Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 96

Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 96
96 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 Díana Rós A. Rivera dianarosarivera@gmail.com Söngkonan Stína Ágústsdóttir fagn- ar útgáfu plötu sinnar Jazz á ís- lensku með tónleikum í Kaldalóni í Hörpu 11. desember kl. 20. Þetta er þriðja plata söngkonunnar og samanstendur af sígildum djass- lögum á íslensku. Textana samdi Stína en fékk hjálp við yfirlestur á þeim frá skáldinu Þórarni Eldjárn. Með Stínu á tónleikunum leika Sig- urður Flosason saxófónleikari, Anna Gréta Sigurðardóttir píanó- leikari, Einar Scheving trommari og Þorgrímur Jónsson bassaleikari. Missti röddina um tíma Aðpurð hvaðan titill plötunnar komi segir Stína hann að hluta til- vitnun í plötu sænska píanóleik- arans Jan Johansson, Jazz på svenska, en sænska þjóðlagið „Visa från Utanmyra“ kemur fyrir á þeim báðum. Hugmyndin að plötunni hafi svo orðið til í framhaldi af heiðurs- tónleikum Monicu Zetterlund sem Stína tók þátt í, en Zetterlund söng mikið af djasslögum á sænsku. „Það er til djass á íslensku en ekki ógrynni af honum og e.t.v. ekki heldur í þessu samhengi. Það er meira til af nýrri og meira módern djasstónlist á íslensku,“ segir Stína. Ýmislegt gekk á við tilurð plöt- unnar en til stóð að taka plötuna upp í maí á þessu ári þegar hætta þurfti við allt saman vegna þess að Stína var lögð inn á sjúkrahús. „Ég er með gigtarsjúkdóm sem blossaði svakalega upp rétt fyrir upptök- urnar og þremur dögum fyrir áætl- aða brottför gat ég hvorki gengið, klætt mig sjálf né séð um mig, börnin eða nokkuð annað. Ég var lögð inn á sjúkrahús í nokkra daga og hef eiginlega verið í endurhæf- ingu síðan þá. Ég missti líka rödd- ina í kjölfarið og þurfti að hvíla hana og þjálfa upp á nýtt.“ Hún segir röddina ekki hljóma eins og hún gerði áður, sem sé í sjálfu sér ekki slæmt en það endurspeglist á plötunni. Þar komi án efa fram til- finningar sem hefðu ekki gert það annars. Alltaf stuð á tónleikum En hvernig kom samstarfið við Þórarin Eldjárn til? „Mig vantaði hjálp við að fín- pússa textana og fá þá yfirlesna. Ég velti lengi fyrir mér hver gæti hjálpað mér við það og leitaði fyrir mér á nokkrum stöðum en var ekki ánægð.“ Stína segir Þórarin vera uppáhaldsskáldið sitt og að hún hafi lesið ljóðabækurnar hans mikið en henni hafi ekki dottið í hug að hann mundi nokkurn tímann líta við krotinu hennar. Hún hafi samt ákveðið að senda honum tölvupóst og fengið mjög vinalegt svar til baka og samstarfið hafi verið ein- falt og áreynslulaust og gengið mjög vel. Eins og áður sagði verður Stína með útgáfutónleika í Hörpu 11. desember og segir hún tónleika- gesti mega eiga von á fjölbreyttu og skemmtilegu prógrammi. „Svo verð ég með innskot á milli laga sem verða án efa ófyndin og óvið- eigandi, en ég verð allavega í fal- legum kjól og tónlistarfólkið sem spilar með mér er í heimsklassa. Þótt ég segi frá sjálf er alltaf stuð á tónleikum með mér.“ Stína segist stefna ótrauð áfram í tónlistinni. „Það hlusta allir á tón- list og minn tilgangur með henni er að gera fólki það mögulegt.“ Hún bætir við að um þessar mundir sé hún í verkefni sem heiti Björkologi, sem séu Bjarkarlög í djassbúningi, og að hún sé nýkomin kom heim úr tónleikaferðalagi um Norður- Svíþjóð. „Það gekk alveg svakalega vel og við fengum frábæra dóma í blöðum. Með mér í því verkefni eru Anna Gréta, Max Schultz gítarleik- ari, Sebastian Ågren og Josef Karnebäck. Þetta er svo frábært tónlistarfólk að mér finnst næstum svindl að ég fái að syngja með þeim.“ Hún segist vera að semja mikið sjálf auk þess sem hún semji texta fyrir aðra. „Svo er maður alltaf að syngja hér og þar með hinum og þessum, eins og gengur og gerist í djassheiminum. Ég syng líka dans- tónlist sem er spiluð á nætur- klúbbum og hef gert kvikmynda- tónlist o.fl. en djassinn er í aðalhlutverki eins og er.“ „Djassinn í aðalhlutverki“  Stína Ágústsdóttir fagnar plötunni Jazz á íslensku í Hörpu á sunnudag  Er nýkomin heim úr tónleikaferðalagi í Norður- Svíþjóð  Vinnur að því að koma lögum Bjarkar í djassbúning Tilgangur „Það hlusta allir á tónlist og minn tilgangur með henni er að gera fólki það mögulegt,“ segir söngkonan Stína Ágústsdóttir. Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Valin besta nýja vara ársins, Nordbygg 2016 Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. Jólaskeið ERNU 2016 og servíettuhringur ársins Íslensk hönnun og smíði síðan 1924 ERNA Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJA Verð 12.500,- Verð 21.500,- BakhliðSkeiðin er hönnuð af Ragnhildi Sif Reynisdóttur, gullsmið og hönnuði Vínylplötur seljast betur en nokkru sinni fyrr í Bretlandi en í síðustu viku fór vínylsala fram úr sölu tón- listar til niðurhals í fyrsta sinn í sögunni. Vínylplötur seldust fyrir um 335 milljónir króna á meðan Bretar eyddu innan við 300 millj- ónum í tónlist á stafrænu formi, að því er fram kemur í Guardian. Plötusala hefur aukist mjög á síð- astliðnu ári en á sama tíma í fyrra seldust vínylplötur fyrir 170 millj- ónir króna og stafræn tónlist fyrir rúmlega 600 milljónir. Neyslumynstrið hefur því breyst mikið og fólk sækist eftir því að eiga tónlist á áþreifanlegu formi. Vínyllinn varð nærri því útdauð- ur í kringum árið 2006 en hlaut uppreisn æru og hefur sala aukist átta ár í röð. Ein ástæða þessarar auknu sölu er að útsölustöðum vínylplatna hef- ur fjölgað mjög í Bretlandi. Versl- unum hefur fjölgað sem sérhæfa sig í sölu vínylplatna og plöturnar eru líka komnar í hillur stórmark- aða á borð við Sainsbury’s og Tesco. Tiger selur meira að segja vínylplötur og hefur þetta auka- aðgengi sitt að segja um betri sölu. Jólagjafakaup hafa líka sitt að segja. Sala á vínylplötum slær met í Bretlandi Vínylplötur Salan hefur aukist átta ár í röð og plöturnar eru seldar víðar en áður. Leifur Ýmir Eyjólfsson og Sigurður Atli Sigurðsson hafa opnað sýningu í Harbinger. „Þeir Leifur og Sig- urður, sem starfa saman undir nafn- inu Prent & Vinir, hafa sett upp prentverkstæði í rýminu og verða að störfum þar allt fram að jólum, auk þess sem að leynigestir verða fengn- ir til að prenta verk dagsins meðan á sýningartímabilinu stendur,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að listamennirnir leiki sér með markaðsfræði mynd- listarinnar með því að opna ferlið og gefa viðskiptavininum færi á að stýra verðinu og verkinu upp að vissu marki. „Hægt verður að panta sér verk eftir stærðum, mældum í tommum, 10, 12, eða 16 og einnig má velja stíl, fjölda lita og fjölda mótífa og hafa þannig áhrif á bæði verk og verð. Öll eru verkin afhent inn- römmuð.“ Samtímis sýningunni verður opn- að bókarýmið Bækur á bakvið. „Þar verða íslensk og erlend bókverk og sjaldséð rit frá sjálfstæðum útgef- endum til sölu.“ Vinna með markaðsfræði listarinnar Prent & Vinir Leifur Ýmir Eyjólfsson og Sigurður Atli Sigurðsson starfa saman.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.