Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 81

Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 81
MINNINGAR 81 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 ✝ GuðmundurIngimundarson fæddist í Reykjavík 20. nóvember 1943. Hann lést 15. nóv- ember 2016. Foreldrar Guð- mundar voru Ingi- mundur Kristinn Gestsson frá Reykjahlíð í Reykjavík og Kristín Guðmunds- dóttir frá Gerðum í Garði. Árið 1968 kvæntist Guð- mundur, Rósu Einarsdóttur. Foreldrar Rósu voru Einar Nikulásson og Kristín Þórarins- dóttir frá Stóra-Hrauni. Guðmundsdóttir, f. 1978. Eigin- maður hennar er Steindór Aðalsteinsson, f. 1978, og eiga þau þrjú börn, Emblu Stein- dórsdóttur, f. 2005, Telmu Steinsdórsdóttur, f. 2005, og Dag Steindórsson, f. 2012. Guðmundur útskrifaðist sem stúdent frá Verzlunarskóla Ís- lands og fór síðan í viðskipta- fræðinám í háskólanum. Hann byrjaði ungur að vinna með skólanum, en 12 ára starfaði hann sem sendill hjá Sölumið- stöðinni. Í gegnum tíðina starf- aði hann við daglegan rekstur ýmissa fyrirtækja, bæði síns eigin og annarra, m.a. hjá BÁ-húsgögnum, EN-lömpum, Lúmex o.fl. Síðustu árin rak hann og keyrði leigubíl hjá bif- reiðastöðinni Hreyfli/Bæjar- leiðum. Útför Guðmundar fer fram frá Grensáskirkju í dag, 8. des- ember 2016, kl. 13. Guðmundur og Rósa eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Einar Þór Guð- mundsson, f. 1966. Sonur Einars er Óðinn Einarsson, f. 2013. 2) Ingimund- ur Kristinn Guðmundsson, f. 1970. Eiginkona hans er Landysh Gilfanova, f. 1973. Ingimundur á þrjú börn, Rakel Rósu Ingimundardóttur, f. 1992, barnsmóðir Björk Agn- arsdóttir, Adelyu Gilfanova, f. 1999, og Diljá Líf Ingimund- ardóttur, f. 2009. 3) Kristín Æi elsku pabbi, það er svo margt sem ég þarf að segja þér, svo margt sem við áttum eftir að spjalla um og gera saman. Ég veit ekki alveg hvenær ég mun átta mig á því að þé sért farinn, þetta er alveg óbærileg hugsun. En sem betur fer áttum við ótrúlega margar minningar og gerðum ótrúlegustu hluti saman. Það er svo dýrmætt að eiga t.d. allar minningarnar úr þessum sex Flórídaferðum sem þú og mamma og mín fjölskylda höfum farið saman í. Þú átt heiðurinn af því að ég hafi farið í íþróttir. Ég byrjaði á að fara með þér á bad- mintonæfingu í Valsheimilinu fyrir tæpum 30 árum og á meðan ég var að bíða eftir þér skaust ég á fótboltaæfingu sem var fyrir ut- an og tilkynnti þér svo að ég væri komin í liðið og ætti að fara að keppa daginn eftir. Þú fylgdir mér eftir í fótboltanum í Val og ég man einu sinni þegar við vorum að keppa á gull og silfurmótinu í Kópavogi, þá komst þú að horfa og gast svo tekið okkur allar á stóra 14 manna bílnum þínum heim þar sem mamma beið með vöfflur. Þú fórst svo með mig á fyrstu handboltaæfinguna þegar ég var rétt tæplega 12 ára og hef- ur fylgt mér alla tíð eftir það, fórst með mér allt sem þú gast í sambandi við handboltann, Húsa- vík, Vestmannaeyjar, á Ítalíu þegar landsliðið var þar og topp- aðir þetta svo alveg þegar þú komast með mér í fyrra í æfinga- ferð hjá kvenna- og karlaliði Vals til Spánar, ég þá 37 ára, þetta fannst nú öllum mjög merkilegt. Þú varst nú alveg ótrúlegur mað- ur þó að lífið hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Þú gerðir allt fyrir alla og reddaðir alltaf því sem þurfti. Þú hefur reddað okkur systkinunum vinnu, lagað bílana mína, fjármálin ræddum við mik- ið og svo auðvitað bara allt milli himins og jarðar. Við fórum ósjaldan saman í hádegismat og var það oftast toppurinn á deg- inum ef þú áttir „lunch date“ með einhverjum úr fjölskyldunni eða góðum vinum. Þú varst alltaf mjög mikill bílaáhugamaður og áttir yfirleitt síðasta orðið ef mað- ur þurfti að kaupa sér bíl. Barna- börnin áttu svo hug þinn allan og varstu alltaf tilbúinn í að skutlast ef það þurfti, og fannst Telmu og Emblu mjög mikið sport að vera alltaf sóttar á leigubíl, voru bara með sinn eigin einkaleigubíl- stjóra. Elsku pabbi, ég vona innilega að þér líði vel, mun sakna þín að eilífu. Kveðja, þín pabbastelpa, Kristín. Guðmundur, æskufélagi og besti vinur, hefur nú kvatt þenn- an heim. Það verður skrýtið að fá ekki hringingu frá honum þar sem hann sagði svo oft: Það er svo sem ekkert nýtt að frétta, langaði bara að heyra í þér. Við Guð- mundur fórum í Austurbæjar- skólann 7 ára gamlir og þar hóf- ust okkar kynni, síðan í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og að lokum í Versló, þar sem við vorum sessunautar. Við brölluð- um margt í gegnum tíðina, við gengum í skátahreyfinguna og urðum sveitarforingjar í Jóms- víkingum. Þau voru mörg skiptin sem við fórum í Lækjarbotna og gistum í gamla skátaskálanum hjá Guðmundi skálaverði, það oft að við áttum orðið okkar eigin kojur þar. Þegar við komumst á þann aldur að við máttum taka bílpróf vorum við ekki lengi að verða okkur úti um farartæki, og alltaf voru bílar Guðmundar ný- bónaðir og flottir, man sérstak- lega eftir svörtum Benz sem bar af í bænum, og svo var farið á rúntinn og keyrt hring eftir hring á gljáfægðum tækjunum. En við vorum ekki bara á rúntinum, við fórum mikið í tjaldútilegur og þá var nú Bronco-inn hans vinar míns vinsæll, rauður og flottur. Við vorum einnig duglegir að fara á veiðar bæði í vötn og til fjalla til að ná í rjúpur. Mest vorum við á Holtavörðuheiðinni, eða á Bröttu- brekku, en þessi svæði þekktum við eins og puttana á okkur. Ekki slepptum við íþróttum, Guð- mundur spilaði fótbolta með Val og við spiluðum svo badminton í áratugi með vinum og félögum. Það kemur svo margt upp í hug- ann, sem við látum liggja á milli hluta hér, en við eigum eftir að spjalla um síðar, en mest um vert var að eiga svona góðan félaga í öll þessi ár. Ljúfurinn minn, ég þakka þér allt og góða ferð til nýrra heimkynna. Ég bið góðan Guð að styrkja Rósu og fjölskyld- una alla á þessari erfiðu stundu. Þórður Guðmundsson. „Pabbi er dáinn.“ Þessi orð systur minnar snemma morgun- inn eftir að faðir okkar lést munu lengi hljóma í höfði mínu. Ég trúði ekki því sem ég heyrði, þetta bara gat ekki verið satt. Svo auðvelt er það, þegar maður býr erlendis, að loka á og kunna að neita því að þetta hafi gerst. En þetta er staðreynd. Í september síðastliðnum fengum við að hitta hann í síðasta skipti, þegar stórfjölskyldan fór í ferðalag til Flórída. Það var gríð- arlega mikilvægt fyrir okkar að fá þann tíma með honum, þetta er tími sem við munum hafa í hjört- um okkar til allrar framtíðar. Þetta var í síðasta skipti sem við hittum hann. Þar lék hann á als oddi, fór með okkur í skemmtigarð þar sem hann fór í öll tækin, tók virkan þátt í afmæli Diljár Lífar og var styttan í smá drama sem gerðist í miðri ferð. Og þannig var hann, alltaf tilbúinn að hjálpa, þegar einhvern vantaði hjálp. Hann þekkti svo marga og hafði slíkan eiginleika að hann gat talað við fólk og feng- ið það til að skipta um skoðun eða fara hans leið. Eitt sinn, þegar við Lana vor- um að sækja um ríkisborgararétt fyrir Lönu, stóðum við niðri í inn- anríkisráðuneyti að leggja inn umsókn. Stúlkan í afgreiðslunni var ekki alveg á því að taka við umsókninni og ég var að gefast upp, vissi ekki hvað ég átti að segja eða gera. Pabbi byrjaði þá að tala við hana og á ótrúlegan hátt samþykkti hún að taka við umsókninni. Hann fann réttu orð- in til að segja, án þess að stúlkan fengi þá tilfinningu að hún væri að gefa eftir. Pabbi, ásamt afa Ingimundi, kynnti mig fyrir pólitíkinni. Þeg- ar ég var krakki hjálpaði ég við kosningar, þegar Sjálfstæðis- flokkurinn var að taka saman hverjir hefðu kosið. Í gegnum þetta lærði ég á pólitík og fór að skilja betur út á hvað hún gekk. Pabbi hjálpaði mér svo í seinni tíð að fá nægar undirskriftir þannig að ég gæti boðið mig fram í próf- kjöri. Ég náði reyndar ekki langt, en ég er viss um að ef hann hefði einhvern tíma boðið sig fram, hefði hann unnið. Við rökræddum pólitík mikið. Þrátt fyrir að við værum í grund- vallaratriðum sammála, þá voru einstök atriði sem við vorum ekki sammála um. Það voru skemmti- legar umræður, sérstaklega þeg- ar við ræddum um opnun sam- félagsins og tjáningarfrelsi. Pabbi var úrræðagóður maður. Hvað sem bjátaði á hafði hann einfaldar lausnir á öllu. Hann var á mörgum sviðum mín fyrirmynd. Ég lærði mikið af honum og mun alltaf hafa þann lærdóm í hjarta mér. Hann var góður maður og gjafmildur. Hann var góður afi og hringdi reglulega til að tala við Diljá Líf. Henni fannst alltaf gaman að tala við afa. Og hún man eftir afa, þó að hún hafi ekki verið oft með honum. Hún sagði mér nýverið, eftir að hún vissi að hann væri dá- inn: „Veistu pabbi, mig dreymir stundum Guðmund afa. Það var svo gaman með honum“. Hann hefur í raun kennt mér allt sem gerir mig að góðum manni, föður og vonandi síðar meir afa. En nú er hann dáinn. Hvíl í friði. Ingimundur K. Guðmunds- son og fjölskylda. Þótt lönd og höf hafi skilið okk- ur að hafa hjörtu okkar ávallt staðið hvert öðru nær. Takk fyrir 43 ára vináttu. Við syrgjum lát Guðmundar Ingimundarsonar. Regina, Martin og fjölskylda. Guðmundur Ingimundarson Minningarnar streyma fram mild- ar og bjartar í senn eða sem skínandi stjörnur er lýsa mér enn. Já mér finnst jafnvel að ég muni er þið genguð í hlað, þú, Jóhannes og Snorri vorið ’42. Já, auðvitað genguð þið í hlað á Stað því eng- inn var nú bílvegurinn og ekki áttuð þið hest eins og fyrri prestshjónin. Og auðvitað get ég ekki fullyrt hversu mikið myndir hjálpa Aðalheiður Snorradóttir ✝ AðalheiðurSnorradóttir fæddist 29. október 1914. Hún lést 29. nóvember 2016. Útför Aðalheiðar fór fram 5. desem- ber 2016. minningum mínum, þá tæplega þriggja ára. En hitt get ég fullyrt að hversu feimin sem við systkinin vorum á þessum árum þá fór sú feimni fljótlega af og við tengdumst órjúfanlegum vin- áttuböndum er ent- ust alla tíð. Því í þrjátíu ár áttum við samleið, ynd- islega samleið sem aldrei bar skugga á. Fyrstu 18 árin skildi stiginn einn á milli, þessi góði gamli stigi er við krakkarnir sát- um í og fylgdumst með lífinu á báðum hæðum, hlustuðum á tón- ana úr stofunni ykkar en Jóhann- es tók strax að æfa kvartett og gamansöng. Fleiri gátu nú gripið í orgelið með misfögrum tónum en allt veitti þetta okkur mikla gleði og húsið ilmaði af baksturslykt frá báðum hæðum. Margan kökubitann þáðum við þó enginn jafnaðist á við pressugerssnúðana þína sem ég baka enn. Já, þið hjónin tókuð strax fullan þátt í samfélaginu okkar Dalbúa sem og í Súganda- firði öllum og urðuð vinsæl og dáð. Því þó að margt reyndist ólíkt því sem þú áttir að venjast, nýkomin frá útlandinu, reyndirðu að gera eins gott úr því og hægt var. Og ýmsar breytingar urðu nú fljótt er Jóhannes tók að byggja þvottahús, forstofu með salerni og að lokum bílskúr sem stendur einn eftir, því húsið brann. En þá var loksins upp risið nýja húsið ykkar. Já, mikið þótti mér ljúft að heyra þig segja þá 100 ára að þú hefðir aldrei enst svona lengi við erfiðar aðstæður ef sambýlisfólkið hefði ekki verið svona einstakt og saman, getum við sagt. Já, þið reynduð sannarlega bæði skin og skugga saman, því litlar stúlkur er leiddust alltaf hurfu alltof fljótt. Og miklu síðar voru fóstbræðurnir Snorri og Óli brottkallaðir í fullu starfi. En öll- um áföllum var tekið með ein- stakri ró og trúartrausti. Og ynd- isleg bernsku- og æskuár áttum við saman á Stað, tvær stúlkur og þrír drengir á báðum bæjum. Og þú stóðst þig ætíð með prýði hvort sem var við athafnir í kirkju eða móttökur heima fyrir í gleði eða sorg, því að allar erfi- drykkjur voru haldnar á Stað. Og kraftur þinn nýttist vel heima hvort sem var við heyskap, rún- ingu, berjatínslu eða garðrækt. Áttuð þið hjónin góðan garð er gaf frábæra uppskeru. Og þannig varst þú alla tíð, ræktaðir þinn garð með frábærri prýði og upp- skarst einstaka virðingu og þökk allra, ekki síst okkar systkinanna frá Stað. Elsku Sigrún mín, Pálmi, Sig- urður og aðrir aðstandendur, hjartans samúðarkveðjur. Þóra Þórðardóttir. Elskuleg eiginkona mín og vinur, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JAKOBÍNA BJÖRG JÓNASDÓTTIR frá Grænavatni, til heimilis að Túngötu 7, Hvanneyri, sem lést 29. nóvember, verður jarðsungin frá Reykholtskirkju laugardaginn 10. desember klukkan 13. Fyrir hönd fjölskyldunnar, . Trausti Eyjólfsson. Maðurinn minn, STEINGRÍMUR GAUTUR KRISTJÁNSSON lögmaður, andaðist 7. desember. Fyrir hönd aðstandenda, . Guðrún Einarsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR HELGASON, Sléttuvegi 31, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 6. desember. . Óskar Sverrisson Eiríksína Hafsteinsdóttir Jón Sverrir Sverrisson Margrét Steindórsdóttir Helgi Sverrisson Sigurborg K. Stefánsdóttir Sigríður Ragna Sverrisdóttir Sigurbjörn J. Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN FR. GUÐMUNDSSON, lést 3. desember á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Kópavogi. Útförin verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 13. desember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á Parkinson samtökin. Fyrir hönd fjölskyldunnar, . Helga Kristjánsdóttir Halldór Guðbjarnason Guðmundur Fr. Kristjánsson Jenný K. Steinþórsdóttir Guðný Björg Kristjánsdóttir Markús Jóhannsson Smári Kristjánsson Soffía Júlía Svavarsdóttir Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRGVIN JÓNSSON vélstjóri, Fróðengi 9, andaðist þriðjudaginn 6. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 15. desember klukkan 13. . Erna Særún Vilmundardóttir, Smári Björgvinsson, Kristín Arnardóttir, Þorsteinn Örn Björgvinsson, Hulda Sigurðardóttir, Vildís Björgvinsdóttir, Charles Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Skarðshlíð, verður jarðsungin frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 10. desember klukkan 14. . Guðrún Anna Tómasdóttir, Þorgils Gunnarsson, Auðbjörg Tómasdóttir, Hermann Hansson, Guðbjörg Jóna Tómasdóttir, Sveinn B. Jóhannesson, Hjördís Tómasdóttir, Þórir Ingvarsson, Guðmar Jón Tómasson, Helena Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.