Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 60

Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 60
60 . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 fimmtudaginn 22. desember NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ Heilsa& lífstíll fylgir Morgunblaðinu mánudaginn 2. janúar 2017 Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl. BÆKUR Því má halda fram með nokkrum rökum, að Guðmundur Karl hafi verið fyrstur til að sinna eftirmeð- ferð skurðsjúklinga með frum- stæðri gjörgæslu. Hann var fyrst- ur íslenskra skurðlækna til að nota öflug deyfilyf, súrefnisgjafir, blóðgjafir og sykur- og saltvatns- gjafir við eftirmeðferð skurð- sjúklinga. Og eftir að hafa gert samfallsaðgerð að morgni fór Guð- mundur Karl ekki af spítalanum næstu þrjá sólarhringa hið minnsta. Þar fyrir utan hafa þeir sagt, sem þekktu betur til en sögumaður, að Guðmundur Karl hafi ekki verið skurðglaður læknir. Þvert á móti hafi hann helst ekki gert aðgerðir á þeim, sem til hans leituðu öðru vísi en hann teldi að aðgerð gæti komið sjúklingi til góða, en „ ... með starfsháttum sínum og persónuáhrifum, kveikti hann hjá sjúklingum sínum þá trú og batavon, sem jók þeim styrk og kjark, í örðugleikum og kreppu fyrir og eftir aðgerðir.“ Að lokum má spyrja: Hvers vegna voru menn að skera fólk þannig, að það var oft meira eða minna örkumlað eftir á? Þegar komið var fram í fjórða áratug síð- ustu aldar fóru berklar dvínandi. Læknar sáu fram á sigur í slagn- um við vágestinn og dánartíðni vegna hans var ört fallandi en menn vissu samt ekki þá hve lang- an tíma slagurinn stæði. Ein ástæða fyrir höggningu var, að læknar vissu, að skurðaðgerð var á stundum eina von sjúklings með lungnaberkla til að komast út í líf- ið aftur til ástvina sinna og ef til vill til að geta létt undir í lífsbar- áttunni jafnvel eftir að fyrstu lyfin komu til sögunnar.“ Síðar í umfjöllun sinni um Guð- mund Karl farast Magnúsi svo orð: „Einn af fjölmörgum kostum Guðmundar Karls var að hann var fæddur leiðbeinandi ungum læknum og óreyndum en hann þurfti að finna fyrir áhuga þeirra til þess að kennaraljós hans kviknaði. Guðmundur Karl var í rauninni félagsvera. Honum leið best innan um fólk. Og á góðri stundu var hann hrók- ur alls fagnaðar, stak- ur bindindismaður á bæði vín og tóbak. Hann var skemmti- legur tækifæris- ræðumaður, sem oft var fenginn til þess að tala á Sal í Mennta- skólanum á Akureyri. Og ósjaldan sást hann í frosthörkum klæddur eins og venjulega í jakkaföt, með hatt á höfði og blankskó á fótum, koma brunandi á A-100 út á ísi lagðan Pollinn að æfa U-beygjur ekki langt þar frá, sem Menntskæl- ingar æfðu sig í að standa á skaut- um. Sundum ef svell var gott gat U-beygjan jafnvel orðið að O- beygju. Starfsþrek hans var nánast ómennskt en hvar sem hann fór, var hann öðrum til fyrirmyndar um ósérhlífni og starfsgleði. „Stundum gat Guðmundur átt það til að vera dálítið hrjúfur í framkomu ef um eitthvað smá- vægilegt var að ræða, enda mað- urinn skapmikill, en ætíð var hann alúðlegur og elskulegur í fram- komu ef um eitthvað alvarlegt var að ræða.“ Þessari hrjúfu hlið, sem Jóhann Þorkelsson lýsti þarna kynntist sögumaður aldrei en hins vegar voru tilsvör yfirlæknisins, þau er sögumaður heyrði, stundum sérstök og sérkennileg en lýstu fremur dulinni kátínu en hæðni. Í útliti var Guðmundur Karl glæsimenni. Alltaf teinréttur, klæddur í klæðskerasaumuð föt, hvíta skyrtu, með bindi og í skón- um mátti spegla sig. Færi hann úr húsi sat hattur á höfði hans. Sögu- maður hefur stundum velt því fyr- ir sér hvernig Guðmundur Karl hafi verið klæddur þegar hann var kallaður út að næturlagi í bandvit- lausu veðri og ófærð nema á tveimur jafnfljótum. En aldrei auðnaðist honum sú náð að berja þann útbúnað augum. Ljósmynd/Minjasafnið á Akureyri Hugmyndaríkur Læknirinn Jónas Rafnar við röntgentæki spítalans. Svipmyndir úr sögu sjúkrahúss Magnús Stefánsson barnalæknir hefur tekið saman sögu sjúkrahúss á Akureyri í hundrað ár í ritinu Svipmyndir úr sögu sjúkrahúss í eina öld. Í bókinni er lækningasaga Íslands meðal annars skoðuð af sjónarhóli barnalæknis. Meðan ungbarnadauðinn á Íslandi var 20-30% á Íslandi virðast læknar, samkvæmt fyrirliggjandi tölum, hafa sinnt veikindum barna mun minna en veikindum fullorðinna. Hér er birt brot úr bókinni þar sem sagt er frá Guðmundi Karli Péturssyni yfirlækni. Leiðbeinandi Guðmundur Karl Pétursson.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.