Morgunblaðið - 08.12.2016, Page 72

Morgunblaðið - 08.12.2016, Page 72
72 . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 BÆKUR Útsölustaðir: • Momo.is – Garðabæ • Cocos – Grafarvogi • Kroll – Laugavegi • Share – Kringlunni • Fröken Júlía – Mjódd • Stíll – Síðumúli • Rita - Kópavogi • Dion.is – Glæsibæ • Corner - Smáralind • Smartey.is – Vestmannaeyjum • Rexin – Akureyri • Gallery Ozone – Selfossi • Palóma – Grindavík • Sentrum – Egilsstöðum • Blómsturvellir – Hellissandi • Verslunin Nína – Akranesi • Kóda – Keflavík • Töff föt – Húsavík • Mæðgur og Magasín – Stykkishólmi • SiglóSport – Siglufirði • Pex – Neskaupsstað/Reyðarfirði • Efnalaug Dóru – Höfn • Skagfirðingabúð – Sauðárkróki run@run.is • www.run.is 30 ÁRARÚN HEILDVERSLUN Til: elsk u mín Frá: els ku mér Gerðu vel við sjálfa þig um jólin Snemma í desember 1915 hélt Steingrímur Matthíasson læknir á Akureyri til útlanda ásamt eig- inkonu sinni, Kristínu Thoroddsen. Ferðinni var fyrst heitið til Kaup- mannahafnar en þaðan til Berlínar og Dresden í Þýskalandi. Til- gangur Steingríms með Þýska- landsförinni var „að fá tækifæri að sjá hin margbreytilegu sár og meiðsli, er hermennirnir hljóta í orustunum og telur hann líklegt að margt megi af því læra, er sér geti að notum komið hér heima á Ís- landi,“ sagði í Norðurlandi en blaðið birti síðar ferðapistla lækn- isins. Steingrímur kom til Berlínar í annarri viku janúarmánaðar 1916. Í Þýskalandi vakti strax athygli hans hve víða mátti sjá skilti þar sem rituð voru stórum stöfum varnaðarorð til hermanna: „Talið varlega hermenn, varið yður á njósnarmönnum!“ Og hann var al- veg gáttaður á fjölda einkenn- isklæddra manna í Berlín. „Ég ýki það ekki að 4.-5. hver maður, sem um göturnar gekk, var hermaður,“ skrifar hann; alls staðar hermenn og á öllum aldri. „Unglingar, sem varla er sprottin grön, nýkomnir í treyjuna, kneifa bjór og skegg- ræða um síðustu sigrana. Það er sagt að þeir yngstu séu allra ólm- astir eftir að komast út í háskann og vinna sér frægð.“ Læknirinn virðir fyrir sér mannlífið með blendnum huga. „En aumt er að sjá, hve margir hermennirnir eru fatlaðir; sumir draga aðra löppina, aðrir hafa hendi í fatla, eða vantar einhvern lim eða hafa reifað höf- uðið, en þeir eru samt í einkenn- isbúningi, sumir grónir sára sinna og gegna léttari störfum heima fyrir eða eiga von á fullum bata og geta farið bráðum aftur út í elds- og kúlnahríð.“ Flesta daga meðan stóð á dvöl- inni í Berlín og Dresden heimsótti Steingrímur sjúkrahús. Honum segist svo frá: Ég gekk með læknunum og hjúkrunarkonunum á þeirra dag- legu morgunvitjun gegnum sjúkra- herbergin, frá einu rúminu til ann- ars. En sá sægur af vesalingum, mönnum á besta aldri. Og hugann sundlar við að hugsa um öll þau þúsund og aftur þúsund og hundr- að þúsund af særðum mönnum, þýskum, rússneskum, enskum, frönskum o.s.frv. víðs vegar um alla Norðurálfuna, austur í Asíu og suður í Afríku. Hér í Berlín eru öll venjuleg sjúkrahús meira en full og ótal ný sjúkrahús stofnuð. Fjöldamargar opinberar bygg- ingar, veitingahús og gististaðir, hafa verið gerð að sjúkrahúsum. Og í öllum bæjum Þýskalands stærri og smærri, og þeir eru margir, úir og grúir af særðum og sjúkum hermönnum. Steingrími verður starsýnt „á þá feiknafyrirhöfn, tilkostnað og fyrirhyggju, sem landstjórn og læknar verða að leggja fram“. Í Dresden hafði til að mynda stór- hýsi fyrir iðnaðarsýningar verið breytt í sjúkrahús Rauða krossins. Á sama hátt hafi „veitingahús, vöruhús, já, hallir og listasöfn ver- ið gerð að særðrahælum hingað og þangað á Þýskalandi“. Hvað blasir við augum læknisins norðan af Akureyri í sjúkra- herbergjunum? Hann hefur aldrei séð slíkt áður: Vér göngum frá einu rúminu til annars. Mikill fjöldi rúmanna stendur auður, en við fótagaflinn stendur sjúklingurinn – handlaus, fótlaus við hækju eða staf, eða með hendi í fatla, eða vaf um höfuð. Þessir eru allir fótaferðafærir. Hinir liggja – sumir af því þeir eru lima- lausir og ekki færir um að komast nokkurntíma á fætur eða eru enn ekki búnir að læra að staulast, en aðrir dauðvona, brennandi af hita- sótt, með flakandi sárum, og enn aðrir að mestu grónir, en ekki græddir, því mænan er sundur eða heilinn skaddaður svo þeir eru máttlausir, sumir mállausir o.s.frv. „Og ljót eru sárin sumra,“ skrif- ar Steingrímur en reynir þó að taka öllu með jafnaðargeði. Al- gengastir séu áverkar eftir sprengikúlur sem valdi „svo marg- víslegum sárum að ekki er unnt upp að telja“. Það er ekki fögur sjón. „Ömurlegt er að sjá unga, hrausta menn, að öðru leyti heil- brigða en því, að sáldur úr sprengikúlum hefur blindað þá, en ljótara þó, að sjá andlitið allt af- skræmt, máske aðeins lítill hluti þess óskertur. Neflausir eru sum- ir, aðrir kjálkalausir og gín við eitt opið sár, með ógurlegri rauf að barka og vélindi.“ Að stofugangi loknum hefst starfið á skurðarstofunum. Og ís- lenska lækninum finnst merkilegt að fylgjast með þýskum starfs- bræðrum sínum og sjá „saumaðar saman sundurskotnar sinar og taugar, teknar út kúlur og sprengikúlnabrot, gert við líkams- skekkjur og beinbrot, útæðahnúta o.s.frv.“ Fróðlegast af öllu er þó að verða vitni að því hvernig lækn- unum tekst „að skapa ný nef á neflausa, með því að græða bein- flís úr sköflungnum inn í holdflipa á upphandleggnum og því næst sauma flipann fastan framan á andlitið á nefsins stað“. Að vísu standi „þessi nefskapnaður langt að baki guðs handaverkum“ en bjargi þó andlitinu að vissu leyti. Þrátt fyrir allt, eymdina og sársaukann, þykir Steingrími sem hermennirnir sætti sig furðufljótt við hlutskipti sitt, flestir að minnsta kosti. Sjúkrahúsin séu ekki „hreinir táradalir, þar sem sé grátur og gnístran tanna“, alls ekki. „Þegar maður hefur umgengist sjúklinga um hríð, þá verður nið- urstaðan sú að þeir séu yfirleitt ekki óánægðari en margir sem eiga að heita heilbrigðir, þ.e.a.s. svo framarlega sem þeir ekki kveljast af sárs- auka,“ segir Steingrímur. „Ég vona ég fái að hefna mín,“ hafi oft verið viðkvæðið. En alla dreymi þá um járnkrossinn, æðsta heiðursmerki þýska keisara- dæmisins. Og hvar sem ég kom meðal særðu hermannanna þýsku sá ég oftar glaðleg andlit, nema auðvitað þar sem sársauki kvaldi og gaf ekki nema stöku sinnum viðþol; en þess konar sársauka má þó oft deyfa og venjulega líður hann þá hjá eftir viðeigandi aðgjörðir eftir vissan tíma. Jafnvel þeir sem svift- ir voru stórum líkamshlutum og voru illa útleiknir, gerðu að gamni sínu og báru sig karlmannlega. Þeir sem voru fótlausir eða hand- lausir höfðu gaman af að sýna leikni sína að nota gervilimina, hækjur og stafi. En þeir sem voru minna örkumlaðir hlökkuðu til að komast til herstöðvanna á ný. Og þeir sem maður talaði við og spurði um atvik og ástæður er þeir særðust, komust venjulega allir á loft og urðu harla skrafhreifir er þeir fóru að sýna ör sín og segja frá bardaganum, hvenær og hvar það var. Var þetta svo í raun? Ef til vill var þýsku hermönnunum umhugað um að sýna hinum erlenda gesti sínar bestu hliðar, sanna að bar- áttuvilji þeirra væri óbugaður. Ef til vill lét gesturinn yfirborðið villa um fyrir sér, dró of víðtækar ályktanir af glaðlegum andlitum einstakra hermanna og því hversu skrafhreifir þeir voru. Hann dáðist líka að því hve mikið var gert á sjúkrahúsunum til að gera lífið bærilegt fyrir hina hrjáðu menn. Þar væru æfingasalir, handverks- salir, nuddlækningar og böð. „En það er sárt að sjá svo góðum kröftum, svo miklum drengskap og dugnaði varið til ónýtis í þessari óhamingjusömu heimsstyrjöld.“ En sá sægur af vesalingum Í Stríðinu mikla segir Gunnar Þór Bjarnason frá heimsstyrjöldinni fyrri og áhrifum hennar á íslenskt þjóðlíf í aðdraganda fullveldis. Sagan er rakin í texta og grúa af ljósmyndum, íslenskum og erlendum. Í kaflanum sem hér fer á eftir er sagt frá heimsókn Steingríms Matthíassonar héraðslæknis til Þýskalands í upphafi átakanna. Ljósmynd/Mál og menning Örkumlaðir Myndin er tekin á hersjúkrahúsi í Antwerpen, Belgíu. Ljósmynd/Mál og menning Ferðalangur Steingrímur Matthías- son, læknir á Akureyri (1876–1948).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.