Fréttatíminn - 04.06.2016, Blaðsíða 2
Vændi Nokkrar erlendar
vændiskonur halda til í
Reykjavík og leigja íbúðir
á uppsprengdu verði af
íslenskum karlmönnum
tengdum fíkniefnaheim-
inum. Konurnar auglýsa
vændi í gegnum vefsíðuna
City of Love, og taka á móti
viðskiptavinum í íbúðunum
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Samkvæmt heimildum Fréttatím-
ans gera mennirnir húsaleigusamn-
inga við konurnar um miklu lægri
húsaleigu en þær þurfa raunveru-
lega að borga. Þær greiða hátt í
400 þúsund krónur á mánuði fyrir
tveggja til þriggja herbergja íbúðir
og þurfa reiða fram greiðslur viku-
lega. Talið er að að minnsta kosti
fjórar til sex slíkar íbúðir séu í höf-
uðborginni sem sömu einstaklingar
eiga og leigja út. Hver kona er ein í
íbúð. Húseigendurnir bjóða konun-
um vernd, ef viðskiptavinir þeirra
eru með vesen.
Mennirnir settu sig í samband við
konurnar í gegnum vefsíðuna City
of Love og buðu þeim íbúðirnar til
leigu. Þeir tengjast fíkniefnaheim-
inum á Íslandi og innflutningi á eit-
urlyfjum.
Lögreglan hefur fylgst með síðunni
í nokkur ár og átt í samskiptum við
nokkrar þeirra kvenna sem þar bjóða
fram vændi. Lögreglan hefur sérstak-
lega haft afskipti af yngstu konunum
og segir mynstrið líkjast mansali, þar
sem bakgrunnur kvennana er keim-
líkur. Þær hafi verið sendar á milli
landa til að stunda vændi.
Á vefsíðunni er útlit fyrir að rúm-
lega hundrað einstaklingar af báð-
um kynjum bjóði vændi á Íslandi
en lögreglan hefur ekki yfirsýn yfir
hve margir þeir eru í raun. Fyrir um
ári síðan gerði lögreglan lauslega
könnun á umfangi vændisstarfsem-
innar á síðunni og fann á bilinu 8-15
virkar prófílsíður. Nú er útlit fyrir
að enn fleiri séu virkir.
City of love er velþekkt vændis-
síða og auglýst sem fylgdarþjón-
usta. Á prófílsíðu hverrar vænd-
iskonu eru nákvæmar upplýsingar
um hverskonar kynlíf þær bjóða,
og ítarleg verðskrá fyrir hverja og
eina. Þannig kostar klukkustund
um 40-60 þúsund krónur en heill
sólarhringur frá 300 -500 þúsund
krónur. Símanúmer og netföng
kvennanna fylgja með.
2 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
gasgrill 3ja brennara
Niðurfellanleg
hliðarborð
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Vönduð yfirbreiðsla fylgir
• Afl 10,5 KW
Á R A
grillbudin.is
AFMÆLISTILBOÐ
79.900
VERÐ ÁÐUR 98.900
50 áraAFMÆLISTILBOÐ
Nr. 12934
Bjarkey Olsen Gunnarsdótt-
ir, þingmaður VG, talaði
lengst allra þingmanna
á vorþingi eða alls í
1173 mínútur
Þetta er í fyrsta sinn sem
kona slær metið en þær
hafa löngum verið hógværari á
ræðutíma en þingkarlarnir.
Athygli vekur að f lokksbróðir
hennar úr sama kjördæmi, Stein-
grímur J. Sigfússon, er í öðru sæti
og talaði í heilar 1017 mínútur.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra er í þriðja sæti en hann talaði
í 915 mínútur. Alþingismenn fóru
í sumarfrí í
gær þegar
fundum
var frestað
fram til 15.
ágúst. Alls
urðu 79 mál að lögum á þessu þingi
auk þess sem þingmenn samþykktu
52 ályktanir. Enginn dagsetning er
komin á alþingiskosningar í haust
en ráðherrar ríkisstjórnarinnar
hafa sagst vilja afgreiða tugi mála
áður en kosið er. | þká
Frumvarp Illuga vill afnema
kerfi sem Bandaríkjamenn
vilja taka upp. Ísland eina
landið í heiminum þar sem
tekjutengd námslán fyrnast
ekki
Í Bandaríkjunum er öllum
námsmönnum nú boðið upp á
tekjutengd lán og var það fært í lög
í desember í fyrra. Áður var hluta
námsmanna boðið upp á þessa
endurgreiðsluleið og gafst kerfið
svo vel að ákveðið var að víkka það
út. Ísland var fyrsta landið í heim-
inum til að innleiða tekjutengd
námslán, en verði frumvarp Illuga
að veruleika á næsta þingi verður
þessi leið afnumin.
Hérlendis hefur verið boðið upp á
tekjutengd námslán frá árinu 1976,
en lönd á borð við Bretland, Ástr-
alíu, Suður-Kóreu og Ungverjaland
hafa fylgt í kjölfarið. Helstu kostir
þessara lána eru taldir vera minni
greiðslubyrði fyrir nemendur, sem
eykur fjárhagslegt öryggi. Jafnframt
tryggir þetta að nemendur standi
í skilum, en vanskil settu lánasjóð
Síle á hausinn árið 2011.
Í frumvarpi Illuga er eitt helsta
markmið breytinganna að koma í
veg fyrir að lánasjóðurinn verði af
tekjum þegar nemendur deyja frá
ógreiddum lánum, en Ísland er eina
landið þar sem endurgreiðslna er
krafist fram á dánardag. Annars-
staðar fyrnast tekjutengd lán á 20 til
25 árum, svo hluti þeirra er aldrei
greiddur. Því virðist sem endur-
heimtur af slíkum lánum séu meiri
hér en annarsstaðar, en dugir það
ekki til að menn vilja hér afnema
kerfi sem aðrir eru að innleiða. | vsg
„Ég varð fyrir miklum
vonbrigðum með þessi svör,“
segir Katrín Jakobsdóttir,
formaður Vinstri hreyf-
ingarinnar græns framboðs.
Hvorki Seðlabanki Íslands
né fjármálaráðuneytið geta
svarað því hversu mikið fé
álfyrirtækin á Íslandi hafa
flutt úr landi eftir að fjár-
magnshöftum var komið á
„Ég varð fyrir miklum vonbrigðum
með þessi svör,“ segir Katrín Jak-
obsdóttir, formaður Vinstri hreyf-
ingarinnar græns framboðs. Hvorki
Seðlabanki Íslands né fjármálaráðu-
neytið geta svarað því hversu mikið
fé álfyrirtækin á Íslandi hafa flutt úr
landi eftir að fjármagnshöftum var
komið á. Þá fást ekki heldur
upplýsingar um arðgreiðsl-
ur á árunum 2009 til 2015.
Þetta kemur fram í svari
fjármálaráðherra við fyr-
irspurn hennar á Alþingi.
Fjármálaráðuneytið seg-
ist ekki búa yfir upplýs-
ingunum og Seðla-
bankinn ber fyrir
sig þagnarskyldu
og persónu-
vernd. „Hér
hefur verið
umræða um
þunna eigin-
fjármögnun
stórfyrir-
tækja sem
snýst um
að færa fjármuni innan sömu
samstæðu milli landa. Þetta
er mál sem varðar hags-
muni almennings og ég
held að þessi fyrirtæki
ættu að sjá sér hag í því
að hafa þessar upplýs-
ingar uppi á borðinu, ég
skora á þau að höggva á
hnútinn og birta gögn-
in,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir.
Leigja vændiskonum íbúðir á uppsprengdu verði
Íslenskir íbúðaeigend-
ur settu sig í samband
við vændiskonurnar í
gegnum vefsíðuna City
of Love.
Kona slær ræðumet
Alþingis í fyrsta sinn
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir
talaði lengst
allra þingmanna
á síðasta þingi.
Horfið frá tekjutengingum
sem önnur lönd vilja taka upp
Nemendur í HR.
Katrín Jakobsdóttir
segir málið varða
almannahagsmuni.
Skorar á fyrirtækin
að birta gögnin
Dómsmál Kaj Anton játaði
fíkniefnaneyslu og sagði
barnið hafa dottið
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Sindri Kristjánsson, faðir hins
tveggja ára drengs sem Kaj Anton
er sakaður um að hafa misþyrmt,
sýndi mikla bræði í réttarhöldum
málsins sem fram fóru Jæren Tin-
grett í Noregi í vikunni. „Það er
óskiljanlegt hvernig hægt er að gera
svona við lítið barn.“
Kaj Anton Arnarsson Larsen bíð-
ur niðurstöðu dómara við Jæren
Tingrett í Noregi. Hann hefur setið
í gæsluvarðhaldi í
átta mánuði, grun-
aður um að hafa
misþyrmt tveggja
ára syni Sindra
Kristjánssonar í
Stavanger í fyrra.
Réttarhöldin fóru
fram í vikunni en
móðir barnsins var
kærasta Kaj Antons
þegar málið kom
upp.
Við aðalmeðferð
málsins kom fram
að fram að bæði
Kaj Anton og móð-
ir barnsins hefðu
verið í fíkniefnaneyslu þegar málið
kom upp. Móðirin og barnið hafa
dvalið í sérstökum fjölskylduúrræð-
um í Stavanger og Bergen síðan.
Við réttarhöldin hélt Kaj Anton
fram sakleysi sínu og skýrði áverka
á barninu með þeim hætti að það
hefði dottið í tví- eða þrígang.
Forsagan er sú að Kaj Antoni var
treyst fyrir drengnum þegar kon-
an var að byrja í
nýrri vinnu á leik-
skóla. Litli drengur-
inn, sem þá var rétt
tveggja ára gamall,
var veikur og gat
ekki farið í leikskól-
ann. Kaj Anton var
því með drenginn.
Þegar konan kom
heim úr vinnu var
drengurinn meiddur og fór hún,
ásamt Kaj Antoni, með hann á spít-
ala.
Þar vöknuðu grunsemdir heil-
brigðisstarfsfólks um að drengnum
hefði verið misþyrmt. Drengurinn
var handleggsbrotinn, með mar á
höfði, stóran marblett á baki og ældi
sökum heilahristings.
Sindri Kristjánsson, faðir barns-
ins, gaf einnig skýrslu fyrir dómi og
var mjög mikið niðri fyrir. Þeir Kaj
Anton eiga sögu saman en þeir hafa
báðir afplánað dóma fyrir aðild að
Háholtsárásinni svokölluðu. Árásin
var hluti af uppgjöri tveggja glæpa-
hópa en Annþór Kristján Karls-
son og Börkur Birgisson fóru fyrir
árásinni.
„Ég var mjög reiður og bara titr-
aði við að sjá þennan mann. Það
kemur enginn annar til greina,“ seg-
ir Sindri. Hann sat í fangelsi í Noregi
þegar málið kom upp en kom á spít-
alann tveimur dögum síðar. „Þegar
ég hitti son minn loksins var hann
afmyndaður í andlitinu. Mjög lítill
í sér og hræddur í einhvern tíma á
eftir. Það er gjörsamlega óskiljan-
legt hvernig menn geta gert svona.
Þetta er bara algjör rotta.“
Faðir drengsins
titraði af reiði
Kaj Anton Arnarsson Larsen
bíður dóms í málinu.
Sindri Kristjánsson er faðir drengsins
sem talið er að Kaj hafi misþyrmt.