Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
úr vegi en hann tilkynnti sl. mánu-
dag, að hann myndi sækjast eftir út-
nefningu Sósíalistaflokksins.
Úr 5,6% fylgi í ráðherrastól
Uppgangur Valls, sem er spænsk-
ur innflytjandi frá Katalóníu, þykir
annars athyglisverður. Í prófkjöri
sósíalista fyrir fimm árum hlaut
hann einna lakasta útkomu, eða að-
eins 5,6% fylgi. Gerðist hann eftir
það talsmaður Hollande sem launaði
honum greiðann með því að gera
hann að innanríkisráðherra eftir
kosningar. Tveimur árum seinna,
2014, var hann svo orðinn forsætis-
ráðherra. Talið hafði verið að Valls
myndi ekki sækjast eftir framboði
nú í ljósi lítils fylgis stjórnarflokks-
ins, heldur spara sig fyrir 2022.
Segja má að kringumstæður hafi
kallað á framboð hans sem sterks
leiðtoga flokksins því hverfandi líkur
þykja á því að keppinautar hans í
prófkjörinu muni smala miklu fylgi.
Hvernig honum tekst til á næstu
vikum og mánuðum vilja fæstir spá
um en Parísarblaðið Le Parisien
sagði á forsíðu að hans biði „óvinn-
anlegt verk“. Áður en hann gæti lát-
ið sig dreyma um árangur í kosning-
unum í vor þurfi hann að ná
vinstrimönnum saman í eina fylk-
ingu. Það segir blaðið vera gríðar-
lega umfangsmikið verkefni og erf-
itt. Fjölmiðlar sögðu til að mynda
eftir þá ákvörðun Hollande að bjóða
sig ekki fram að hann skildi vinstri-
öflin eftir í tætlum. Kaþólska dag-
blaðið La Croix segir hann hafa
steypt vinstriflokkunum í mikla
óvissu. Blaðið hrósaði honum þó fyr-
ir að draga sig í hlé og sagði hann
hafa gert það „með reisn“. Vinstri-
blaðið Liberation sagði að „sann-
færður um að framboð hans myndi
bitna enn frekar á vinstriöflunum og
kalla skaðvænlegar deilur yfir lands-
menn gafst Hollande upp“.
Segja fréttaskýrendur forsetann
hafa loks áttað sig á því hvernig hon-
um hefði misheppnast á valdastóli og
vinstriöflin væru í molum af þeim
sökum. Hefði hann lagt gríðarlega
mikið undir með þátttöku í prófkjöri
vinstriaflanna. Ósigur þar, eins og
flest þótti benda til, hefði þýtt að
hann hefði orðið að segja strax af sér
og víkja af forsetastóli rúmum þrem-
ur mánuðum fyrir forsetakosning-
arnar sjálfar. Af öllu vondu hefði það
verið það versta sem fyrir Hollande
gat komið.
Það stríddi sterklega gegn Hol-
lande varðandi framhaldið að hann
hefur verið rúinn trausti. Í könnun-
um í haust voru þeir sem enn báru
traust til hans í starfi aðeins 4%.
Hafði stuðningur við Hollande fjarað
jafnt og þétt út allt frá 2012 og hefur
enginn forseti í sögu fimmta lýðveld-
isins, eða í rúma hálfa öld, verið jafn
fylgisfár. Um tíma reis hann þó í
mælingum, í framhaldi af hryðju-
verkunum í París í fyrra. Hann þótti
halda vel á málum í framhaldi af
þeim en sú sæla átti þó eftir að verða
skammvinn.
Hægriblaðið Le Figaro segir að
helsta viðfangsefni Valls á næstunni
verði að draga úr spennu og sundur-
þykkju innan Sósíalistaflokksins
sem hann hafi sjálfur stuðlað að.
Blaðið segir hann þó alltjent vera
„hinn sterka mann veikburða
vinstriafla“. Talsmaður François
Fillon segir það engu breyta um
andstæðingana þótt Valls verði for-
setaefni. „Það skiptir engu þó Valls
fari fram, hann er einn helsti hand-
verksmaður afrekaskrár stjórnar
Hollande, hann var forsætisráð-
herra hans,“ segir Florence Portelli.
Blaðið Le Monde fjallaði um
ákvörðun Hollande undir yfirskrift-
inni „Játar að hafa misheppnast“.
Líkur á niðurlægingu af völdum póli-
tískrar fjölskyldu sinnar hafi greini-
lega verið honum óbærileg tilhugs-
un. Það fjaraði enn frekar undan
Hollande í skoðanakönnun Kantar
Sofres Onepoint sem birt var tveim-
ur dögum eftir prófkjör mið- og
hægrimanna. Spurt var hvern við-
komandi myndi kjósa í forsetakosn-
ingunum ef þær hefðu farið fram
þann daginn. Aðeins 8,5% nefndu
Hollande, sem hafnaði í fimmta sæti.
31% sagðist ætla að kjósa Fillon og
25% Le Pen. Í seinni umferðinni
myndu 66% atkvæða koma í hlut Fil-
lons og 34% í hlut Le Pen. Önnur
könnun daginn áður var á sömu nót-
um. Munurinn þó minni á Fillon og
Le Pen eða 26% gegn 24%. Emm-
anuel Macron var með 14%, Jean-
Luc Melenchon 13%, Hollande 9%
og Francis Bayrou 6%.
Valls á sprengjusvæði?
Ef til vill er ekki öll nótt úti enn
fyrir Hollande. Stefni allt í að Valls
mistakist að sameina vinstrimenn og
flykkja þeim að baki sér segja
stjórnmálaskýrendur þann mögu-
leika enn vera fyrir hendi að Hol-
lande skipti um skoðun og fari fram.
Kannski langsóttur möguleiki og
fyrst þyrftu vinstrimenn að reyna að
sameinast um einn kandídat. Af
þeim sökum segist Jean-Christophe
Cambadélis, framkvæmdastjóri
Sósíalistaflokksins, ætla að freista
þess af öllu mætti að telja þá Emm-
anuel Macron og Jean-Luc Melen-
chon á að taka fremur þátt í próf-
kjöri vinstriflokkanna en fara fram
undir eigin merkjum í kosningunum.
Hingað til hafa báðir afskrifað að
verða við því.
„Ég ætla að skrifa þeim bréf því
ég held að með þrjá frambjóðendur
af vinstrivængnum sé öruggt að við
töpum forsetakosningunum,“ sagði
Cambadelis í gær.
Franskir kjósendur veittu Hol-
lande brautargengi 2012 vegna lof-
orða hans um að lagfæra stöðu efna-
hagsmála og að gæða atvinnulífið
nýjum þrótti. Fimm árum síðar er
hann á útleið við jafnvel verra
ástand en hann tók við. Eftirlætur
hann því eftirmanni sínum á forseta-
stóli að lappa upp á sakirnar.
Leiðtoginn óvinsæli getur þrátt
fyrir allt eignað sér að nokkru leyti
að hafa komið böndum á efnahags-
lega afturför eftir fjármálakreppuna
2008-2009 bætt stöðu ríkisins. Það
eru kjósendum hins vegar gífurleg
vonbrigði að honum hefur mistekist í
þeim kosningaloforðum sínum að
koma á hagvexti og draga úr at-
vinnuleysi, sem aukist hefur í rúm-
lega 10%. Sömuleiðis að heimilin
skyldu sitja uppi með það hlutverk
að loka fjárlagagapinu. Í stjórnartíð
sinni hefur Hollande nefnilega lagt
rúmlega 50 milljarða evra viðbótar-
skatta á landsmenn. Er skattbyrði
hvergi meiri í Evrópu eða 47,9% af
vergri þjóðarframleiðslu. Að sögn
Xavier Ragot, framkvæmdastjóra
hugveitunnar OFCE í París, þarf
næsti forseti að hafa umbætur í
ríkisfjármálunum efst á verkefna-
lista sínum. „Við þurfum á gagnger-
um umbótum að halda til einföldun-
ar skattkerfisins, með
álagningarhlutföllum sem allir skilja
og hann þarf að beita öðrum með-
ulum eins og opinberum fjárfesting-
um svo að gagni í fjárlagastefnunni,“
segir Ragot.
Sigur Le Pen yrði þungt högg
David Cameron, fyrrverandi for-
sætisráðherra Breta, sagði að það
yrði afar þungt högg fyrir Evrópu-
sambandið (ESB) kysu Frakkar
Marine Le Pen yfir sig í forseta-
kosningunum í vor. Vísaði hann til
uppgangs „kerfisfjandsamlegra lýð-
skrumara“, og öfgaflokka í Vestur--
Evrópu undanfarið. Sú þróun kallaði
á nauðsyn „alvöru leiðréttingar á
stefnunni“ til að leysa núverandi
efnahags- og félagslegar ögranir.
Komast yrði rækilega til botns í því
hvað valdið hefði þeirri þróun sem
orðið hefði í Evrópu og umheiminum
á rúmu ári. Þjóðaratkvæðið á Ítalíu
sl. sunnudag hefur orðið vatn á
myllu Le Pen. Hún segir niðurstöð-
una þar vera lexíu fyrir Frakka um
hættur þess að fylgja aðhaldsað-
gerðum ESB í blindni. Sagði hún við
blasa að François Fillon myndi feta
sömu leið og Matteo Renzi yrði hann
kjörinn forseti í maí nk. Hugmynda-
fræði Fillons endurspeglaði þanka-
gang Renzis og því væri hann hættu-
legur frönsku þjóðinni, eins og hún
komst að orði.
Stjórnmálaskýrendur segja Le
Pen hafa ástæðu til að óttast Fillon
þar sem íhaldssemi hans og afstaða
hans til sambúðarinnar við múslíma
og innflytjenda höfði til stórs hluta
kjósenda Þjóðfylkingarinnar. Skoð-
anamælingar síðustu daga þykja
benda ótvírætt til þess og að próf-
kjörssigur Fillons hafi komið Le Pen
í opna skjöldu.
Viðbrögð hennar eftir prófkjör
Lýðveldisflokksins þykja benda til
þess að hún hafi annaðhvort ekki bú-
ið sig undir að Fillon gæti sigrað í
því, eða sigurinn hafi komið henni í
opna skjöldu. Í stað þess að hafa
virst eiga möguleika á sigri í alla
vega fyrstu umferð forsetakosning-
anna er sá möguleiki úr sögunni,
samkvæmt skoðanakönnunum.
Lykilráðgjafi Sarkozys í Elysee-höll,
Patrick Buisson, segir að Le Pen
eigi engan möguleika á sigri í vor,
ekki vegna stefnumála sinna heldur
þess, að vörumerkið Le Pen sé enn
of eitrað í hugum fransks almenn-
ings. Hann spáir því að flokkur
hennar geti klofnað í tvennt eftir
kosningar, milli norðurs og suðurs.
Að undanförnu hafi hart verið tekist
á innanflokks um miðstýringu Le
Pen á flokknum og frjálslynda efna-
hagsstefnu hennar.
Inn í pólitískt sólsetur
Að mörgu leyti er Fillon óska-
keppinautur fyrir vinstrimenn sakir
íhaldssemi sinnar og aðdáunar á
Margaret Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands. Hvað sem
því líður þá benda fylgismælingar til
að minni líkur séu á því en meiri nú
að forsetaefni vinstriaflanna komist í
seinni umferð kosninganna, 7. maí
nk.
Foringjarnir þrír sem í upphafi
eru nefndir eru nú á leið inn í póli-
tískt sólsetur, eftir hin sögulegu
kaflaskipti í lífi þeirra og fimmta lýð-
veldisins. Slegið var svo harðri hendi
á pólitískan metnað þeirra að þeir
sögðust myndu draga sig út úr
landsmálapólitíkinni. Hollande mun
sitja áhrifalítill í Elysee-höll fram í
maí. Sarkozy sagðist myndu draga
sig úr sviðsljósinu og njóta meiri ró-
legheita með fjölskyldunni í framtíð-
inni. Juppé sagði að eftir 40 ára
þjónustu í þágu Frakklands er fært
hefði honum bæði gleði og sársauka
væri leikurinn flautaður af.
Fordæmalaust stjörnuhrap
Á 11 daga tímabili í lok nóvember og byrjun desember var fótunum kippt undan þremur af
helstu stjórnmálamönnum Frakklands, Nicolas Sarkozy, Alain Juppé og François Hollande
AFP
Umdeild Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, í hópi íbúa frönsku eyjarinnar Mayotte í Ind-
landshafi. Le Pen er talin líkleg til að keppa við François Fillon í síðari umferð forsetakosninganna í Frakklandi.
AFP
Vonbrigði Alain Juppé ræðir við blaðamenn eftir að hafa kosið í forkosn-
ingum Lýðveldisflokksins þar sem hann beið lægri hlut fyrir Fillon.
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Tíu síðustu dagar nóvembermánað-
ar og sá fyrsti í desember fara í póli-
tíska annála í Frakklandi. Á því
stutta tímabili var fótunum kippt
undan þremur af helstu stjórnmála-
mönnum landsins, Nicolas Sarkozy,
fyrrverandi forseta, Alain Juppé,
fyrrverandi forsætisráðherra og
borgarstjóra í Bordeaux, og Franç-
ois Hollande forseta. Þeir tveir
fyrstnefndu voru lagðir að velli í
prófkjöri mið- og hægrimanna og
fjórum dögum seinna, 1. desember,
lét Hollande undan þrýstingi flokks-
manna sinna og tók fyrir að sækjast
eftir endurkjöri næsta vor.
Stjörnuhrap af þessu tagi hefur
aldrei áður átt sér stað í sögu fimmta
lýðveldisins sem Charles de Gaulle
stofnaði 4. október árið 1958. Þá hef-
ur það heldur ekki gerst á þessu 58
ára tímabili að forseti hafi ekki sóst
eftir endurkjöri. Meðal helstu
spurninga manna á meðal í fram-
haldi af prófkjöri Lýðveldisflokksins
og upplausn á vinstrivængnum er
hvort öruggt sé að François Fillon
vinni forsetakosningarnar að vori og
taki við húsbóndavaldi í Elysee-höll.
Miðað við skoðanakannanir eru allar
líkur til þess. Stjórnmálaskýrendur
segja það hins vegar allsendis óvíst
og benda á misheppnaðar forspár
Brexit, vegna bandarísku forseta-
kosninganna og nú síðast niðurstöðu
prófkjörsins franska. Aldrei virtist
Fillon eiga möguleika í þeim fyrr en
á lokametrunum, eftir kappræður
frambjóðendanna í sjónvarpssal.
Fillon stendur best að vígi
Miðað við tvær skoðanakannanir
sem birtar voru að kvöldi seinni dags
prófkjörsins stendur Fillon best að
vígi. Hann er sá sem aðrir frambjóð-
endur þurfa að vinna í kosningunum,
sem fram fara 23. apríl og 7. maí. Til
að geta hrundið stefnu sinni í fram-
kvæmd þarf hann á þingmeirihluta
halda en til þings verður kosið 11. og
18. júní. Þessar kannanir sýndu að
Fillon myndi leggja Marine Le Pen,
leiðtoga Þjóðfylkingarinnar, að velli
með miklum yfirburðum, eða 67%
atkvæða gegn 33%.
Stjórnmálaskýrendur benda þó á,
að mikið vatn eigi eftir að renna til
sjávar á næstu fimm mánuðum og
Le Pen verði ekki auðveldlega slegin
út af laginu. Hún eigi eftir að kynna
stefnu sína og hefja í raun kosninga-
baráttu sína. Dæmin með Trump og
Brexit muni örva hana til dáða, svo
og úrslit þjóðaratkvæðisins á Ítalíu
sl. sunnudag. Ljóst þykir að hún
hefði fremur kosið hinn hófsamari
Alain Juppé en harðlínu- og íhalds-
manninn Fillon. Hún muni þó eftir
sem áður geta brúkað gamalkunnan
áróður lýðskrums og fjandskapar í
garð stjórnmálaelítunnar með góð-
um árangri og gegn hnattvæðingu,
svo eitthvað sé nefnt úr vopnabúri
hennar. Fillon sé henni ákjósanlegt
skotmark þar sem hann hefur haft
stjórnmál að ævistarfi og er fyrrver-
andi forsætisráðherra.
69% líkur á sigri Fillon
Að mati veðmangara eru nú sem
stendur 69% líkur á sigri Fillons 7.
maí næstkomandi en líkur Le Pen
eru metnar 30%. Álitsgjafar segja
hann geta að talsverðu leyti þakkað
glundroðanum í Sósíalistaflokknum
þetta mikla skor. Þar er allt upp í
loft og frambjóðandi flokksins við
forsetakosningarnar ekki valinn fyrr
en í janúarlok. Lengi hafði verið beð-
ið eftir forsetanum að ákveða sig en
hann tilkynnti svo óvænt í síðustu
viku að hann myndi ekki sækjast eft-
ir endurkjöri.
Þar með var helstu hindrun
Manuels Valls forsætisráðherra rutt SJÁ SÍÐU 44