Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 68
68 .
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
BÆKUR
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is
Borvél 18V Ryobi
Átak 50 Nm, 13mm patróna.
1,5 Ah rafhlaða og hleðslutæki fylgir.
Kemur í tösku.
RB 5133001930
19.990
Tilboð
Áður 24.990.-
18.990
Tilboð
Áður 24.990.-
Topplyklasett Carolus 172stk
Vandað topplyklasett, skröll í stærðum
1/2", 3/8" og 1/4". Allir helstu toppar og bitar.
Inniheldur 172 stk.
GD 58602172
Fyrstu verk Ingibjargar
Eitt af fyrstu verkum Ingibjargar
Guðbjartsdóttur hjá nýstofnuðu
Gjaldeyriseftirliti Seðlabankans var
að hefja rannsókn á Aserta, félagi
fyrrum samstarfsmanna sinna. Hún
leitaði til lög-
mannstofunnar
Lex eftir áliti á
því hvort Aserta
bryti gegn gjald-
eyrisreglum
Seðlabankans og
hvort félagið
þyrfti starfsleyfi
frá Seðlabank-
anum. Álit Lex
reyndist vera að starfsemi Aserta
fæli í sér brot þar eð afhending á
krónum færi fram á Íslandi. Hinn 11.
nóvember 2009 sendi Ingibjörg
Fjármálaeftirlitinu tilkynningu, fyrir
hönd Gjaldeyriseftirlits Seðlabanka
Íslands, þess efnis að það grunaði
forsvarsmenn Aserta um brot á lög-
um um gjaldeyrismál. Bréfinu
fylgdu ýmis skjöl sem þóttu sýna
fram á brotin. Lögum samkvæmt
bar Fjármálaeftirlitinu að rannsaka
meint brot á gjaldeyrislögum. Engin
rannsókn fór þó fram í málinu af
hálfu Fjármálaeftirlitsins í kjölfar
tilkynningarinnar og rúmri viku síð-
ar var það framsent til efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra.
Undir fylgibréfið skrifuðu fyrir hönd
Fjármálaeftirlitsins þeir Gunnar Þ.
Andersen forstjóri og Gunnar Har-
aldsson stjórnarformaður. Auk
þeirra komu fram nöfn fjögurra
ábyrgðarmanna kærunnar hjá Fjár-
málaeftirlitinu. Einn þeirra var áð-
urnefndur Ari Tómasson sem sjálfur
hafði komið að viðskiptum Aserta. Af
átta starfsmönnum gjaldeyrisborðs
Straums-Burðaráss, sem starfað
höfðu í sátt og samlyndi fyrstu mán-
uði ársins 2009, höfðu þrír lagt fyrir
sig gjaldeyrisviðskipti hjá Aserta,
þeir Markús Máni Michaelsson, Gísli
Reynisson og Ólafur Sigmundsson,
tveir fært sig yfir til Gjaldeyriseft-
irlitsins, þau Ingibjörg Guðbjarts-
dóttir og Pétur Steinn Pétursson, og
einn til Fjármálaeftirlitsins, Ari
Tómasson. Þau þrjú síðastnefndu
stóðu öll að kærunni sem var lögð
fram á hendur Aserta.
[...]
Ingibjörg yfirheyrð
Hin nánu tengsl Ingibjargar Guð-
bjartsdóttur við fjórmenningana í
Aserta ollu starfsmönnum efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra
verulegum heilabrotum og umtals-
verðum vandræðum. Í öllu sem kom
Ingibjörgu við þurfti því að fara með
gát og haga málinu þannig að ekki
þyrfti að yfirheyra hana með réttar-
stöðu sakbornings. Ingibjörg var
boðuð í skýrslutöku sem fram fór
þremur vikum eftir handtökurnar.
Það kom í hlut Berglindar Kristins-
dóttur lögreglufulltrúa að yfirheyra
hana. Í yfirheyrslunni upplýsti Ingi-
björg að hún hefði áður litið svo á að
viðskipti Aserta væru með þeim
hætti að reglur Seðlabankans ættu
ekki við um þau. Reglurnar hefðu þó
að hennar mati verið óskýrar og
óljósar. Eftir að hún hóf störf hjá
Seðlabankanum og tók að rannsaka
viðskipti Aserta og fleiri aðila hefði
skoðun hennar breyst og kallaði hún
því eftir áliti frá Lex lögmannsstofu
til að fá gleggri lögfræðilega mynd af
málinu. Niðurstaða þeirrar úttektar
var sú að viðskiptin kynnu að brjóta í
bága við lög og reglur um gjaldeyr-
isviðskipti. Hún ákvað því að til-
kynna Aserta til Fjármálaeftirlitsins
fyrir hönd Seðlabankans. Í tilkynn-
ingu Ingibjargar til Fjármálaeft-
irlitsins kom fram að um væri að
ræða „grun um stórfelld brot gegn
gjaldeyrislögum og reglum Seðla-
bankans“. Í yfirheyrslunni reyndi
Ingibjörg að gera lítið úr aðkomu
sinni að viðskiptunum. Það væri „út í
hött“ að hún hefði hannað þessi við-
skipti.Þá sagði hún það
rangt að þeir fjórmenningar hafi feng-
ið mig til þess að leiðbeina þeim og
ráðleggja hvort og hvernig þessi við-
skipti gætu átt sér stað. Ég svaraði
einstökum spurningum frá þeim og
það var vinargreiði. Ég fékk aldrei
neinar greiðslur frá þeim og hafði aldr-
ei heildaryfirsýn yfir það sem þeir voru
að gera.
Ingibjörg kvaðst hafa farið „yfir
drög fyrir þá um samning sem þeir
voru að gera við evrópska seðlabank-
ann“ og síðan bent „þeim á atriði
sem þeir ættu að vara sig á. ... Ég var
bara að gera þeim greiða“. Ingibjörg
viðurkenndi aftur á móti að það væri
rétt að hún hefði sagt Aserta AB
vera erlendan aðila og ætti því ekki
að falla undir reglur Seðlabanka Ís-
lands. „Þetta sagði ég miðað við þær
forsendur sem ég hafði þá til að fara
eftir,“ en um miðjan aprílmánuð
2009 hefði hún farið að velkjast í
„vafa um að starfsemi Aserta væri í
lagi“. Hún kvaðst hafa fengið símtal
frá Markúsi Mána eftir að hún hóf
störf hjá Seðlabankanum og fannst
henni svo að skilja að „hann væri að
fiska hvort það væri verið að skoða
þá“. Við störf sín hefði hún komist
yfir gögn um bankareikninga Aserta
og séð að þeir hefðu fært peninga
hingað til lands í eigin nafni. „Þá var
mér mjög brugðið,“ eins og hún
orðar það.
Það voru nokkur tíðindi fyrir
Asertamenn að sjá að Ingibjörg
hefði svo snemma, um miðjan apríl-
mánuð 2009, byrjað að efast um lög-
mæti starfsemi þeirra. Þeir voru í
talsverðum samskiptum við hana eft-
ir þann tíma og lítilsháttar eftir að
hún hóf störf í Seðlabankanum, inn-
an við tveimur mánuðum síðar. Þeir
hittu hana á nokkrum fundum til að
ræða þessi mál og fá lögfræðilega
ráðgjöf. Einnig gengu mörg tölvu-
skeyti á milli þeirra. Í einu þeirra frá
Ingibjörgu til Ólafs, dagsettu 22. maí
2009, túlkar hún fyrir þá svar við fyr-
irspurn sem þeim hafði borist frá
sænska fjármálaeftirlitinu og kveðst
skilja það svo að þeir séu ekki
starfsleyfisskyldir. Ingibjörg þekkti
til sænskra lögfræðinga, sem hún
mælti með fyrir Asertamenn og las
yfir gögn frá sænska fjármálaeftirlit-
inu er vörðuðu starfsemi Aserta AB í
Svíþjóð. Nokkrum dögum síðar
skrifaði hún í svari við frekari fyr-
irspurnum frá þeim, þegar klukkuna
vantaði tvær mínútur í tvö eftir mið-
nætti: „Sælir. Þið verðið að afsaka
hvað þetta kemur seint, en sjálfboða-
vinnan fyrir fyrirtæki í greiðslu-
stöðvun [Straum] dróst á langinn
fram eftir kvöldi.“ Síðan koma marg-
víslegar ábendingar til þeirra um
hvernig þeir skuli haga samnings-
gerð fyrir félagið. Bréf Ingibjargar
endar með orðunum: „Þið hringið í
mig ef það er eitthvað. Gangi ykkur
vel! Kveðja Ingibjörg.“
Aðspurð af lögreglu kvaðst Ingi-
björg ekki hafa talið sér heimilt að
láta hina ákærðu vita af viðhorfs-
breytingu sinni og fyrirhugaðri
kæru og þá hefði hún heldur ekki
mátt kalla eftir sjónarmiðum þeirra.
Kvaðst hún hafa reynt að takmarka
samskipti sín við þá meðan á rann-
sókn málsins stóð. Af yfirheyrslunni
yfir Ingibjörgu má ráða að hún hafi
lagt sig fram um að Asertamenn
fengju ekki veður af því að hún væri
komin á þá skoðun að viðskiptin
væru ólögleg og að hún væri að und-
irbúa sakamál gegn þeim. Þeir voru
því grunlausir um sinnaskipti henn-
ar. Þetta kemur einnig heim og sam-
an við frásögn Ólafs Sigmundssonar,
en hann minnist þess að hafa hitt
Ingibjörgu eftir að hún var komin til
starfa í Seðlabankanum og að hún
hafi þá beðið hann sérstaklega að
láta sig vita ef hann yrði var við að
einhverjir væru mögulega að brjóta
gjaldeyrisreglurnar. Hafði Ólafur
heitið henni því.
Gjaldeyriseftirlitið – Vald án eftirlits?
Almenna bókafélagið gefur út bókina
Gjaldeyriseftirlitið. Vald án eftirlits? eft-
ir lögfræðinginn og sagnfræðinginn
Björn Jón Bragason. Í bókinni er fjallað
um umsvif gjaldeyriseftirlits Seðlabank-
ans frá því að því var komið á fót í kjölfar
þess að gjaldeyrishöftum var komið á í
árslok 2008. Verkið byggir á mörgum
heimildum, jafnt rituðum og munn-
legum, og höfundur ræddi við á sjötta
tug manna við ritun þess. Í textanum
sem fylgir hér að neðan er neðanmáls-
greinum sleppt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Húsleitir Ingibjörg Guðbjartsdóttir, Helgi Magnús Gunnarsson og Gunnar Þ. Andersen héldu blaðamannafund
vegna Asertamálsins þann 29. janúar 2010, sama dag og húsleitir vegna málsins voru framkvæmdar.
Morgunblaðið/Ómar
Höft Seðlabanki Íslands hefur frá árinu 2009 ráðist í umfangsmiklar rannsóknir á ætluðum brotum gegn lögum um gjaldeyrismál.