo er þá geri ég
það líka“. Leið ekki á löngu þar til
Sveinn dró sjálfur fram hjól sitt og
skóflu – og lagði leið sína suður í
Fossvog. Þeir bræður áttu eftir að
fara margar slíkar ferðir með alls
kyns verkfæri og tól enda var ærið
verk að ryðja landið og koma sér þar
upp húsi.
Finnjón og Sveinn Mósessynir
voru vestan úr Dýrafirði. Þeir fluttust
suður í kringum 1920 en þá þegar
voru menn teknir að yfirgefa lands-
byggðina í von um betra líf í höf-
uðstaðnum. En atvinna var stopul og
húsaskjól af skornum skammti.
Byggingarlóðir fengust varla nema
fyrir klíkuskap og leiguhúsnæði var
dýrt og ótryggt. Bræðurnir voru
stoltir og lögðu sig alla fram um að
verða sem sjálfstæðastir. Þeir voru af
fátækum bændum og sjómönnum
komnir og vissu hvað það þýddi að
búa við húsbóndavald annarra. Þeir
einsettu sér að starfa á eigin vegum
og koma sér upp sínum eigin húsa-
kynnum. Þeir voru örugglega ekki
einir um það. Þorri landsmanna
kannaðist við ömurleika fátækt-
arinnar og þá frelsisskerðingu sem
hún hafði í för með sér. Margir voru
tilbúnir að leggja mikið á sig fyrir
efnalegt- og félagslegt sjálfstæði.
Flestir byrjuðu nánast með tvær
hendur tómar en með dugnaði og
áræði náðu margir að koma fótunum
vel undir sig.
Nokkur aldursmunur var með
þeim bræðrum. Finnjón var fæddur
árið 1895 en Sveinn leit dagsins ljós
árið 1907 og var hann yngstur sex
systkina. Þrjú systkini voru látin þeg-
ar þeir bræður hófu landnám sitt í
Kópavogi og það fjórða hafði flust til
Kanada löngu áður og kom aldrei til
landsins aftur. Þeir voru því í raun
aðeins tveir eftir bræðurnir en leið
þeirra lá að mestu saman meðan báð-
ir lifðu. Lífið hafði að mörgu leyti leik-
ið fjölskylduna grátt og hafði það ef-
laust áhrif á samheldni þeirra.
Velferðarsamfélagið var rétt að stíga
sín fyrstu skref og þau viðhorf voru
sterk að hver ætti að standa á eigin
fótum og bera ábyrgð á sjálfum sér.
Samhjálp og persónuleg tengsl höfðu
mikið að segja og því skipti það þá
bræður miklu máli að eiga hvorn ann-
an að.
Finnjón hóf málaranám í Reykja-
vík árið 1918 og átti Sveinn eftir að
njóta leiðsagnar hans í þeirri iðn.
Sveinn bjó þá enn fyrir vestan ásamt
foreldrum sínum en þau fluttu öll suð-
ur árið 1923. Finnjón hafði kennt
bróður sínum nokkur grunnatriði í
heimsóknum sínum vestur en Sveinn
var þá á unglingsaldri. Sveinn hélt
áfram að nema af bróður sínum eftir
að suður var komið og leið ekki á
löngu þar til hann fór að starfa við
fagið. Finnjón og Sveinn urðu báðir
málarameistarar og fengust þeir við
margvísleg málarastörf. Þeir voru í
senn listrænir og góðir handverks-
menn enda tóku þeir iðulega að sér
vandasöm verkefni. Þeir voru mjög
færir í að oðra sem er vandmeðfarin
tækni þar sem líkt er eftir viðar- eða
marmaraáferð. Þar fengu þeir útrás
fyrir listræna hæfileika sína en í stop-
ulum frístundum áttu þeir einnig til
að teikna og mála.
Finnjón setti upp húsgagnamál-
arastofu árið 1930 og var Sveinn í
læri hjá honum. Árið 1934 hóf Sveinn
samstarf við tvo smiði sem fengust
við að smíða og gera við húsgögn.
Sveinn sá um að mála húsgögnin en
hann var einnig liðtækur við smíð-
arnar þegar á þurfti að halda. Þeir
komu sér upp verkstæði og stofnuðu
verslun sem bar heitið Ódýra hús-
gagnabúðin. Samstarfinu lauk árið
1941 þegar smiðirnir fengu vinnu hjá
hernum en Sveinn snéri sér aftur að
húsamálun.
Bræðurnir voru kvæntir menn
þegar þeir afréðu að verða sér úti um
samastað í Kópavogi árið 1937. Eig-
inkona Finnjóns hét Ingibjörg
Bjarnadóttir og áttu þau tvo syni,
Bjarna og Þorleif. Sveinn var kvænt-
ur Guðdísi Guðmundsdóttur en
þeirra börn fæddust eftir að þau
fluttu í Kópavoginn. Ingibjörg var úr
Dýrafirði en Guðdís hafði alist upp í
Garðinum og í Hafnarfirði. Öll voru
þau vön flutningum á milli ótryggra
húsakynna. Það var löngu orðið tíma-
bært að finna sér öruggan samastað
sem væri þeirra eigin. Slíkt var þó
ekki auðgert fyrir alþýðumenn sem í
ofanálag var utanbæjarfólk. Án sam-
banda innan flokks og bæjarkerfis
var enga lóð að hafa og án tengsla við
fjármálamenn var engin lán að fá.
Þeim bauðst að vísu að eignast íbúð í
fjölbýlishúsi við Grettisgötu en höfn-
uðu því. Bræðurnir voru úr sveit og
vildu hafa rýmra í kringum sig.
Lóðaúthlutanir í Kópavogi komu
sem himnasending fyrir þá bræður.
Þeir þurftu vissulega að hafa töluvert
fyrir því að koma sér fyrir og ekki var
hlaupið að því að fara til vinnu eða
afla fanga fyrstu ár búsetunnar. En
ávinningurinn var ótvíræður. Þeir
höfðu nóg landrými og gátu komið
sér fyrir eftir efnum og ástæðum.
Fjölskyldurnar voru lausar við
þröngbýli, hávaða og ryk bæjarins.
Bræðurnir voru aftur komnir út í
sveit þar sem víðerni, kyrrð og frels-
iskennd sveif yfir vötnum. Hér gátu
þeir búið út af fyrir sig án afskipta
annarra. Þeir voru húsbændur á eigin
heimili og voru staðráðnir í að skapa
fjölskyldum sínum örugga umgjörð.
Nýbýli og blettir
Kreppan sem hófst 1930 skammt-
aði þjóðinni kröpp kjör þar til seinni
heimsstyrjöldin kom með velmegun
til landsins með hernámi Breta árið
1940. Í Reykjavík, sem annars staðar,
áttu margir fullt í fangi með að sjá sér
farborða. Eitt af úrræðum ríkisvalds-
ins var að deila út landssvæðum til
ræktunar nærri þéttbýliskjörnum
víða um land. Suður af Reykjavík var
tveimur ríkisjörðum úthlutað, fyrst
Digranesi og stuttu síðar Kópavogi.
Það var á tvennan máta, annars veg-
ar var hluta landsins skipt niður í ný-
býli til ábúðar. Hins vegar var út-
hlutað smærri ræktunarblettum.
Með þeim átti að auðvelda fólki lífs-
baráttuna með því að gera því kleift
að stunda jarðrækt meðfram öðrum
störfum og voru þeir upphaflega ekki
ætlaðir til fastrar búsetu þótt mál hafi
síðar þróast á þann veg. Bræðurnir
fengu úthlutað blettum úr landi
Digraness. Finnjón fékk blett við Ný-
býlaveg en Sveinn uppi á hæðinni rétt
austur af Álfhólnum.
Nauðsynlegt var að greiða fyrir
samgöngum og hófst vegagerð árið
1935 með lagningu Nýbýlavegar, sem
lá á milli nýbýlanna og blettanna, en
þeim framkvæmdum lauk ári síðar.
Voru nýbýlin norðan megin vegar en
blettirnir sunnan megin. Kárs-
nesbraut var síðan lögð í beinu fram-
haldi af Nýbýlavegi og að því loknu
var hafist handa við Álfhólsveg.
Vegna fjárskorts náði sá vegur ekki
lengra en austur að Álfhól. Á sama
tíma var unnið við Hlíðarveg og hluta
Digranesvegar. Allir voru vegirnir
lagðir í atvinnubótavinnu, en sú vinna
lagðist niður með hernáminu og lauk
vegagerð þar með í bili í Kópavogi.
Úthlutanir áttu sér stað á árunum
1935-1937 og síðan aftur 1942. Fyrri
úthlutunin var úr landi Digraness og
sú síðari úr landi Kópavogs, en þeir
blettir voru nokkru minni. Á þeim ár-
um var um 10 ferkílómetra svæði á
milli Fossvogs og Kópavogs ráðstafað
og voru ræktunarlöndin á fjórða
hundrað. Þeir sem hrepptu hnossið
máttu teljast heppnir enda sóttu mun
fleiri um en fengu. Nýbýlin voru leigð
til 75 ára og skyldi ársleigan vera 5%
af matsverði þeirra. Blettirnir voru
leigðir á 3% af matsverði en leigutími
þeirra var ótímabundinn. Annað
þurfti ekki að greiða fyrir lóðirnar.
Hús tóku að rísa á nýbýlunum árið
1936 og fluttu margir inn ári síðar.
Bústofninn var einkum kýr, hross og
hænur en annað dýrahald var
smærra í sniðum. Töluverð garðyrkja
fór fram á nýbýlunum og einnig á
blettunum. Nýbýlabændur nutu góðs
af nálægðinni við Reykjavík þar sem
auðvelt var að koma afurðum á mark-
að.
Blettirnir úr landi Digraness voru
einn hektari og ætlaðir til ræktunar.
Leigutökum bar að girða þá af og
rækta upp innan 10 ára. Mönnum
leyfðist að koma sér upp litlu afdrepi
eða sumarhúsum en ekki var ætlast
til að fólk hefði þar fasta búsetu. Auð-
velt er að ímynda sér að margir sem
nældu sér í blett hafi ætlað að koma
sér þar fyrir til frambúðar hvað sem
öllum lagagreinum leið. Þannig var
því háttað með þá bræður Finnjón og
Svein. Þeir, líkt og margir aðrir frum-
byggjar Kópavogs, sættu sig ekki við
það ófremdarástand sem ríkti í hús-
næðismálum í Reykjavík og létu
sjálfsbjargarviðleitnina ráða för.
Ljósmynd/Leifur Reynisson
Frumbýli Hús Finnjóns Mósessonar um 1947.
Land numið í Kópavogi
Í bókinni Landnemar í
Kópavogi rekur Leifur
Eiríksson sögu frum-
byggja Kópavogs á Digra-
neshálsi um miðja síðustu
öld. Sagan er ekki síst fjöl-
skyldusaga bræðranna
Finnjóns og Sveins Mós-
essona og hvernig daglegt
líf breyttist á þegar Kópa-
vogur þróaðist úr sveitar-
félagi í annan stærsta
kaupstað landsins.
Ljósmynd/Leifur Reynisson
Landnemi Sveinn Mósesson á hjóli sínu í Zimsen-portinu árið 1929.