Morgunblaðið - 08.12.2016, Síða 74

Morgunblaðið - 08.12.2016, Síða 74
74 . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 BÆKUR Tveir bræður Sveinn var á gangi um götur bæj- arins þegar Finnjón bróðir hans birt- ist skyndilega á reiðhjóli og hafði hann fest skóflu við hjól sitt. Þetta var áður en Reykjavík þandist í út- hverfin og því fóru flestir gangandi eða hjólandi um bæinn. Hitt var sjaldgæfara að menn hefðu skóflu meðferðis – sérstaklega væru þeir á hjóli. Sveinn tók bróður sinn tali og spurði frétta. Sagðist Finnjón vera á leið í Foss- voginn þar sem hann hefði orðið sér úti um land- spildu. Hugðist hann koma sér þar fyrir, þó af- skekkt væri fyrir mann sem þurfti að sækja mestalla sína vinnu í bæinn. Þó eins væri ástatt um Svein hugsaði hann sig ekki um tvisvar heldur sagði að bragði: „Fyrst svo er þá geri ég það líka“. Leið ekki á löngu þar til Sveinn dró sjálfur fram hjól sitt og skóflu – og lagði leið sína suður í Fossvog. Þeir bræður áttu eftir að fara margar slíkar ferðir með alls kyns verkfæri og tól enda var ærið verk að ryðja landið og koma sér þar upp húsi. Finnjón og Sveinn Mósessynir voru vestan úr Dýrafirði. Þeir fluttust suður í kringum 1920 en þá þegar voru menn teknir að yfirgefa lands- byggðina í von um betra líf í höf- uðstaðnum. En atvinna var stopul og húsaskjól af skornum skammti. Byggingarlóðir fengust varla nema fyrir klíkuskap og leiguhúsnæði var dýrt og ótryggt. Bræðurnir voru stoltir og lögðu sig alla fram um að verða sem sjálfstæðastir. Þeir voru af fátækum bændum og sjómönnum komnir og vissu hvað það þýddi að búa við húsbóndavald annarra. Þeir einsettu sér að starfa á eigin vegum og koma sér upp sínum eigin húsa- kynnum. Þeir voru örugglega ekki einir um það. Þorri landsmanna kannaðist við ömurleika fátækt- arinnar og þá frelsisskerðingu sem hún hafði í för með sér. Margir voru tilbúnir að leggja mikið á sig fyrir efnalegt- og félagslegt sjálfstæði. Flestir byrjuðu nánast með tvær hendur tómar en með dugnaði og áræði náðu margir að koma fótunum vel undir sig. Nokkur aldursmunur var með þeim bræðrum. Finnjón var fæddur árið 1895 en Sveinn leit dagsins ljós árið 1907 og var hann yngstur sex systkina. Þrjú systkini voru látin þeg- ar þeir bræður hófu landnám sitt í Kópavogi og það fjórða hafði flust til Kanada löngu áður og kom aldrei til landsins aftur. Þeir voru því í raun aðeins tveir eftir bræðurnir en leið þeirra lá að mestu saman meðan báð- ir lifðu. Lífið hafði að mörgu leyti leik- ið fjölskylduna grátt og hafði það ef- laust áhrif á samheldni þeirra. Velferðarsamfélagið var rétt að stíga sín fyrstu skref og þau viðhorf voru sterk að hver ætti að standa á eigin fótum og bera ábyrgð á sjálfum sér. Samhjálp og persónuleg tengsl höfðu mikið að segja og því skipti það þá bræður miklu máli að eiga hvorn ann- an að. Finnjón hóf málaranám í Reykja- vík árið 1918 og átti Sveinn eftir að njóta leiðsagnar hans í þeirri iðn. Sveinn bjó þá enn fyrir vestan ásamt foreldrum sínum en þau fluttu öll suð- ur árið 1923. Finnjón hafði kennt bróður sínum nokkur grunnatriði í heimsóknum sínum vestur en Sveinn var þá á unglingsaldri. Sveinn hélt áfram að nema af bróður sínum eftir að suður var komið og leið ekki á löngu þar til hann fór að starfa við fagið. Finnjón og Sveinn urðu báðir málarameistarar og fengust þeir við margvísleg málarastörf. Þeir voru í senn listrænir og góðir handverks- menn enda tóku þeir iðulega að sér vandasöm verkefni. Þeir voru mjög færir í að oðra sem er vandmeðfarin tækni þar sem líkt er eftir viðar- eða marmaraáferð. Þar fengu þeir útrás fyrir listræna hæfileika sína en í stop- ulum frístundum áttu þeir einnig til að teikna og mála. Finnjón setti upp húsgagnamál- arastofu árið 1930 og var Sveinn í læri hjá honum. Árið 1934 hóf Sveinn samstarf við tvo smiði sem fengust við að smíða og gera við húsgögn. Sveinn sá um að mála húsgögnin en hann var einnig liðtækur við smíð- arnar þegar á þurfti að halda. Þeir komu sér upp verkstæði og stofnuðu verslun sem bar heitið Ódýra hús- gagnabúðin. Samstarfinu lauk árið 1941 þegar smiðirnir fengu vinnu hjá hernum en Sveinn snéri sér aftur að húsamálun. Bræðurnir voru kvæntir menn þegar þeir afréðu að verða sér úti um samastað í Kópavogi árið 1937. Eig- inkona Finnjóns hét Ingibjörg Bjarnadóttir og áttu þau tvo syni, Bjarna og Þorleif. Sveinn var kvænt- ur Guðdísi Guðmundsdóttur en þeirra börn fæddust eftir að þau fluttu í Kópavoginn. Ingibjörg var úr Dýrafirði en Guðdís hafði alist upp í Garðinum og í Hafnarfirði. Öll voru þau vön flutningum á milli ótryggra húsakynna. Það var löngu orðið tíma- bært að finna sér öruggan samastað sem væri þeirra eigin. Slíkt var þó ekki auðgert fyrir alþýðumenn sem í ofanálag var utanbæjarfólk. Án sam- banda innan flokks og bæjarkerfis var enga lóð að hafa og án tengsla við fjármálamenn var engin lán að fá. Þeim bauðst að vísu að eignast íbúð í fjölbýlishúsi við Grettisgötu en höfn- uðu því. Bræðurnir voru úr sveit og vildu hafa rýmra í kringum sig. Lóðaúthlutanir í Kópavogi komu sem himnasending fyrir þá bræður. Þeir þurftu vissulega að hafa töluvert fyrir því að koma sér fyrir og ekki var hlaupið að því að fara til vinnu eða afla fanga fyrstu ár búsetunnar. En ávinningurinn var ótvíræður. Þeir höfðu nóg landrými og gátu komið sér fyrir eftir efnum og ástæðum. Fjölskyldurnar voru lausar við þröngbýli, hávaða og ryk bæjarins. Bræðurnir voru aftur komnir út í sveit þar sem víðerni, kyrrð og frels- iskennd sveif yfir vötnum. Hér gátu þeir búið út af fyrir sig án afskipta annarra. Þeir voru húsbændur á eigin heimili og voru staðráðnir í að skapa fjölskyldum sínum örugga umgjörð. Nýbýli og blettir Kreppan sem hófst 1930 skammt- aði þjóðinni kröpp kjör þar til seinni heimsstyrjöldin kom með velmegun til landsins með hernámi Breta árið 1940. Í Reykjavík, sem annars staðar, áttu margir fullt í fangi með að sjá sér farborða. Eitt af úrræðum ríkisvalds- ins var að deila út landssvæðum til ræktunar nærri þéttbýliskjörnum víða um land. Suður af Reykjavík var tveimur ríkisjörðum úthlutað, fyrst Digranesi og stuttu síðar Kópavogi. Það var á tvennan máta, annars veg- ar var hluta landsins skipt niður í ný- býli til ábúðar. Hins vegar var út- hlutað smærri ræktunarblettum. Með þeim átti að auðvelda fólki lífs- baráttuna með því að gera því kleift að stunda jarðrækt meðfram öðrum störfum og voru þeir upphaflega ekki ætlaðir til fastrar búsetu þótt mál hafi síðar þróast á þann veg. Bræðurnir fengu úthlutað blettum úr landi Digraness. Finnjón fékk blett við Ný- býlaveg en Sveinn uppi á hæðinni rétt austur af Álfhólnum. Nauðsynlegt var að greiða fyrir samgöngum og hófst vegagerð árið 1935 með lagningu Nýbýlavegar, sem lá á milli nýbýlanna og blettanna, en þeim framkvæmdum lauk ári síðar. Voru nýbýlin norðan megin vegar en blettirnir sunnan megin. Kárs- nesbraut var síðan lögð í beinu fram- haldi af Nýbýlavegi og að því loknu var hafist handa við Álfhólsveg. Vegna fjárskorts náði sá vegur ekki lengra en austur að Álfhól. Á sama tíma var unnið við Hlíðarveg og hluta Digranesvegar. Allir voru vegirnir lagðir í atvinnubótavinnu, en sú vinna lagðist niður með hernáminu og lauk vegagerð þar með í bili í Kópavogi. Úthlutanir áttu sér stað á árunum 1935-1937 og síðan aftur 1942. Fyrri úthlutunin var úr landi Digraness og sú síðari úr landi Kópavogs, en þeir blettir voru nokkru minni. Á þeim ár- um var um 10 ferkílómetra svæði á milli Fossvogs og Kópavogs ráðstafað og voru ræktunarlöndin á fjórða hundrað. Þeir sem hrepptu hnossið máttu teljast heppnir enda sóttu mun fleiri um en fengu. Nýbýlin voru leigð til 75 ára og skyldi ársleigan vera 5% af matsverði þeirra. Blettirnir voru leigðir á 3% af matsverði en leigutími þeirra var ótímabundinn. Annað þurfti ekki að greiða fyrir lóðirnar. Hús tóku að rísa á nýbýlunum árið 1936 og fluttu margir inn ári síðar. Bústofninn var einkum kýr, hross og hænur en annað dýrahald var smærra í sniðum. Töluverð garðyrkja fór fram á nýbýlunum og einnig á blettunum. Nýbýlabændur nutu góðs af nálægðinni við Reykjavík þar sem auðvelt var að koma afurðum á mark- að. Blettirnir úr landi Digraness voru einn hektari og ætlaðir til ræktunar. Leigutökum bar að girða þá af og rækta upp innan 10 ára. Mönnum leyfðist að koma sér upp litlu afdrepi eða sumarhúsum en ekki var ætlast til að fólk hefði þar fasta búsetu. Auð- velt er að ímynda sér að margir sem nældu sér í blett hafi ætlað að koma sér þar fyrir til frambúðar hvað sem öllum lagagreinum leið. Þannig var því háttað með þá bræður Finnjón og Svein. Þeir, líkt og margir aðrir frum- byggjar Kópavogs, sættu sig ekki við það ófremdarástand sem ríkti í hús- næðismálum í Reykjavík og létu sjálfsbjargarviðleitnina ráða för. Ljósmynd/Leifur Reynisson Frumbýli Hús Finnjóns Mósessonar um 1947. Land numið í Kópavogi Í bókinni Landnemar í Kópavogi rekur Leifur Eiríksson sögu frum- byggja Kópavogs á Digra- neshálsi um miðja síðustu öld. Sagan er ekki síst fjöl- skyldusaga bræðranna Finnjóns og Sveins Mós- essona og hvernig daglegt líf breyttist á þegar Kópa- vogur þróaðist úr sveitar- félagi í annan stærsta kaupstað landsins. Ljósmynd/Leifur Reynisson Landnemi Sveinn Mósesson á hjóli sínu í Zimsen-portinu árið 1929.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.