Morgunblaðið - 08.12.2016, Page 49

Morgunblaðið - 08.12.2016, Page 49
49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 Loftsýn Ólofthræddur verkamaður gerir við loftnet í vetrarblíðu í Breiðholtinu og nýtur um leið fagurs útsýnis yfir höfuðborgina, Heiðmörkina og fjöllin sem gleðja augu borgarbúa. Eggert Fróðlegt er að fylgj- ast með umræðunni í kjölfar sigurs Donald Trump í forsetakosn- ingunum. Þrátt fyrir að fréttaelítan hafi ver- ið á móti honum, tveir fyrrverandi forsetar Repúblikana og stór hluti stjórnmálaelít- unnar þá vann hann samt. Sagt var hve öm- urlegt, illa menntað og fordómafullt stuðningsfólk Trump væri, en annað kom í ljós. Donald Trump var kosinn forseti með stuðningi meiri hluta hvítra Bandaríkjamanna, jafnt kvenna sem karla. Hann fékk fleiri atkvæði spænskumælandi Bandaríkjamanna en Romney sem var síðast í fram- boði fyrir Repúblikana og vann fylki sem Repúblikanar hafa ekki unnið í 30 ár. Donald Trump lofaði að taka á spilltri valdaelítu. Reynslan á eftir að sýna hvort hann gerir það. Hann talaði um breytta utanríkisstefnu, sem heldur er ekki vanþörf á. Sam- vinnu við Rússa sem er rétt greining á því með hvaða hætti verður best unnið gegn hryðjuverkaógninni. Hann talaði um nauð- syn þess að víkja frá stefnu Bush jr. og Obama, sem hefur leitt til þess að Bandaríkin hafa misst traust bandamanna sinna. Mótmæli brutust út eftir að Trump var kos- inn. Það er ekki í fyrsta skipti sem úrslitum forsetakosninga er mótmælt. Þegar Ro- nald Reagan var kos- inn urðu mótmæli og elítan taldi þá eins og nú að villi- mennirnir hefðu brotið niður borg- arhliðið og sett fávita í hásætið. Fréttaelítan stimplaði Reagan sem frambjóðanda Disneylands og sagði að hann hefði verið kosinn vegna ástar Bandaríkjamanna á fræga fólkinu. Aðrir sögðu Reagan vera öfgamann sem mundi hrinda af stað þriðju heimsstyrjöldinni og valda heimsendi. Ronald Reagan reyndist einn merkasti forseti Bandaríkjanna. Hann nálgaðist málin með einföld- um hætti og valdi úrvalsfólk sem ráðgjafa sína. Hann sagði að Sov- étríkin ættu heima á ruslahaugi mannkynssögunnar og hann kom þeim þangað. Reagan setti sér ein- föld markmið í efnahagsmálum: Lækka skatta, minnka regluverk, láta ríkisstjórnina gera sem minnst til að trufla ekki framfaravilja og dugnað einstaklinganna. Hann var sakaður um að reka glórulausa efna- hagsstefnu en samt gekk þetta vel og nýr tími velmegunar og aukinna áhrifa Bandaríkjanna í heimsmálum rann upp. Reagan var gagnrýndur fyrir hugsjónir sínar en enginn efaðist um pólitíska einlægni hans. Hann talaði skýrt út frá mótaðri pólitískri hug- myndafræði. Þetta er rifjað upp vegna þess að viðbrögð ráðandi elítu voru að mörgu leyti lík þegar Reagan var kosinn og nú þegar elítan neitar að sætta sig við kosningu Trump. Mis- munur á Reagan og Tump er þó margvíslegur og Reagan hafði víð- tæka stjórnmálareynslu þegar hann varð forseti eftir að hafa verið fylk- isstjóri í Kaliforníu en Trump hefur enga. Þeir sem á annað borð vilja skoða málin sjá að Trump bendir á ákveðin sannindi sem full ástæða er til að taka tillit til og bregðast við. Hann sakar Kínverja um að halda gjald- miðli sínum allt of lágum til að draga úr samkeppnishæfni bandarískra fyrirtækja. Hann segir að Evr- ópuríkin noti Bandaríkin til að greiða niður framlög þeirra til varn- armála og hann gagnrýnir frelsi fjármagnsins til að eyðileggja fyr- irtæki í Bandaríkjunum og færa þau þangað sem vinnuaflið fæst á þeim lágmarkslaunum að hægt er að líkja við nútíma þrælahald. Með því séu atvinnutækifæri í Bandaríkjunum eyðilögð og afkoma hundraða þús- unda Bandaríkjamanna. Skrýtið að vinstri elítan skuli gagnrýna þessa skoðun Trump. Trump virðist ekki hafa áhuga eða þekkingu á pólitískri hugmynda- fræði. Hvers vænta má af Trump er því mun óræðara en það sem fólk gat séð þegar Reagan var kosinn. Ef til vill hefur Trump hæfileika til að semja í allar áttir og ef til vill velur hann góða ráðgjafa eins og Reagan gerði. Hvað svo sem því líður þá verður elítan að sætta sig við hann og gefa honum tækifæri vilji hún starfa með lýðræðislegum hætti. Því fór fjarri að Donald Trump væri sá frambjóðandi í forkosn- ingum Repúblíkana sem ég vildi sjá sem forseta, en hann hefur að mörgu leyti komið á óvart eftir að hann sigraði og hikar t.d. ekki við að óska eftir aðstoð fólks sem gagn- rýndi hann og/eða var andstæðingar hans. Vonandi tekst honum að ná til sín hæfasta fólkinu til að þjónusta bandarísku þjóðina undir sinni stjórn. Vonandi tekst honum líka að deila valdinu eins og Reagan gerði, en það reyndist einstaklega vel vegna hæfileika þeirra sem valdinu var deilt til. Þegar Reagan var sakaður um það að deila valdinu um of og gera of lítið sjálfur sagði hann: Það kann að vera rétt að mikil vinna skaði engan, en mér finnst engin ástæða til að taka áhættuna. Donald Trump verð- ur valdamesti maður heims og það liggur mikið við að honum takist vel til. Lengi skal manninn reyna og vinstri elítan ætti að forðast að dæma hann fyrirfram en leggja þeim mun meiri rækt við að gaum- gæfa hnignun Bandaríkjanna undir stjórn þeirra Bush-feðga, Bill Clin- ton og Obama. Slæmur má Trump verða ef hann slær út þá hersingu. Eftir Jón Magnússon »Trump virðist ekki hafa áhuga eða þekk- ingu á pólitískri hug- myndafræði. Hvers má vænta er því mun óræð- ara en þegar Ronald Reagan var kosinn. Jón Magnússon Höfundur er hæstaréttarlögmaður Brutu villimennirnir borgarhliðið?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.