Morgunblaðið - 08.12.2016, Síða 76
76 .
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
BÆKUR
Héraðsmannasögur
Eiríkur Eiríksson frá Dagverðargerði í
Tunguhreppi var í mörg ár bókavörður á Al-
þingi. Hann þótti passasamur á peninga og ekki
græddu tískubúðirnar
mikið á honum.
Eitt sinn fór Eiríkur
með vini sínum, Sverri
Hermannssyni, lengi
þingmanni Austurlands
og ráðherra um tíma, út á
Reykjavíkurflugvöll að ná
í móður bókavarðarins.
Þannig háttaði til að móðir
hans var að koma í fyrsta
skipti á ævinni til Reykja-
víkur, því hún þurfti að fara í uppskurð á Land-
spítalanum við alvarlegum sjúkdómi.
Eiríkur átti ekki bíl og sá Sverrir um akst-
urinn. Ók hann meðal annars fram hjá Hagkaup
og hefur þá á orði við móður vinar síns að þarna
fáist allt milli himins og jarðar; matvörur, bæk-
ur og kjólar svo eitthvað sé nefnt.
„Kjólar!“ segir gamla konan. „Ég hef ekki
eignast nýjan kjól í marga áratugi.“
„Hvaða, hvaða,“ segir Sverrir, „við tökum
kóssinn á búðina og kaupum kjól eins og skot.“
Um leið baðaði Eiríkur út höndunum í aft-
ursætinu og stundi svo upp:
„Mamma, mamma, eigum við ekki að láta það
bíða og sjá til hvernig uppskurðurinn gengur.“
*
Vilhjálmur Hjálmarsson – Villi á Brekku – al-
þingismaður fyrir Framsóknarflokkinn og ráð-
herra, var stakur bindindismaður og veitti aldr-
ei vín í veislum á ráðherraárum sínum, eins og
frægt varð.
Vilhjálmur og Þorsteinn Sveinsson, kaup-
félagsstjóri á Egilsstöðum, voru góðir kunn-
ingjar. Fyrir nokkrum áratugum mættumst
þeir á Mjóafjarðarheiði og tóku tal saman. Þor-
steinn var á splunkunýjum bíl, ljómandi fal-
legum. Vilhjálmur áttaði sig ekki almennilega á
litnum og hafði orð á því við Þorstein.
„Það er varla von að þú kannist við litinn,“
sagði Þorsteinn. „Bíllinn er nefnilega vínrauður.“
*
Það óhapp varð hjá Flugfélagi Austurlands á
sínum tíma að flugmaður hjá félaginu var að
koma í lágflugi frá Vopnafirði á lítilli flugvél og
rak vænginn ofan í Jökulsá í Dal. Sem betur fer
endaði þetta vel. Flugmaðurinn, sem var einn í
vélinni, slapp lítt meiddur og vélin náðist á þurrt
land.
Nokkru eftir þennan atburð var Frissi í
Skóghlíð staddur á flugvellinum á Egilsstöðum.
Kemur þá viðskiptamaður þar í afgreiðsluna og
spyr hvernig útlitið sé með flug til Vopna-
fjarðar, hvort það sé fært þangað. Frissi tók að
sér að afgreiða málið og sagði áður en flug-
félagsmenn komust að: „Það lítur ágætlega út,
það er lítið í Jökulsá í dag.“
*
Það vakti mikla athygli í fjölmiðlum þegar bóndi
austur á Jökuldal, Vilhjálmur á Skjöldólfs-
stöðum, var ákærður fyrir veiðiþjófnað og
frystigámur sem hann átti að húsabaki innsigl-
aður af lögreglu þar sem laganna verðir töldu
sig hafa fundið þar illa fengið hreindýrakjöt.
Mikið fjör var í kringum lögreglurannsóknina,
meðal annars komu fréttamenn frá sjónvarpinu
og tóku viðtal við Vilhjálm þarna á staðnum
meðan allt var að gerast. Um kvöldið var frétt
um málið í sjónvarpinu og þá rætt við bóndann
sem var titlaður Vilhjálmur Snædal veiðiþjófur.
Hákon Aðalsteinsson horfði á fréttirnar um
kvöldið og honum varð þá ljóð af munni:
Þjóðarmiðillinn þykir mér grófur
á þessari nýju öld.
Vilhjálmur Snædal veiðiþjófur
var á skjánum í kvöld.
Næsta dag var búið að rjúfa innsiglið og kjöt-
ið horfið, bóndi staðhæfði í viðtali við sjónvarpið
að einhver ósvífinn þjófur hefði brotist inn og
stolið kjötinu enda hefðu lögregla og fjölmiðlar
hjálpast að við að auglýsa það.
Vilhjálmur var svo kærður fyrir veiðiþjófnað
og dæmdur í nokkuð háa sekt. Vinur hans og
sveitungi, Kári Stefánsson í Merki, gekkst fyrir
söfnun til að styrkja Vilhjálm til að greiða sekt-
ina, sagði að það næði ekki nokkurri átt að
bændur á Jökuldal borguðu fyrir að veiða sér til
matar, þetta hefðu þeir gert alla tíð án þess að
kæmi til lögregluafskipta. Safnað var undir
slagorðinu „Free Willy“. Söfnunin gekk vel og
fékkst fyrir sektarupphæðinni allri.
*
Gísli Helgason í Skógargerði í Fellum var
þekktur maður og höfðingi í sinni sveit. Eitt
sinn varð honum misdægurt. Þetta var á þeim
árum þegar lyf var ekki að fá á Fljótsdalshéraði
nær en á Seyðisfirði. Nágranni var sendur út af
örkinni til þess að nálgast lyfin og þótti rétt að
nota ferðina og ná í leiðinni í lyf handa veikum
hesti í nágrenninu. Ferðin yfir Fjarðarheiði
gekk áfallalaust hjá sendimanni og þegar á
Seyðisfjörð kom nálgaðist hann lyfin, duft
handa hestinum sem blásið skyldi ofan í hann
með tilheyrandi pípu og svo dropa handa bónd-
anum í Skógargerði. Að þessum erindum lokn-
um kemur hann við í Áfengisverslun ríkisins
sem þá var eina verslunin sem seldi áfenga
drykki austanlands. Svo var um marga sem
versluðu þar að erfitt var að bíða lengi með að
prófa varninginn og þróuðust mál þannig að
sendimaður var orðinn sæmilega groggaður
þegar kom upp á Hérað. Vildi ekki betur til en
svo að hann ruglaði meðulunum. Duftið með
pípunni fór í Skógargerði en droparnir í hest-
inn. Var duftinu blásið ofan í Gísla með viðhöfn
og svo brá við að hann varð alheill og var við
hestaheilsu það sem eftir lifði ævinnar. Drop-
unum, sem ætlaðir voru Gísla, var hins vegar
hellt ofan í hestinn með þeim afleiðingum að
hann steindrapst.
*
Það voru sagðar skemmtisögur á lokahófunum
eftir aðalfundi K.H.B. og það vildi brenna við
þegar fór að líða á samkvæmið að efni sagnanna
varð dálítið neðan mittis, eins og sagt er. Eitt
sinn varð Óli Sigurðsson á Hauksstöðum á Jök-
uldal samferða Jóni Kristjánssyni út eftir sam-
kvæmið. Þegar út kemur segir Óli: „Segðu mér
Jón, er samvinnuhreyfingin tómt klám?“
Jón setti hljóðan við þessa spurningu.
Sigurðar sögur dýralæknis
Í bókinni Sigurðar sögur dýralæknis segir
hinn kunni sagnamaður, Sigurður Sigurðarson
dýralæknir, fjölmargar
gamansögur af prestum,
stjórnmálamönnum, lækn-
um og dýrum. Hér ser
gripið niður í prestakafla
bókarinnar og byrjað á
séra Baldri Vilhelmssyni í
Vatnsfirði:
Séra Baldur stundaði
kennslu í Reykjanesskóla
og skiptust kennarar á
vakt á heimavistinni um
kvöld og nætur.
Baldur tók starfið alvarlega og á fyrsta kvöldi
greip hann tvo stráka, sem höfðu læðst í mat-
arbúrið og nælt sér þar í nokkrar dósir með nið-
ursoðnum ávöxtum. Prestur var sjálfur sólginn í
þess konar rétti. Hann tók í hnakkadrambið á
strákunum og sagði:
„Þetta er ekki Guði þóknanlegt, en þið slepp-
ið, ef ég fæ helminginn.“
Strákarnir skömmuðust sín svo mjög, að þeir
vöndust af öllu hnupli.
*
Við þessa velgengni í eftirlitinu færðist séra
Baldur í aukana og gekk hljóðlega eftir göngum
skólans. Hann heyrði þrusk í einu herberginu
og lagði eyra að dyrastaf. Hann sannfærðist um
að innan við dyrnar færi eitthvað það fram, sem
ókristilegt væri. Hann svipti upp dyrunum. Þar
stendur þá kviknakin griðkona, sem var í
miðjum klæðaskiptum. Henni bregður af-
skaplega við og hrópar upp yfir sig.
„Jesús minn almáttugur.“
Baldur svarar þá:
„Nei, ekki er ég hann, en við vinnum hjá sama
fyrirtæki.“
*
Bræðurnir frá Dröngum, Guðmundur Óli og
Guðjón Kristinssynir, voru að hlaða upp gamla
verbúð í Vatnsfirði árið 2003. Séra Baldur kem-
ur til þeirra og Guðmundur Óli segir við hann:
„Hvað segir þú mér af gömlu vinkonu minni,
henni Sigríði?“
Baldur svarar:
„Henni líður vel, hefur aldrei liðið betur. Ég
jarðaði hana fyrir fimm mánuðum.“
*
Biskupinn yfir Íslandi, herra Sigurbjörn Ein-
arsson frá Efri-Steinsmýri í Meðallandi, var að
vísitera fyrir austan Sand fyrir löngu. Það var
áður en Sveinn Runólfsson í Gunnarsholti rækt-
aði upp Mýrdalssand og melur og lúpína og
birkihríslur náðu að draga úr sandfoki. Ófært
varð yfir sandinn, ef hann blés hressilega af
norðri. Þeir, sem lögðu á sandinn í slíku veðri,
áttu von á því að bíll þeirra kæmi sandblásinn úr
ferðinni.
Meðan biskupinn var fyrir austan skall á
norðanveður. Sandurinn varð ófær. Lítið var
um opinbera gististaði fyrir austan Sand og því
ekki um annað að ræða en að leita gistingar á
sveitabæ.
Biskup baðst gistingar hjá fermingarbróður
sínum, sem átti heima í Meðallandi og var fá-
tækur þrifamaður. Innréttingar í kotinu hans
voru glæsilegar, gerðar úr góðviði ásamt
skrauti úr strandskipi. Húsþrengsli voru þó svo
mikil, að hjónin urðu að ganga úr rúmi fyrir
biskupi, en tólf ára dóttursonur þeirra varð að
sofa í hjónarúminu hjá biskupnum.
Herra Sigurbjörn var þreyttur og leiður yfir
því að komast ekki suður, þar sem hann átti
brýnum erindum að gegna, fór snemma í hátt-
inn og dró sængina upp fyrir höfuð. Þegar hann
er að sofna, heyrir hann þrusk, lyftir upp sæng-
urhorni og sér að drengurinn krýpur við rúm-
stokkinn sín megin. Biskupi bregður við. Hann
hafði gleymt að fara með kvöldbænir sínar.
Hann snarast fram úr rúminu, krýpur við rúm-
stokkinn og fer að biðjast fyrir. Drengurinn lít-
ur til hans og segir:
„Hvað ert þú að gera?“
„Það sama og þú, drengur minn,“ segir bisk-
up.
En drengurinn segir:
„Þá verður amma reið, því að ég er með kopp-
inn.“
*
Séra Bjarni Jónsson, lengi dómkirkjuprestur,
tók upp á því, eftir að hann var hættur störfum,
að heimsækja sakamenn í fangelsum bæjarins,
tala um fyrir þeim og gefa þeim góð ráð til
bættrar hegðunar og lífernis. Ekki fannst öllum
sakamönnunum þetta þörf eða gagnleg lesning
og einn þeirra einsetti sér að venja hann af
áminningunum og sat fyrir honum á bak við
hurð, þegar hann kom til fundar við þá. Þegar
Bjarni stormaði á fundinn, aðeins of seinn, brá
maðurinn fæti fyrir hann, svo að hann steypist
fram yfir sig og rann á belgnum inn eftir gólfinu
og inn í miðjan hópinn. Sakamennirnir biðu
spenntir eftir viðbrögðum Bjarna, meðan hann
reis á fætur, dustaði af hempunni rykið og hugs-
aði hvernig hann ætti að bregðast við.
Svo sagði hann:
,,Það var ekki annað en þetta, sem ég ætlaði
að segja ykkur núna: Þótt maður hrasi í lífinu
og detti, getur maður alltaf risið á fætur aftur.“
Svo gekk hann með reisn til baka, en fang-
arnir sátu eftir höggdofa. Flestir skildu það sem
séra Bjarni hafði sagt og sumir tóku það til eft-
irbreytni.
*
Séra Lárus Arnórsson, prestur í Miklabæ frá
1921 til æviloka 1962, sat við spilamennsku og
drykkju á laugardagskveldi og fram eftir allri
nóttu. Daginn eftir var messað og var prest-
urinn valtur á fótum og þoka yfir andanum, þeg-
ar hann gekk upp að altarinu. Þar stóð hann
drykklanga stund, án þess að segja nokkuð.
Meðhjálparinn þokar sér að presti og spyr:
,,Ætlar ekki presturinn að segja eitthvað?“
Prestur rankar við sér og segir stundar hátt:
,,Jú, ég segi grand.“
Skagfirskar skemmtisögur 5
Skagfirskar skemmtisögur koma núna út í
fimmta sinn og sem fyrr er það Björn Jóhann
Björnsson blaðamaður sem tekur sögurnar
saman. Þær eru samanlagt orðnar vel á annað
þúsund og hér koma nokkrar úr nýju bókinni:
Guðjón Sigurðsson, lengi bakarameistari á
Sauðárkróki, var léttur í lund og ekki hár í loft-
inu, eða 1,59 eins og hann sagði sjálfur.
Einhverju sinni mun hann hafa farið niður í
kjallara í bakaríinu en rekið sig upp undir og
meitt sig lítilsháttar á skallanum. Er hann kom
upp strauk hann yfir höf-
uðið á sér, leit á blóðið og
mælti:
„Mikil lifandis skelfing
var þetta dásamlegt. Það
eru mínar sælustu stund-
ir þegar ég rek mig upp
undir.“
*
Eitt sinn gekk yfir landið
skæð flensa sem manna í millum var gjarnan
kölluð norræna flensan. Þá lágu heilu byggð-
arlögin í flensupest og fór Sauðárkrókur ekki
varhluta af því.
Guðjón bakari átti erindi á bæjarskrifstofuna
en þar voru bara tvær konur uppistandandi.
Önnur spurði Guðjón:
„Hvernig er þetta með þig, hefur þú alveg
sloppið við flensuna, Guðjón minn?“
„Já,“ svaraði hann að bragði, „hún liggur í 1
og 60.“
*
Einhverju sinni sátu þeir á kaffistofunni á
gömlu Steypustöðinni í lok vinnudags, frænd-
urnir Pálmi Friðriksson, Pálmi Jónsson og
Þórður Hansen. Flaska hafði verið opnuð og
komið fram á kvöld þegar ófáar sögurnar höfðu
fengið að flakka með viðeigandi hlátrasköllum.
Heyra þeir þá að einhver kemur upp stigann
á háaloftið. Var þar mætt Edda Vilhelms, kona
Pálma Jóns, heldur þung á brún og var greini-
lega farið að lengja eftir bónda sínum heim. Lét
hún skammirnar dynja yfir Pálma Friðriks,
yfirmanninn á staðnum, sem lét sér hvergi
bregða. Seildist þá Edda í glasið hans og skvetti
innihaldinu framan í hann með látum.
„Hvað er að þér kona?“ segir Pálmi Friðriks
við Eddu en reynir að gera gott úr hlutunum.
En Edda var ekki hætt og gerði sig líklega til að
grípa um glasið hjá Þórði þegar hann stekkur
til, grípur um hönd hennar og segir í bænartón:
„Eeeeertu ekki til í að nota vatn?“
*
Sparisjóður Hólahrepps var með minnstu spari-
sjóðum landsins en vel rekinn, enda yfirbygg-
ingin engin og lánveitingum stillt í hóf. Hörður
Jónsson á Hofi var lengi sparisjóðsstjóri og
sinnti embættinu af stakri samvisku meðfram
bústörfum. Það mun hafa verið til siðs hjá
Seðlabankanum að láta unga og óreynda sum-
arstarfsmenn hringja norður í Hof, helst í
miðjum heyönnum, og reyna að ná tali af Herði.
Einhvern veginn svona fóru þessi samtöl fram,
en yfirleitt varð móðir Harðar fyrir svörum:
„Er þetta hjá Sparisjóði Hólahrepps?“
„Já, þetta er þar.“
„Er sparisjóðsstjórinn við?“
„Nei, hann er úti á túni.“
Gárungar meðal bankamanna höfðu á orði að
samtölin hefðu verið góð myndlíking á því sem
aflaga fór í bankahruninu, þó að Sparisjóður
Hólahrepps hefði þar hvergi komið nærri, hvað
þá Hörður á Hofi!
*
Óskar Pétursson frá Álftagerði er ekki bara
góður söngvari heldur einnig maður spaug-
samur, eins og öllum er kunnugt. Einu sinni var
hann spurður um söng sinn. Sagðist hann
syngja mest við jarðarfarir, enda væri hann
kallaður „hell singer“. Aðspurður hvort mikið
væri að gera í söngnum svaraði Óskar:
„Ja, það er reytingur og verður áfram. Ég var
uppi á elliheimili um daginn að kanna lagerstöð-
una!“
*
Bjarni Maronsson, sem starfar fyrir Land-
græðsluna, reið um árið gamla leið yfir Öx-
arfjarðarheiðina, frá Þistilfirði yfir í Öxarfjörð,
með nokkrum bændum báðum megin hennar. Á
miðri leið var áð við uppþornaðan drullupoll,
umlukinn leirflögum svo tæplega var forsvar-
anlegt að brynna þar hrossum. Eins og tíðkast í
ferðum sem þessum var Bjarna sagt til um ör-
nefni á leiðinni. Við tjörnina var stigið af baki og
dásömuðu heimamenn umhverfið og ægifagurt
landslagið. Einn ferðafélaganna bendir nokkuð
upp með sér á forarpollinn og segir við Bjarna:
„Þetta heitir nú Fagratjörn.“
Bjarni horfir í kringum sig á ófrýnilegt mold-
arflagið, ræskir sig ögn og segir með hægð:
„Já, merkilegt að mér skyldi nú ekki hafa
dottið það í hug.“
Skemmtisögur úr ýmsum áttum
Bókaútgáfan Hólar gefur að þessu sinni út þrjár bækur með léttum gamansögum úr ýmsum áttum; Héraðsmannasögur, Sigurðar
sögur dýralæknis og Skagfirskar skemmtisögur 5 – Endalaust fjör! Hér eru birtar nokkrar sögur úr bókunum, með góðfúslegu leyfi
útgáfunnar, og byrjað á Héraðsmannasögum sem hafa að geyma gamansögur af Héraðsbúum fyrr og nú. Bókina tóku saman þeir
Jón Kristjánsson, fv. ráðherra og þingmaður, og Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku.