Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 92
92 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Komin er út í Reykjavík áforlagi Crymogea stórbók, Andlit norðursins,sem hefur að geyma ljós-
myndir Ragnars Axelssonar ljós-
myndara hér á Morgunblaðinu sem
lesendum blaðsins eru margar eft-
irminnilegar frá liðnum áratugum.
Þessi útgáfa er aukin og endurbætt
frá fyrstu út-
gáfu verksins
sem leit dags-
ins ljós 2004,
bókin er í
stóru broti,
31 x 29,5 cm,
með hörðum
áklæddum
spjöldum og með margfræga mynd
Ragnars af Guðjóni bónda Þor-
steinssyni í Mýrdal frá 1995 álímda á
kápu. Bókverkið er frábærlega unn-
ið, prentun gerð á Ítalíu hjá Grafiche
Damiani, bókin hönnuð af Einari
Geir Ingvarssyni á látlausan og
smekklegan máta, myndir lagðar á
síðurnar með hvítum kanti, í stöku
tilvikum lagðar yfir opnur þar sem
myndefnið heimtar víðan sess,
myndvinnslan öll til fyrirmyndar svo
hér er kominn prentgripur sem
stenst samanburð við bestu bókverk
ljósmyndaútgáfu á okkar tímum.
Frumútgáfa Andlita norðursins
var á sínum tíma ánægjulegur end-
urfundur við margar þessara mynda
sem höfðu birst hér á síðum á löngu
árabili frá 1987 til 2004 en hér er
bætt um betur. Þá voru þessar
mynda-esseyjur frá Íslandi, Fær-
eyjum og Grænlandi með formálum
þeirra Guðmundar Andra Thors-
sonar og Mary Ellen Clark, nú er
inngangur Andra fyrir róða en stutt-
ur formáli bandaríska ljósmynd-
arans látinn nægja auk aðfaraorða
ljósmyndarans sjálfs þar sem hann
lýsir köllun sinni: 1988 mætir hann
örlögum sínum í sátri á Gjögri í
Djúpi, Axel Thorarensen er að
leggja í róður á trillunni sinni í vot-
viðri. Þeir taka spjall saman og í
ljósmyndarann unga lýstur kröfu.
Hér er heimur sem er að hverfa,
hann skaltu skrá. Og þeirri köllun,
skyldu og hugsjón hefur Ragnar síð-
an sinnt.
Myndefni nýrrar útgáfu, lengri og
stærri, einskonar extended play, er
nú mætt í nýju bókinni. Form hinnar
fyrri er virt á þann veg að mynd-
verkin sem þar var raðað saman eru
hér í fyrri röð, en við bætist nýtt úr-
val af sömu efnum undir heitinu
„Bak við andlitin“. Í efnisyfirliti má
fylgja þessari uppbyggingu. Hvert
myndefni, til dæmis myndir frá
Holti undir Eyjafjöllum sem teknar
eru í snælduvitlausu veðri 1993, birt-
ist fremst í upphaflegri röð en koma
síðar upp með fleiri myndum og nú
með ítarlegri skýringartextum
Ragnars sem voru í bókarlok fyrri
útgáfunnar. Lesanda tekur nokkra
stund eftir fyrstu flettingu þessa
mikla verks, sem er 412 síður, að
átta sig á byggingunni og þá freist-
ast hann til að fletta fram og aftur til
að ná heild, allar myndir sem liggja
saman þó þær fari í tvo staði innan
bókarinnar. Þetta er að sumu leyti
galli því skýringartextar Ragnars
eru nú með áður óbirtum myndum í
„Bak við andlitin“.
Textar Ragnars segja okkur
stærri sögu: erindi hans að fanga
heim útnesjamanna, liðinn heim af-
skekktra byggða og fornra lífshátta,
er máski ekki lokið til fulls en hér
sjáum við örlög þjóðarinnar, lífsbar-
áttu sem háð var í dreifðum byggð-
um allt til nýrrar aldar. Flest við-
fangsefni hans eru nú látin og hann
myndaði þau á síðasta æviskeiði
margra þeirra. Ný útgáfa Andlita
norðursins er þannig samfélagsleg
rannsókn um leið og auga Ragnars
nemur svipmynd sem lýtur fagur-
fræðilegum kröfum hans um mynd-
byggingu, dýpt og margræðni.
Líkastil eru gáfur Ragnars með-
fæddar þó löng vist hans á ljós-
myndadeild þessa blaðs hafi gefið
honum tækifæri til að þroska gáfur
sínar og þjálfa hæfni í myndatök-
unni. Í nær öllum tilvikum útheimtir
takan mikla færni í mannlegum sam-
skiptum, hæfileika til að koma sér
fyrir í einangraðri og afskiptri tilvist
þess sem festa skal á mynd. Hann
leggur enda ríka áherslu í frásögn-
um sínum af hverju tilviki á nauðsyn
þess að eiga samtal, kynni, við þá
sem hann er að mynda. Hann mildar
innkomu sína inn í tilveru viðfangs-
efnisins á þann hátt að honum er
fagnað, hann ógnar ekki eða styggir
þann sem mynda skal heldur verður
þægileg viðbót við dagsins önn.
Ljósmyndurum er það misvel gefið.
Þó kjörefni Ragnars sé maðurinn í
aðstæðum sínum og einangrun er
hann ekki síður landkönnuður.
Landið í öllum sínum veðrabrigðum
er bakgrunnur verka hans, oftast
skynjar sá sem myndina les hætt-
una, háskann, norðanbálið sem mað-
urinn býr við á þeim slóðum, Íslandi,
Færeyjum og Grænlandi, í öllum
þeim fjölbreytileika sem norðrið býr
yfir, jafnvel í kyrrum, síðkvöldum
vors og sumars. Ragnar sækist eftir
dramatískum, átakaríkum minnum:
maður við klakabönd, skipverjar í ís-
ingu, brimskafl og andlit í forgrunni.
Hin mýkri myndefni eru honum ekki
síður kær, kona við þvott á snúru,
nýkastað folald heyrir munnhörpu-
tón, veiðimaður með bráð á hjarni,
náhvalur í vök. Og í öllum verkunum
er maðurinn fremstur, andlit rúnum
rist, bernskan björt, skuggar á fjalli.
Ný útgáfa og stækkuð af Andlit-
um norðursins er ekki létt bók, hún
er frek á athygli og skoðun, opnu
eftir opnu, því í myndunum er síðu
eftir síðu mikil og mannleg saga.
Verkið allt útheimtir endurtekna
skoðun, slík ofgnótt er falin í þessu
mikla verki. Ragnar Axelsson hefur
sinnt köllun sinni vel og skapað sér
og viðgangsefni sínu stórkostlegan
minnisvarða um heim á hverfanda
hveli. Ný útgáfa þessa verks er hon-
um og útgefanda til mikils sóma.
Af fornum slóðum
Morgunblaðið/RAX
Minni „Í öllum verkunum er maðurinn fremstur, andlit rúnum rist, bernskan björt, skuggar á fjalli,“ segir í umsögninni. Heininina Haraldsen í Austurey 1997 að afloknum heyskap.
Ljósmyndabók
Andlit norðursins bbbbb
Ragnar Axelsson: Andlit norðursins.
Formáli: Mary Ellen Mark. Útgefandi:
Crymogea. 412 bls.
PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/RAX
Minnisvarði Mynd Ragnars Axelssonar af Axel Thorarensen í Gjögri varð honum hugljómun.