Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 52

Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 52
52 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 Við Standing Rock, friðarsvæði Sioux- indjána í norðan- verðum Bandaríkj- unum, hafa staðið yfir heiftarleg mótmæli síðan í apríl. Mótmælin hafa nýlega hlotið hljómgrunn á al- þjóðavísu. Einnig er um að ræða eina stærstu samkomu inn- fæddra Ameríkana í áraraðir. Til- efnið er lagning risavaxinnar olíu- leiðslu sem hlykkjast við útjaðra tveggja friðarsvæða Indjána og fer yfir heilmikil vatnasvæði. Einkanlega hefur málið fengið at- hygli eftir að þúsundir uppgjafaher- manna streymdu til Standing Rock til að sýna indjánum stuðning. Stað- festa mótmælenda hefur leitt til þess að ráðamenn í Washington hafa kall- að eftir framkvæmdahléi og farið fram á að leið lagnarinnar verði breytt. Indjánar taka þó loforðum frá höfuðstaðnum með fyrirvara. Vatnsverndarar Mótmælendur kalla sig vatns- verndara og vilja standa í vegi fyrir lagningu 2.500 kílómetra langrar ol- íuleiðslu sem á að liggja allt frá Norður-Dakóta til Illinois-ríkis. Leiðslan mun flytja 450.000 tunnur af olíu á dag. Verkið er vel á veg komið og fátt stendur í vegi fyrir uppbyggingu leiðslunnar, nema ind- jánar. Leiðslan í Dakóta á að liggja um 1 km austan við verndarsvæðin Standing Rock og Fort Berthold sem tilheyra Sioux-ættbálkunum. Lagnaleiðin var ákveð- in í óþökk ættbálkaráðs Sioux og án fullsam- þykkts umhverfismats. Innfæddir bera fyrir sig umhverfisvernd og verndun menningar- minja. Skammt frá lögninni er að finna eitt mesta grunnvatn Bandaríkjanna og lífæð verndarsvæðanna. Þar er einnig Missouri-áin sem er sú lengsta í Bandaríkjunum. Í Missouri-ríki sameinast áin Miss- issippi-fljótinu. Samanlagt eru árnar fjórði lengsti árfarvegur heims. Í allt mun leiðslan fara yfir 200 vatna- svæði, tvö stöðuvötn og tvisvar undir Missouri-ána. Upprunalega átti leiðslan að fara undir ána rétt við Bismarck, sem er höfuðborg Norð- ur-Dakóta, en vegna áhættuþátta fyrir grunnvatn borgarinnar var leiðslan færð. Í staðinn var ákveðið að fara undir ána rétt utan við verndarsvæði Indjána. Segja hagsmuni í húfi Það eru olíujöfrar frá Texas sem standa að verkinu, Energy Transfer Partners, sem hafa höfuðstöðvar í Houston. Verkið er í höndum syst- urfyrirtækja og annara verktaka þ. á m. Dakota Access. Olíurisarnir virðast litlar áhyggjur hafa af að píp- an rofni og segja mikla hagsmuni í húfi. Þeir hafa einnig bent á að álíka leiðslur sé nú þegar að finna víða um Bandaríkin. Þeir segja leiðsluna at- vinnuskapandi, hún fari ekki inn á verndarsvæðin og sé nokkuð örugg. Þó að þeir hafi litlar áhyggjur af náttúrunni hafa þeir alls engar áhyggjur af menningararfi inn- fæddra. Verktakar hafa ekki veigrað sér við að grafa upp og valta yfir fornar grafir indjána og leggja í rústir heilög vé. Þessar athafnir eru auðvitað ekki löglegar og brjóta alríkislög um náttúruvernd og menningarminjar. Stórfyrirtækin hafa þó alltaf ráð undir rifi hverju og hafa t.d. keypt upp landsvæði og ráðið til sín sér- fræðinga til að klekkja á kerfinu. Verndarsvæðið minnkað ár frá ári Árið 1868 var samið um „verndar- svæði hinnar miklu Sioux þjóðar“ sem náði yfir um helming Suður- Dakóta-ríkis í austri og inn í Norð- ur-Dakóta. Bandaríkjastjórn saxaði svo smám saman af svæðinu. Í dag eru aðeins brot af upprunalega verndarsvæðinu að finna á víð og Vatn er líf Eftir Einar Ísaksson Einar Ísaksson » Innfæddir eru orðnir langþreyttir á yfir- gangi, græðgi og hroka bandarísku alríkis- stjórnarinnar. Ljósmynd/Rose Ganley Búðirnar Frá búðum mótmælendanna en mótmælin hafa verið friðsamleg. Ljósmynd/Rose Ganley Slagorð Mótmælendur hafa ritað slagorð til að vekja athygli á málstaðnum. TORMEK Brýnsluvélar ▲ Tormek T-4 er uppfærsla á T-3 og er nú kominn með málmhaus sem eykur nákvæmni um 300% Fylgihlutir sjást á mynd. Verð 53.960 ▼ Tormek T-8 er uppfærsla á T-7 og er nú kominn með málmhaus sem eykur nákvæmni. Verð 95.180 Allar stýringar fyrirliggjandi Verslunin Brynja er umboðs- aðili TORMEK á Íslandi Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 SVX-150: Skærastýring Verð 5.780 HTK-706: Aukahlutasett fyrir hnífa, skæri o.fl. Verð 19.980 TNT-708: Aukahlutasett fyrir rennismiðinn Verð 29.980 SVD-186: Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn Verð 8.980 SVM-140: Hnífastýring Verð 5.220 SVM-00: Stýring fyrir tálguhnífa Verð 4.175
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.