Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 Trésagarblöð, álsagarblöð, járn- sagarblöð, demantssagarblöð. Allar stærðir, allar gerðir. Þjónusta við tréiðnaðinn í yfir 30 ár HJÓLSAGARBLÖÐ Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur • Sími 564 1212 • asborg.is VIÐTAL Atli Vigfússon laxam@simnet.is „Þetta er alltaf jafn gaman og allt- af er eitthvað að gerast. Það er sauðburðurinn á vorin, smala- mennska o.fl. á haustin og nú hefur fósturtalningin í febrúar bæst við, sem allir bíða eftir. Ég er búinn að vera að fást við kindur í 60 ár og hef haft af þeim mikla ánægju.“ Þetta segir Tryggvi Óskarsson, bóndi á Þverá í Reykjahverfi, sem nú er búinn að minnka við sig, en sonur hans, Sigurður Páll Tryggvason, hefur ásamt fjöl- skyldu sinni tekið við mestum hluta búsins og stefnir á áfram- haldandi framfarir í fjárbúinu á Þverá. „Það er eitthvað sem gerir það að bændur hafa áhuga á kind- um svo lengi sem raun ber vitni, en það er ekki alveg hægt að út- skýra það að öllu leyti,“ segir Tryggvi. „Ég og konan mín erum ennþá hér með nokkrar kindur og höfum gaman af því og fjárbændur hafa mikið samband hver við ann- an, sem gerir þetta skemmtilegt félagslega.“ Það er algengt að sauðfjárbændur hafi nokkrar kind- ur þegar þeir fara að eldast og þeir njóta þeirrar ánægju að sinna þeim. Þessu er töluvert öðruvísi farið með kúabændur þegar ald- urinn færist yfir því það er ekki al- gengt að menn stundi frí- stundabúskap með kýr og aðstæður bjóða óvíða upp á það. Alltaf hægt að gera betur Sigurður Páll er á sama máli og faðir hans og finnst starfið fela í sér margar skemmtilegar áskor- anir og því fylgir líka eftirvænting á hverjum árstíma fyrir sig. Hann bendir á að það geti verið hvetj- andi að sjá jákvæða útkomu af ræktunarstarfinu þegar svo er, en það er jafnframt alltaf hægt að halda áfram og gera betur. Hann á margar hugmyndir að því hvernig bæta megi búskapinn og hefur unnið að því frá því hann gerði sauðfjárræktina að sínu aðalstarfi fyrir nokkrum árum. Hann segir að ekki hafi verið hægt að vera mjög vandlátur í fyrstu meðan ver- ið var að fjölga fénu því þá hafi þriðja hver gimbur verið sett á. Nú sé hins vegar kominn sá tími að hægt er að vera vandlátari og velja betur úr, en það skilar sér í betri fallþunga og betri gerð, auk þess sem tíðarfar var hagstætt á árinu og beitin góð. Sum lömbin fengu mjög góða dóma, samanber ein af fallegustu gimbrunum á bænum sem var með 45 mm í bakvöðva þegar ómskoðað var í haust. Þá var einn lambhrútur með alls 89 stig sem er það mesta sem hrútur á Þverá hefur fengið hingað til. Þeir feðgar, Sigurður Páll og Tryggvi, ætla að setja hrútana í ærnar í næstu viku og miða við 15. desember. Þeir nota sæðingar að hluta og reiknar Sigurður Páll með að sæða allavega 50 ær, en með því eykur hann möguleikana á að fá góða hrúta til framhaldsræktunar. Á Þverá er mikið til af full- orðnum hrútum auk þess sem margir efnilegir lambhrútar eru í hjörðinni. Hrútatíminn er alltaf skemmtilegur, finnst þeim feðgum, og gaman að velja saman góða ein- staklinga. Eftirvæntingin felst í hvað fæðist að vori og hvernig lömbin undan einstökum hrútum reynast. Saknar hrútasýninga Tryggvi segist alltaf hafa haft gaman af hrútunum og á fyrstu bú- skaparárum hans voru árlegar hrútasýningar í sveitinni. Þá komu allir með sína hrúta á vagni aftan í dráttarvél og þetta voru samkomur þar sem margt var spjallað. Með riðuveikinni sem kom á nokkrar bæi í Suður-Þingeyjarsýslu var tekið fyrir að sýningar sem þessar væru haldnar til þess að koma í veg fyrir smitleiðir. Tryggvi segist sakna þessara tíma því þessu fylgdi mikill félagsskapur og á þessar samkomur komu ráðunaut- ar sem kunnu sitt fag, en Tryggvi man vel þegar Halldór Pálsson, þá búnaðarmálastjóri, kom og skoðaði hrúta í Reykjahverfi. Sumar þess- ara sýninga voru á Þverá og það voru skemmtilegir dagar. Miklir möguleikar í búgreininni Sigurður Páll er bjartsýnn á fjárbúskapinn. Hann segir að menn eigi að nota sér þá sérstöðu sem ís- lenski fjárstofninn hefur og nefnir í því sambandi litaflóruna sem dæmi. Þar séu miklir möguleikar hvað varðar ullina og stofninn sem slíkur sé einstakur. Enginn deilir um gæði kjötsins og framfarirnar hafa verið miklar á undanförnum árum. Það er góð samvinna hjá þeim feðgum og öll fjölskyldan hjálpast að. Á undanförnum árum hefur húsakosturinn á Þverá verið bættur, vinnuhagræðing við hey- gjöfina er orðin mikil og end- urræktun túna hefur bætt heyfeng- inn. Alltaf eru ný verkefni, nýjar áskoranir og eftirvæntingin er mikil. Fjárbúskapnum fylgir eftirvænting  Tryggvi hefur fengist við kindur í 60 ár og nú tekur Sigurður sonur hans við  Margar skemmti- legar áskoranir  Segja hrútatímann vera skemmtilegan  Nýta ætti sérstöðu íslenska fjárstofnsins Feðgar í fjárhúsum Tryggvi Óskarsson og Sigurður Páll Tryggvason í fjárhúsunum á Þverá í Reykjahverfi. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Við garðaband Hrútarnir á Þverá í Reykjahverfi fá ríkulegt magn af heyi. Ein fyrsta formlega hrútasýn- ingin sem haldin var með styrk frá Búnaðarfélagi Íslands var haldin að Syðra-Laugalandi í Eyjafirði 27. september 1911. Þar hélt merkisbóndinn Stefán Jónsson á Munkaþverá lofræðu um þessa stórmerku nýjung sem hrútasýningar væru. Við verðlaunaveitingu var lögð áhersla á að hrútarnir væru jafnvaxnir með beina hrygglínu, með sterka fætur og að skinnið á þeim væri sem rúmmest. Ullin átti að vera sem þykkust og þel- mest, laus við illhærur og laus við gulan lit, þótt gulur litur væri á haus og fótum. Einlitir hrútar og dökkir voru verðlaun- aðir, en ekki flekkóttir. Jafnvaxnir og þelmiklir FYRSTA HRÚTASÝNINGIN Á Þverá í Reykjahverfi er stund- uð sauðfjárrækt. Þar búa Sig- urður Páll Tryggvason og sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir ásamt börnum sínum og for- eldrum Sigurðar Páls, þeim Tryggva Óskarssyni og Árdísi Sigurðardóttur. Bærinn dregur nafn sitt af samnefndri á sem á upptök sín í Tröllagili í Lamba- fjöllum. Jörðin er víðlend og á henni eru mikil beitar- og rækt- unarlönd. Á Þverá eru 680 vetr- arfóðraðar kindur. 680 eru á vetrarfóðrum BÆRINN ÞVERÁ Frístundaheimili sveitarfélaganna mæta þörfum vinnandi foreldra yfir hátíðarnar í ár, en boðið verður upp á dægradvöl á virkum dögum í kringum jól og áramót. Þjónustan tekur til barna á aldrinum 6-9 ára, en þar fer fram frístundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur eða á frídögum. Reykjavíkurborg býður upp á lengda viðveru í jólafríi líkt og fyrri ár, þar sem foreldrar geta skráð börn sín til dvalar á virkum dögum frá kl. 8-17. Greiða þarf 1.190 kr. fyr- ir dvölina frá kl. 8-13 en ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir tímabilið frá kl. 13-17, að því er segir í upplýs- ingum frá Reykjavíkurborg. Er þetta í samræmi við almenna reglu borgarinnar að frístundaheimilin séu opin á foreldradögum, starfs- dögum og í jóla- og páskafríum skól- anna frá kl. 8 nema annað sé tekið fram. Í gjaldskrá Reykjavíkurborgar 2017 kemur fram að gjald fyrir lengda viðveru muni hækka á nýju ári 2017 um 50 krónur, eða 2,6%. Bregðast við óskum foreldra Kópavogsbær býður í fyrsta sinn upp á dægradvöl í jólafríi grunnskól- anna og verður opið alla virka daga nema 23. desember, þ.e. Þorláks- messu. Foreldrar geta því skráð börn sín að hámarki í sjö daga dægradvöl og samkvæmt upplýs- ingum frá Kópavogsbæ höfðu 19% barna sem þegar voru skráð í dægradvöl að loknum skóladegi ósk- að eftir dvöl í jólafríinu, en gjaldið er 1.850 kr. fyrir hvern valinn dag. Með þessu var brugðist við óskum for- eldra um aukna þjónustu í jólafríi. Akureyrarbær býður einnig upp á frístund um jól og áramót, alla virka daga kl. 8-16.15. Þar hafa aðeins 4-6 börn skráð sig til vistar í einum skóla bæjarins en í öðrum skólum hafa engar skráningar borist, samkvæmt upplýsingum frá bænum. Í þeim til- fellum þar sem aðeins eitt eða tvö börn eru skráð er haft samband við foreldra og vilji þeirra kannaður. Hafnarfjörður hefur hins vegar þann háttinn á að milli jóla og nýárs er boðið upp á dægradvöl miðlægt í einu frístundaheimili í Íþróttahúsi Lækjarskóla þar sem einn eða tveir starfsmenn úr hverju frístunda- heimili fyrir sig sjá um starfið. Frí- stundaheimili í bænum eru alls sjö talsins en fram að jólum, dagana 20. -23. desember, er þau opin frá kl. 8- 17 og aftur eftir áramót, dagana 2.-3. janúar. laufey@mbl.is Bjóða frístund í jólafríinu  Fá börn skráð á Akureyri  Ný þjónusta hjá Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.